Læknablaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 36
136
LÆKNABLAÐIÐ
Rætt hafi verið um að fella þessa þjónustu
niður, en ekki hafi komið formleg tillaga þar
að lútandi.
Atli Dagbjartsson spurði hvers vegna L.í.
hefði greitt skuldir Læknaþjónustunnar sf.
Þorvaldur Veigar gerði grein fyrir, að
þetta hafi verið talinn »herkostnaður«
kjarabaráttu lækna, sem kæmi öllum til
góða og að á formannaráðstefnu hafi menn
verið sammála um að greiða þessa skuld og
stjórn L.í. tekið lokaákvörðun í framhaldi af
því.
SKÝRSLA STJÓRNAR DOMUS MEDICA
Arinbjörn Kolbeinsson hóf tölu sína á
sögulegu yfirliti. Fyrstu hugmyndir að bygg
ingu húss hafi komið fram á árunum milli
1920 og 30. Forsendur hafi skapast eftir
samninga um sérfræðiþjónustu kringum
1960. Þá hafi 27 læknar verið tilbúnir að
leggja fram stofnframlög læknastofa. Aðal-
hvatamaður og driffjöður byggingar hússins
hafi verið Bjarni Bjarnason. Fjármögnun
hafi verið stofnframlög lækna til stofa,
framlag frá læknafélögunum, lán frá lækna-
félögunum af aukaskatti á lækna í landinu
og lánafyrirgreiðsla Búnðarbankans.
í raun hafi húsið verið mest allt i skuld, er
það var tekið í notkun. Því þurfti að setja
upp rekstur sem gaf arð. Hafi það verið í
formi veitingareksturs og nú sé svo komið að
Domus Medica hafi greitt upp allar sínar
skuldir á síðasta ári. Þakkaði Arinbjörn
framlag Friðriks Karlssonar, framkvæmda-
stjóra, í gegnum árin í því samþandi, en hann
hefur verið framkvæmdastjóri frá upphafi.
Arinbjörn gat þess síðan, að rekstur s.l.
árs hefði verið með hefðbundnu sniði. Út-
drætti úr ársreikningum 1984 hafði verið
deift meðal fundarmanna og vísast til hans.
Hann gat þess í lokin, að nú væru forsendur
fyrir að draga úr veitingarekstri og nota sal
inn meira fyrir læknafundi og aðra skylda
starfsemi.
Pétur Lúðvigsson, formaður fræðslu-
nefndar læknafélaganna, lýsti ánægju sinni
ef Domus Medica yrði nú meira til reiðu fyrir
fundarstarfsemi. Lýsti hann þó vand-
kvæðum á húsakynnum og spurði um hugs-
anlegar breytingar.
Arinbjörn taldi stjórn Domus Medica
jákvæða fyrir nauðsynlegum breytingum á
húsakynnum.
Friðrik Karlsson, framkvæmdastjóri, reif
aði lauslega hugmyndir sínar að breytingum
á salnum.
Þorvaldur Veigar færði Friðriki Karlssyni
sérstakar þakkir L.í. fyrir vinnu hans í þágu
þessarar stofnunar.
SKÝRSLA STJÓRNAR EKKNASJÓÐS
Páll Þórðarson gerði grein fyrir stöðu
sjóðsins og vitnaði í skýrslu stjórnar L.í.
(þls. 35) varðandi úthlutun úr sjóðnum.
Lagði hann fram reikningsyfirlit til skoðunar
fyrir fundarmenn.
SKÝRSLA STJÓRNAR LÍFEYRISSJÓÐS
LÆKNA
Páll Þórðarson vitnaði í skýrslu stjórnar L.í.
(bls. 34), sem líta megi á sem skýrslu stjórnar
sjóðsins. Minnti hann jafnframt á aðalfund
Lifeyrissjóðs lækna, sem haldinn yrði daginn
eftir, 24. september.
TILLÖGUR TIL ÁLYKTANA OG
LAGABREYTINGA
í lok fundarins voru reifaðar tillögur til ál-
yktana, samtals 14. Var fulltrúum síðan
skipt í starfshópa til að fjalla um framkom-
nar ályktunartillögur og fundi síðan frestað
til næsta dags.
Fundur hófst aftur kl. 9 að morgni
þriðjudags og skipaði formaður, Þorvaldur
Veigar Guðmundsson, Viðar Hjartarson
fundarstjóra og Jón Steinar Jónsson fund-
arritara.
I. ÁLIT STARFSHÓPA OG
AFGREIÐSLA ÁLYKTANA OG
TILLAGNA, SEM FYRIR FUNDINUM
LIGGJA
Talsmenn hvers starfshóps skýrðu frá starfi
þeirra og var síðan hver ályktun fyrir sig
tekin til umræðu og afgreidd.
Viðar Hjartarson hafði orð fyrir fyrsta
starfshóp.
a. Tillögur til lagabreytinga frá stjórn L.í.
Hafði starfshópurinn ekkert við þær að
athuga, né heldur fundurinn og voru
tillögurnar samþykktar samhljóða. Eru það
breytingar á 15. grein, 7. tölulið og þar mun
standa í stað »skýrsla stjórnar Ekknasjóðs«,
»kynntir ársreikningar Ekknasjóðs«, í 15.
grein 10. tölulið stendur í stað »kosning
fastanefnda«, »kosning Siðanefndar skv.
20. gr.« í 21. grein fellur niður 2. málslið-