Læknablaðið - 15.05.1986, Síða 14
122
LÆKNABLAÐIÐ
leitaði ég til hans. Þarna stóð ég frammi fyrir
stórmerkilegri uppgötvun: Gat hugsazt, að
héraðslæknir í afskekktri sveit, hefði orðið
fyrstur manna til þess að beita þessu undra-
lyfi hér á landi? Árið eftir stóð nefnilega í
skýrslum frá Akureyri: »Sjúklingur dó vegna
þess að insúlínið kom of seint frá Siglufirði.«
Var hugsanlegt að mér hefði yfirsézt?
Snorri Páll leit á mig sínum mildu augum
og brosti. Jú, hann mundi vel eftir þessum
pilti með sykursýkina og siðan bætti hann
við: »Pabbi stundaði hann heima hjá okk-
ur.«
Þetta kvöld sagði Snorri Páll mér tvennt:
Annars vegar af lestrarvenjum Snorra
Halldórssonar, héraðslæknis í Síðuhéraði og
því, hvernig stóð á því, að Snorri eldri og
Valtýr Albertsson urðu nær samtímis til að
hefja insúlínnotkun hérlendis. Þurfti ég ekki
annað en að renna augum um veggi, til þess
að sjá, hvaðan Snorri yngri hafði lestrar-
venjurnar.
Hins vegar sagði hann mér frá meðferð
þeirri, sem faðir hans beitti við að lækna
fyrrnefndan sykursýkissjúkling. Kom þar
fram, að áhugi Snorra Páls á manneld-
ismálum hafði vaknað þegar á ung-
lingsárum.
Snorri Páll var kallaður til starfs í Mann-
eldisráði fyrir tólf árum og síðustu níu árin
hefur hann verið formaður þess. Vita allir
sem til þekkja, að þar hefir oft þurft að sigla
krappan sjó, þar sem nauðsynlegt er að taka
mið af vísindalegum kennileitum og láta ekki
ginnast af þeim bálum sem kreddumenn
kynda á ströndinni.
Mörg trúnaðarstörf önnur hafa Snorra
Páli verið falin af læknasamtökunum, nú
síðast formennska í Yfirlæknafélaginu. Hins
vegar er hér hvorki staður né stund til frekari
upptalninga, né heldur til þess að telja upp
öll þau opinber störf önnur, sem Snorra Páli
hafa verið falin. Þetta má allt finna í nýlegu
Læknatali.
Læknirinn og kennarinn hlýtur að vera
einn og sami maðurinn. Okkur gleymist hins
vegar stundum, að upphafleg merking
orðsins doktor er kennari. Þegar meta skal
kennarann verður matið ávallt mjög hug-
lægt. Fram að þessu hefi ég geta haldið mig
við alhæfingar og það sem ég hefi sjálfur séð
og sannreynt. Þegar ég nú segi, að áður en
ég kom í miðhluta, fór orð af Snorra Páli
sem kennara og að í mínum árgangi var
samþykkt samhljóða, að hann væri góður
kennari, þá veit ég með það sama, að bæri