Læknablaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ 1985;71:59-67
59
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á ísafirði
24. og 25. ágúst 1984
FUNDARGERÐ
Aðalfundur Læknafélags fslands 1984 var
haldinn á fsafirði dagana 24. og 25. ágúst.
Fundurinn hófst kl. 13.00 hinn 24. ágúst með
því, að Samúel J. Samúelsson bauð fulltrúa
og gesti velkomna til ísafjarðar f.h. Lækna-
félags Vestfjarða, sem hafði veg og vanda af
undirbúningi fundarins.
Fundinn sátu eftirtaldir fulltrúar:
Frá Lœknafélagi Reykjavíkur: Árni B.
Stefánsson, Guðmundur I. Eyjólfsson, Gunn-
ar I. Gunnarsson, Haukar S. Magnússon,
Lúðvík Ólafsson, Pétur Lúðvígsson, Stefán
B. Matthíasson, Viðar Hjartarson, Vigfús
Magnússon, Þórður Harðarson, Þórður Þór-
kelsson og Þorkell Bjarnason. Frá Lœ-
knafélagi Vesturlands: Sigurbjörn Sveinsson.
Frá Lœknafélagi Vestjaröa: Samúel J.
Samúelsson. Frá Læknafélagi Norðvestur-
lands: Sigursteinn Guðmundsson. Frá Lœ-
knafelagi Akureyrar: Brynjólfur Ingvarsson,
Hjálmar Freysteinsson og Júlíus Gestsson.
Frá Læknafélagi Norðausturlands: Ingimar
S. Hjálmarsson. Frá Læknafélagi Austur-
lands: Stefán Þórarinsson. Frá Læknafélagi
Suðurlands: Arnór Egilsson. Frá F.Í.L.Í.S.:
Sveinn Magnússon.
Enginn fulltrúi var frá F.Í.L.Í.B.,
F.Í.L.Í.N.A. og F.Í.L.Í.Þ.Ý. Úr aðalstjórn
Læknafélags íslands sátu fundinn: Þorvaldur
Veigar Guðmundsson, formaður, Halldór
Steinsen, varaformaður, Kristján Eyjólfsson,
ritari, Jón Bjarni Þorsteinsson, gjaldkeri,
Kristófer Þorleifsson, Finnbogi Jakobsson og
Ólafur Z. Ólafsson meðstjórnendur. Haukur
Þórðarson var erlendis. Einnig sátu fundinn
Páll Þórðarson, framkvstj. læknafélaganna
og Friðrik Karlsson, framkvstj. Domus
Medica. Þorvaldur Veigar Guðmundsson,
formaður L.Í., setti síðan fundinn og bauð
sérstaklega velkomna gesti, sem voru
Matthias Bjarnason, heilbrigðismálaráð-
herra, Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri
heilbrigðismálaráðuneytis, Ólafur Ólafsson,
landlæknir, Sigurður S. Magnússon, verð-
andi forseti læknadeildar, Jón H. Alfreðsson,
formaður Sérfræðingafélags lækna, Ólafur
F. Mixa, formaður Félags íslenzkra heimilis-
Iækna, Margrét Oddsdóttir, fulltrúi F.U.L.,
og Pétur Pétursson, héraðslæknir Vestfjarða.
Formaður gaf síðan Matthíasi Bjarnasyni,
heilbrigðismálaráðherra, orðið.
Matthías greindi í upphafi máls síns frá
niðurstöðum nefndar, sem skipuð hafði verið
af ráðuneytinu til að áætla læknaþörf á
íslandi fram til aldamóta. Þar kom fram, að
miðað við forsendur nefndarinnar yrðu lækn-
ar á íslandi 1654 um aldamót. Væri þó óljóst,
hvað þessir læknar ættu að gera og hvort
þjóðin hefði efni á að láta þá starfa, en
landlæknisembættinu yrði falið að athuga
þessi mál nánar.
Um heilsugæzluna í landinu sagði
Matthías, að þar hefði markvisst uppbygg-
ingarstarf verið unnið, og heilsugæzlustöðva-
fyrirkomulagið hefði sýnt gildi sitt. Þá sagði
hann útgjöld vegna heilbrigðismála hérlendis
vera með því hæsta, sem gerðist í Evrópu.
Hann ræddi síðan nokkuð um niðurskurð á
fjárlögum til heilbrigðismála, sem orðið hefði
á sl. ári, og þær ráðstafanir, sem gripið var til.
Hann kvað litla mótstöðu vera gegn þeim hjá
fólki úti á landsbyggðinni. Ákveðið hefði
verið að festa kaup á tæki til hjartaþræðinga
og koma upp undirbúningsaðbúnaði fyrir
hjartaskurðlækningar. Nýlega hefði nefnd
um hjartaskurðlækningar skilaði áliti og væri
komið að ákvarðanatöku um það mál. Ættu
hjartaskurðlækningar að geta hafist hér á
landi eigi síðar en 1986, það væri fjárhagslega
hagkvæmt og þjóðhagslega ákjósanlegt.
Hjartaþræðingaaðstaða yrði tilbúin um eða
eftir næstu áramót.
Um fjárlög 1985 sagði Matthías m.a., að
vegna minnkaðrar þjóðarframleiðslu mundu
fjárveitingar til heilbrigðismála á næsta ári
ekki aukast, en forðast yrði frekari samdrátt.