Selfoss - 29.08.2013, Blaðsíða 10

Selfoss - 29.08.2013, Blaðsíða 10
10 29. ágúst 2013 RaftækjaúRval 15% afsláttur af raftækjum þegar þau eru keypt með innréttingu. Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 - Lokað á laugardögum í sumar ÞvottahúsBaðherbergi Fataskápar Allt í skúffurnar MIkið úrval af skápahurðum friform.is við hönnum og teiknum fyRiR þig Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði. þitt eR valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. 30 % afSlÁttuR út ÁgúSt elDavÉlaR - ofnaR - helluBoRð - viftuR & hÁfaR - uPPþvottavÉlaR - kæliSkÁPaR SÍðSumaRtilBoð 30% afSlÁttuR af öllum innRÉttingum út ÁgúSt fjölBReytt úRval af huRðum, fRamhliðum, klæðningum og einingum, gefa þÉR enDalauSa möguleika Á að Setja Saman þitt eigið Rými. Safnahelgin undirbúin Safnahelgin er árlegur við-burður á Suðurlandi. Hún verður 1.–3. nóvember nk. Fyrsti fundur til að skipuleggja hátíðina verður haldinn sam- hliða aðalfundi Samtaka safna á Suðurlandi, miðvikudaginn 11. september í Vestmannaeyjum. Þetta er í fyrsta skipti sem haldinn er fundur á vegum samtakanna úti í Eyjum, en þangað var farið í menningarferð þegar undirbún- ingur að myndun samtakanna stóð sem hæst. Meðfylgjandi mynd var tekin á Safnahelgi í fyrra. Davíð Þór Guð- laugsson undirbýr ljósmyndasýn- ingu í Þorlákshöfn. 2 á vinnualdri fyrir hvern einn á ellilífeyri árið 2060 - Í dag eru hlutföllin 1 á ellilífeyrisaldri á móti 4-5 á vinnualdri Gríðarlegar breytingar munu eiga sér stað á næstu ára-tugum sé litið til þess mikla fjölda sem fer á ellilífeyrisaldur. Hag- stofa Íslands spáir því að þeim sem eru 67 ára og eldri muni fjölga um 60 þúsund á næstu áratugum. Þeir verði orðnir rúmlega 97 þúsund árið 2060 en þeir eru í dag 36 þúsund. Enginn annar aldurshópur vaxi viðlíka á tímabilinu. 67 ára og eldri verða orðnir 22,6% af heildarmann- fjölda árið 2060 en voru 11,2% 1. janúar 2013. Það stefnir í að fyrir hverja eina manneskju á ellilífeyrisaldri komi tveir einstaklingar á vinnualdri. Í dag er það svo að fyrir hvern einn sem hefur náð ellilífeyrisaldri eru tæplega fimm á vinnualdri. Hlutfall þeirra sem vegna ungs aldurs standa utan vinnumarkaðarins mun ekki breytast jafn mikið og sá hópur sem nær ellilífeyrisaldri. Stúlkubarn sem fæðist í dag mun geta vænst þess að verða 84 ára og drengur tæplega 81 árs. Drengur- inn sem fæðist eftir miðja öld (árið 2060) getur vænst þess að verða 6 árum eldri og stúlkubarnið 4,3 árum eldri. Hvernig þjóðin nær því að halda sömu lífsgæðum þar sem færri vinna hlutfallslega miðað við þá sem eru utan vinnualdurs: það er önnur spurning sem svara þarf. Kannski þurfum við að byrja að skilgreina lífsgæði upp á nýtt. Eru það ekki lífs- gæði að geta t.d. notið óskerts lands? Hagvöxturinn í dag mælir eingöngu „veraldleg“ gæði mæld í krónum og aurum. Einn og sami mælikvarði á alla, hvar sem er á landi okkar. Er það ekki einfaldur mælikvarði? ÞHH Afmæliskaka í sundlauginni í dag Það er frítt í sund í dag fimmtudaginn 29.ágúst í tilefni þess að sundlaugin á Stokkseyri er orðin tvítug. Boð- ið er upp á afmælisköku og tón- list (ofan?) í sundlauginni milli kl. 16:30–20:30. Og frítt oní. Það er Íþrótta- og menn- ingarnefnd Sveitar- félagsins Árborgar sem býður í afmælið. Íslensk farfugla- heimili í efsta sæti Þrjú farfulglaheimili á Suður-landi hafa bæst í hóp grænna farfuglaheimila: Gaulverja- skóli, Norður-Vík og farfuglaheim- ilið á Vagnsstöðum í Suðursveit. Viðurkenningunni fylgja þau réttindi að mega nota umhverfis- merki samtakanna í kynningarefni sínu. Gestir farfuglaheimilanna kunna mjög vel að meta umhverfisstarf- ið sem fram fer á heimilunum. Allir þeir sem bóka gistingu gegn- um bókunarvél alþjóðasamtaka Farfuglaheimilanna fá tækifæri til þess að gefa umsögn um dvöl sína á staðnum. Íslensk farfuglaheimili eru í dag í efsta sæti á heimslistanum yfir þær þjóðir sem fá bestu einkunn fyrir umhverfisstarfið. Vagnsstaðir. Farfuglaheimilið í Vík. gaulverjaskóli. Auglýsingasími: 578 1190 S U Ð U R L A N D

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.