Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Page 27
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á
THE ILLUSIONIST kl. 5.45, 8 og 10.15
THE HITCHER kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
VENUS kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA
NOTES ON A SCANDAL** kl. 6 B.I. 14 ÁRA
** SÍÐUSTU SÝNINGAR
THE HITCHER kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
THE HITCHER SÝND Í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
EPIC MOVIE kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA
THE NUMBER 23 kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.30 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
THE HITCHER kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
EPIC MOVIE kl. 6 og 10 B.I. 7 ÁRA
NORBIT kl. 6 og 8
FRÁBÆR GAMANMYND ÞAR SEM GERT ER GRÍN
AF HELSTU STÓRMYNDUM SÍÐASTA ÁRS.
UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK ENGIN
ÓSKARSVERÐLAUN!
FRÁ FRAMLEIÐENDUM TEXAS CHAINSAW
MASSACRE OG THE AMITYVILLE HORROR
MEÐ SOPHIA BUSH ÚR ONE TREE HILL
OG SEAN BEAN (NATIONAL TREASURE
& LORD OF THE RINGS).
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR UM
FERÐALAG TVEGGJA HÁSKÓLANEMA
Á ÓNEFNDUM ÞJÓÐVEGI Í USA OG
HREMMINGUM ÞEIRRA!
ÞESSI ER STÓR... VIÐ MÆLDUM!
„FRÁBÆR LEIKUR OG
EFTIRMINNILEG MYND!“
- B.S., FRÉTTABLAÐIÐ
STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 16 ÁRA
Miðasala á tónleika Bjarkar og Hot Chip hefst í dag:
Björk og Hot Chip í höllinni
Miðasala á tónleika Bjarkar og
bresku rafsveitarinr Hot Chip hefst
í dag klukkan 12.00 Tónleikarn-
ir verða þann 9. apríl í Laugardals-
höll og eru þetta fyrstu tónleikar
Bjarkar á Íslandi eftir nær sex ára
hlé. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í
heimstónleikaferð Bjarkar, en hún
er að kynna nýja breiðskífu, Volta
sem kemur út um allan heim þann
7.maí. Munu því lög af nýju plöt-
unni hljóma á tónleikunum í bland
við eldra efni. Einvalalið tónlistar-
manna kemur fram ásamt Björk, en
meðal þeirra eru Mark Bell og Dam-
ian Taylor sem leika á raftæki, Chris
Corsano sem leikur á trommur og
Jónas Sen á orgel. Einnig hefur Björk
sett saman hóp af blástursleikurum
sem samanstendur af 10 konum eða
þeim Brynju Guðmundsdóttir, Sig-
rúnu Kristbjörg Jónsdóttir, Hörpu
Jóhannsdóttir, Erlu Axelsdóttir,
Særúnu Ósk Pálmadóttir, Bergrúnu
Snæbjörnsdóttir, Valdisi Þorkels-
dóttir, Sylviu Hlynsdóttir, Björk Ni-
elsdóttir og Sigrúnu Jónsdóttir. Tón-
leikaferð Bjarkar mun standa yfir í 18
mánuði og er þetta með lengri tón-
leikaferðum sem söngkonan hefur
farið. Hljómsveitin Hot Chip hefur
spilað á landinu í tvígang og vakið
athygli út um allan heim fyrir tónlist
sína. Þeir gáfu út plötuna The Warn-
ing í fyrra sem sló rækilega í gegn.
Miðasala á tónleikana hefst í dag,
miðvikudaginn 28. mars, stund-
víslega klukkan 12:00. Miðasala fer
fram í verslunum Skífunnar , BT Eg-
ilstöðum, Selfossi og Akureyri og á
midi.is. Miðaverð er 3.900 krónur í
stæði en 6.900 krónur í stúku.
Björk Heldur sína fyrstu tónleika á
Íslandi í apríl eftir sex ára hlé.
Hot Chip Breskir rafpopparar
sjá um að hita upp.
Arcade Fire
í uppáhaldi
Tónlistargoðsögnin David Bowie var
fengin til þess að sjá um skemmtiatriði á
H&M High Line Festival í New York daga 9.
til 19. maí. „Ég var beðin um að setja saman
dagskrá sem að ég myndi sjálfur gera mér
ferð til þess að sjá,“ segir Bowie en á hátíð-
inni koma meðal annars fram Arcade Fire
sem er í miklu uppáhaldi hjá kappanum,
tölvupoppdúettinn Air og breski grínistinn
Ricky Gervais.
DiCaprio
og Scorsese
saman á ný
Leikarinn Leonardo Dicaprio mun leika í
næstu kvikmynd Martin Scorsese, The Wolf
of Wall Street. Það er handritshöfundurinn
Terence Winter sem mun snara sjálfsævi-
sögu verðbréfasalans Jordan Belfort í hand-
rit, en kvikmyndin byggist á sögu hans. Jor-
dan þessi var óprúttinn verðbréfasali á Wall
Street og þurfti að dúsa bakvið lás og slá
eftir að hafa verið dæmdur fyrir svik. Scor-
sese mun leikstýra myndinni, en hann hlaut
nýverið Óskarsverðlaunin fyrir kvikmyndina
The Departed, en Dicaprio lék aðalhlutverk-
ið í henni.
17 daga tónleikaferðalag
í Bandaríkjunum
I Adapt er ein virk-
asta hljómsveit á
landinu. Í dag halda
þeir piltar í tón-
leikaferðalag til
Bandaríkjanna og
stendur til að spila
á einum 14 stöðum.
DV sló á þráðinn til
Birkis Fjalars Við-
arssonar, söngvara
hljómsveitarinnar.
HHH
I Adapt Halda til
Bandaríkjanna í dag.
Ætli við spilum ekki á einhverjum 14 stöðum í heildina og verðum þarna út í 17 daga,“ segir Birkir Fjalar Við-arsson, söngvari
hljómsveitarinnar I Adapt sem
heldur í tónleikaferð til Banda-
ríkjanna í dag. Förinni er heit-
ið til Baltimore, en þaðan verður
haldið til nálægra bæja og fylkja.
Meðal annars til Allentown, Bos-
ton, New York og Burlington.
Tónleikar hljómsveitarinnar ytra
verða flestir afar ólíkir og af öll-
um stærðargráðum. „Þetta er allt
frá því að rokka einhverjar sleezy
búllur og flotta tónleikaklúbba
yfir í að spila heima hjá fólki, úti
í garði, bílskúr eða kjallara,“ segir
Birkir hress. Það er ekki hlaupið
að því fyrir íslenska hljómsveit að
fara í tónleikaferðalag í Bandaríkj-
unum. Birkir segir að hljómsveitin
eigi í samskiptum við erlend bönd
og útgáfufyrirtæki, það sé tón-
leikaferðalaginu að þakka. „Ég hef
sjálfur flutt inn helling af bönd-
um frá Bandaríkjunum. Þannig
mynduðum við þessi sambönd.“
Með tvær nýjar plötur í
farteskinu
Tónleikaferðalagið er ætlað
til þess að kynna tvær nýjar út-
gáfur fá bandinu. Skífuna I Roast
Marshmallows in Church Fires,
en á þeirri plötu má líka finna
efni frá bandarísku harðkjarna-
sveitinni The Neon Hookers og
svo From Town To Town, sér-
staka smáplötu, svokallaða „túr-
útgáfu“ sem gefin er út eingöngu
fyrir ferðalagið.
I Adapt er þekkt fyrir bein-
skeytta texta sem fela oft í sér
harða samfélagsgagnrýni, áróð-
ur gegn hræsni stjórnvalda og
almenn læti. Ætlar hljómsveit-
in ekki að fara dult með skoðan-
ir sínar í ferðinni „Við segjum bara
fuck you við þá sem eiga það skil-
ið og slökum á með hinum. Mað-
ur rífur alveg kjaft óháð því hvar
maður er staddur.“
Duglegasta hljómsveit á
Íslandi
Bandaríkjaförin er langt frá
því fyrsta utanlandsför bands-
ins. Áður hafa þeir farið þrisvar
sinnum til meginlands Evrópu
og fjórum sinnum til Bretlands.
„Þá hefur verið mikil keyrsla, við
erum þá úti í tvær vikur í senn og
spilum á hverjum degi. „Förin til
Bandaríkjanna er þó örlítið meira
spennandi en fyrri ferðir og seg-
ir Birkir það vera vegna þess að
Bandaríkin séu heimaland harð-
kjarnans. „Þetta er meccað. Wash-
ington, New York og Boston. Þetta
er þar sem þetta byrjaði, hörð-
ustu slóðirnar, segir Birkir að lok-
um. Þeir sem vilja kynna sér tón-
list I Adapt eða komast að meiru
um tónleikaferð þeirra geta kynnt
sér málið á www.iadapt.net eða
myspace.com/iadapt.