Selfoss - 29.08.2013, Qupperneq 12

Selfoss - 29.08.2013, Qupperneq 12
12 29. ágúst 2013 Það er árlegt fyrirbæri í lok ágúst að öll blöð og tímarit fyllast af heilsupistlum. Mér finnst einmitt að ég komi alltaf hressari undan sumri en vetri. Stundum velti ég fyrir mér hvernig ég yrði í útliti - andlegri og líkam- legri líðan ef ég færi eftir öllum þeim ábendingum sem þar koma fram. Túrmerik er kryddið í dag og hef- ur verið í umræðunni undanfarið sem það hollasta sem til er. Þegar ég var að byrja að elda og spá í mat- argerð var túrmerik oft nefnt sem staðgengill fyrir saffran sem er mjög dýrt krydd. Þetta var merkilegt því að túrmerik er unnið úr rót sem líkist engiferrót en saffran úr þráð- um úr blómum sem eru sjaldgæf og vandmeðfarin og því mjög dýrt krydd. Það sem sameinar þessi krydd er liturinn. Gulur sem minnir á sól og hita. Notkun túrmeriks (Curcuma longa) sem krydd- og lækninga- jurtar er ævagömul og verið mjög mikið notað á Indlandi í matargerð. Túrmerik inniheldur virka efnið curcumin sem hefur sterk bólgu- eyðandi og andoxandi áhrif. Á vefnum spegill.is er listi yfir helsu gæði túrmerik. Það heitir túrmerik og virðist að öllu leyti vera snilldarkrydd. Það er upp- runnið frá Indlandi og mikið notað í indverskri matargerð. Hér á landi má meðal annars kaupa túrmerik í töfluformi í heilsubúðum og þá sem bólgueyðandi efni. Lestu um virkni þessa galdrameðals hér á eftir... 1. Það er náttúrulega sótthreinsandi og bakteríudrepandi; gagnlegt í sótthreinsun á skurðum og bruna. 2. Þegar þess er neytt með blómkáli, hefur verið sýnt fram á að það geti komið í veg fyrir krabbamein í blöðruhálskirtli og stöðvað vöxt krabbameins í blöðruhálskirtli. 3. Sýnt hefur verið fram á að kryddið komi í veg fyrir að brjóstakrabba- mein berist til lungna (tilraun gerð á músum). 4. Getur komið í veg fyrir sortuæxli og valdið því að fyrirliggjandi sortu- æxlafrumur fremji sjálfsmorð. 5 . Dregur úr hættu á hvítblæði hjá ungum einstaklingum. 6. Afeitrar lifrina á náttúrulegan hátt. 7. Getur komið í veg fyrir og hægt á þróun sjúkdómsins Alzheimer með því að hindra uppbyggingu ákveðins efnis í heila. 8. Getur komið í veg fyrir meinvörp af völdum mismunandi forma krabbameins. 9. Öflugt náttúrulegt bólgueyðandi efni sem virkar eins og mörg önnur bólgueyðandi lyf, en án aukaverk- ana. 10. Hefur sýnt að von er til þess að það hægi á framvindu MS í músum. 11. Náttúruleg verkjastillandi áhrif. 12. Getur hjálpað til við niðurbrot á fitu og þyngdarstjórnun. 13. Hefur lengi verið notað í kín- verskri læknisfræði sem meðferð við þunglyndi. 14. Vegna bólgueyðandi eiginleika þess, er það náttúruleg meðferð við liðagigt. 15. Eykur áhrif chemo lyfsins paklí- taxels og dregur úr aukaverkunum þess. 16. Efnilegar rannsóknir eru í gangi um áhrif túrmerik á krabbamein í brisi. 17. Rannsóknir standa yfir á jákvæð- um áhrifum túrmerik á mergæxli. 18. Sýnt hefur verið fram á kryddið geti stöðvað vöxt nýrra æða í æxl- um. 19. Sár gróa hraðar og kryddið að- stoðar í endurmyndun skemmdrar húðar. 20. Getur hjálpað við meðferð á psoriasis og öðrum bólgu húð- sjúkdómum. Í öðrum pislum er einnig fullyrt að túrmerík geti læknað þunglyndi. Ég ákvað því að mánudagsfisk- urinn yrði túrmerikfiskur. Bæði væri hann mjög hollur og svo fallega gulur að sólin kæmi inn í hjartað í regnúðanum. Í fiskbúðinni var fínn nýr karfi en hann er með því ódýrara þar. Það má nota hvaða fisk sem er en gott að hann sé þéttur í sér. Skerið fiskinn í bita og kreistið yfir hann sítrónusafa. Látið hann bíða meðan sósan er búin til. Sneiðið niður 1-2 lauka, hvítlauk eftir smekk, smá bita af engiferrót og látið mýkjast aðeins í góðri olíu á pönnu. Bætið við 1 tsk. af reyktri papríku, 2 stk. af túrmerík, 1 tsk. kóriander, nokkur lauf af limelaufi. Látið þetta malla aðeins við lágan hita. Bætið síðan við dós af kókós- mjólk og aðeins vatni. Smakkið síðan til með salti og pipar. Þegar komin er sátt við sósuna er fiskurinn settur út í og látin malla á lágum hita í nokkrar mínútur. Klippið yfir t.d. ferskt kóríander eða steinselju. Með þessu er tilvalið að hafa hrís- grjón, brauð eða bara gott salat. Nú er salatið svo yndislegt úr garðinum eða frá þeirri frábæru búð sem er Fjallkonan – sælkerabúð í gamla bankanum á Selfossi. Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu. Kveðja, KS Að hætti hússins Kristjana Sigmundsdóttir kristjanasig@simnet.is TÚRMERIK-FISKUR

x

Selfoss

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.