Læknablaðið - 15.10.1985, Qupperneq 63
LÆKNABLAÐIÐ
283
Smásjárskoðun sýndi dæmigerðan vöxt
(pagetoid) afbrigðilegra fruma á yfirhúð
augnslímhúðar (sjá mynd 3), sem nefndur
hefur verið illkynja sortun (cancerous mela-
nosis).
UMRÆÐA
Hnúðlaga (nodular) sortuæxli eru um 25%
illkynja sortuæxla í augnslímhúð og eru oft
upprunnin í fæðingarblettum (nevi), en 75%
sortuæxla í augnslímhúð eru upprunnin í
ákominni sortun (primary acquired melano-
sis), sem síðar getur þróast í illkynja sortun (1,
2). Sjúklingum með slíka áunna sortun í
augnslímhúð þarf að fylgja vel eftir og að taka
myndir og sýni reglulega, þar sem um þriðja
hvert tilfelli verður að illkynja sortum með
26% dánartíðni og á það síðarnefnda einnig
við hnúðlaga sortuæxli (1).
Þessi æxli eru algengari hjá konum en
körlum, koma álíka oft fyrir í hægra og
vinstra auga. Sjúklingar eru oftast 50-60 ára.
Ólíkt sortuæxlum í æðu (choroidea), sem
dreifast blóðleiðina um líkamann, aðallega til
lifrarinnar, dreifast sortuæxli í augnslímhúð
aðallega eftir sogæðum, gjarnan fyrst í eitla
framan við eyru. Hafa meinvörp fundist í
öllum líkamshlutum (1) og allt að 14 árum
eftir að upprunalegt æxli var fjarlægt (3).
Horfur sjúklinga með illkynja sortuæxli í
augnslímhúð eru taldar verri, ef þykkt æxlis er
meira en 0,8 mm og ef um er að ræða
dæmigerða vaxtarmynd (pagetoid) með af-
brigðilegum frumum, miklum fjölda kjarn-
deilinga og frábrigðum í sortufrumum, en
e.t.v. verstar, ef æxlið er upprunnið í
augnslímhúð augnloka (1, 4), en allir þessir
þættir eru tengdir aukinni dánartíðni.
Horfur eru taldar betri ef æxlið er upp-
runnið í slímhúð augnhvels, sem næst glæru-
jaðri og einnig ef mikil hnattfrumuíferð er til
staðar nærri æxlisvexti.
Ef illkynja breytingar hafa orðið i
augnslímhúð augnloka og/eða augnhvolfs, er
yfirleitt talið rétt, að fjarlægja með
skurðaðgerð innihald augntóftar, stundum
ásamt hluta af augnloki (5).
Sortuæxli á slímhúð augnhvels og glæru-
jaðri eru oft geislanæm (6). Flestir augn-
læknar hallast þó að því, að fjarlægja þau
með skurðaðgerð.
Hötundar þakka augnlæknunum Úlfari Þóröarsyni, Pétri
Trausiasyni og Heröi Þorleifssyni, sem einnig stunduðu þessa
sjúklinga á ýmsum tímum.
Mynd 1. Sortuœxli á slimhúð augnloks og illkynja
sortun á slimhúð augnhvelis.
Mynd 2. iiikynja sortuœxii þekjuiíkri (epitheioid)
frutnugerð og íferð hnattfruma (sjá ör). Stœkkað 160
sinnttm.
Mynd 3. Illkynja sortun með afbrigðilegum sortu-
fruntum alveg út undir yfirborð yfirhúðar augnsiímhúðar
(sjá ör).