Læknablaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 8
Rohypnol
(flunitrazepam)
Stuttur svæfitími
Góður, djúpur svefn
Upplýsingar um lyfið.
Innihald: Hver tafla inniheldur 1 mg flunitrazepam
Eiginleikar: Lyfiðhefur róandi verkun og auðveldar svefn. Auk þess dregur það úr kvíða og krömpum
og verkar vöðvaslakandi. Lyfiö frásogast hratt og vel frá meltingarvegi og nær hámarksþéttni i blóði
1- 2 klst eftir inntöku. Helmingunartimi lyfsins og helztu umbrotsefna þess er 20-30 klst.
Abendingar: Svefnleysi
Frábendingar: Myasthenia gravis.
Aukaverkanir: Aukaverkanir eru háöar skömmtum og tengjast einkum róandi og vöðvaslakandi
verkun lyfsins. Þreyta, syfja og máttleysi. Rugli og æsingi hefur verið lýst, einnig minnisleysi. Notkun
lyfsins hefur í för með sér ávanahættu.
Varuð: Vara ber sjúklinga við stjórnun vélknúinna ökutækja samtímis notkun lyfsins.
Milliverkanir: Lyfið eykur áhrif áfengis, svefnlyfja og annarra róandi lyfja. Getur aukið verkun
vöðvaslakandi lyfja svo sem kúrare og súxametóns.
Eikturverkanir: Mjög háir skammtar lyfsins geta valdið öndunarstöðvun (apnoe), meðvitundarleysi
og losti.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er 0,5-1 mg fyrir svefn, sem má auka i
2- 4 mg eftir þörfum hvers sjúklings. Lægri skammtar gilda einkum fyrir gamalt fólk.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar: 30 stk. (þynnupakkað).
ROHYPNOL er vörumerki
Einkaumboð og sölubirgðir:
<DnPUc\ Industriholmen59 ÆmJP STEFÁN
ROCHE > Jf/% THORARENSEN HF
X Danmark
Pósthólf 897, Reykjavík, Siðumula 32, Sími 86044