Læknablaðið - 15.02.1987, Page 24
Asýran ber árangur!
Asýran (ranitidín) gegn sármyndun í maga og skeifugöm
TÖFLUR; A 02 B A 02 Hver tafla innihcldur: Ranitidinum INN, klórið, sam-
svarandi Ranitidinum INN 150 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar histamínviðtæki (H^)
og dregur þannig úr myndun saltsýru í maga. Eftir inntöku vara áhrif lyfsins a.m.k.
8 klst. Helmingunartími í blóði er 2-3 klst. Ábcndingar: Sársjúkdómur í skcifugörn
og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis (reflux oesophagitis). Zollinger-Ellison
syndrome. Æskilegt cr, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Varnandi
meðfcrð við endurtcknu sári í skeifugörn. Til að hindra sármyndun í maga og
skcifugörn vegna streitu hjá mikið veikum sjúklingum. Varnandi meðfcrð viö
endurteknum blæðingum frá maga cða skeifugörn. Frábendingar: Ekki er ráðlegt
að gcfa lyfið vanfærum eða mjólkandi konum ncma brýn ástæða sé til. Ofnæmi fyrir
lyfinu. Aukaverkanir: Þreyta, höfuðverkur, svimi, niðurgangur eða hægöatregöa.
Ofna.’misviðbrögð (ofnæmislost, útbrot, angioncurotiskt ödem, samdráttur í
bcrkjum) koma fyrir einstaka sinnum. Fækkun á hvítum blóðkornum cða blóðflög-
um hafa sést nokkrum sinnum. Tímabundnar breytingar á lifrarstarfsemi. Eitur-
verkanir: Mjög lítil reynsla er enn komin af eiturverkunum ranitidíns. Einkenni:
Hægur hjartsláttur og andþrengsli. Meðferð: Magatæming, lyfjakol. Reyna má
atrópín viö hægum hjartslætti. Að öðru leyti symtómatísk meðferð. Milliverkanir:
Ekki þckktar. Varúð: Við nýrnabilun getur þurft að gefa lægri skammta lyfsins.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Við sársjúkdómi í skeifugörn og maga: 150 mg
tvisvar á dag eða 300 mg að kvöldi. Meðferðin á að standa í a.m.k. 4 vikur, jafnvel
þótt einkenni hverfi fyrr. Við reflux oesophagitis: 150 mg tvisvar á dag í 8 vikur. Við
Zollinger-Ellison syndrome: í upphafi 150 mg þrisvar á dag. Ekki er mælt með
stærri dagskömmtum en 900 mg. Varnandi meðferð við sári i skeifugörn: 150 mg
fyrir svefn. Lyfið er ekki œtlað börnum.
s -j, Pakkningar: Töflur 150 mg:
M 18 stk.; 60 stk.;
' 120 stk. (þynnup.
A'
REYKJAVÍKURVEGI 78
222 HAFNARFJÖRÐUR