Vesturland - 28.02.2013, Síða 14
14 28. febrúar 2013
Upplýsingar og pantanir erpur@simnet.is eða í síma 868-0357
Ísterta frá Rjómabúinu
Erpsstöðum í fermingarveisluna.
Úrval bragðtegunda.
Algert kjaftæði!
Sveitarstjórn Dalabyggðar:
Framkvæmdaleyfi veitt
vegna brúar yfir Reykjadalsá
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt að gefa út fram-kvæmdaleyfi að fengnum með-
mælum Skipulagsstofnunar vegna
byggingar nýrrar tvíbreiðrar brúar
á Reykjadalsá ásamt endurbyggingu
Vestfjarðarvegar um brúna og breytinga
á Fellsendavegi og Hlíðarvegi. Nýja
brúin liggur um 40 m frá eldri brú
og efni til vegagerðar verður tekið
úr núverandi vegi og úr námum sem
skilgreindar eru á aðalskipulagi Dala-
byggðar 2004-2016. Fyrir liggur jákvæð
umsögn Veiðimálastofnunar og heimild
Fiskistofu. Vegagerðin hefur leitað um-
sagnar heilbrigðisfulltrúa Dalabyggðar
og lítur svo á að framkvæmdarsvæðið
falli ekki undir vatnsverndarsvæði.
Sveitarstjórn fellst á sjónarmið Vega-
gerðarinnar varðandi það að fram-
kvæmdasvæði falli ekki undir vatns-
verndarsvæði þar sem ósamræmi er
milli uppdráttar og greinargerðar að-
alskipulags og að vatnsból Fellsenda
hefur að auki verið fært frá því að að-
alskipulagið var unnið.
GlöGGt er Gests auGað
Volvo kryppa frá Volvo Personvagnar-Svíþjóð. Þessir bílar voru framleiddir
frá 1943-1966 í aðeins mismunandi útfærslum (PV444 og PV544). fyrsta gerð
þessa bíls var með fjögurra strokka B4B vél 1400 sem var aðeins 40 hestöfl
og var hámarkshraði 125 km/klst. Stöðugt var unnið að stækkun vélarinnar
og þegar framleiðslu var hætt var komin B16 vél sem gaf hvorki meira en né
minna en 60 hestöfl.
Trabant frá VeB Sachering í Seickau í austur Þýskalandi. alls voru framleiddir tæplega 3,1 milljón svona bíla á árinum
1957-1991. Lengst af voru þeir með 600 rúmsentimtra vél , tveggja strokka tvígengisvél. Hann var valinn af tímaritnu
Time, einn af fimmtíu verstu bíltegundum sem framleiddar hafa verið.
arið 1989, eftir hrun kommúnismans var ný vél frá Volkwagen sett í þennan bíl, VW Polo 1,0L fjögurra strokka.
framleiðslunni var fljótlega hætt eftir það.
fÍaT 127 frá fIaT á Ítalíu. Þessir bílar voru framleiddir á árunum 1971-1983. fyrirmyndin var fíat 850 en 127 bíllinn
var mun nútímalegri. Hann var valinn bíll ársins í evrópu 1972 og var í mörg ár einn mest seldi bíllinn í evrópu. Hann
var lengst af búinn 900 rúmsentimetra fjögurra strokka vél sem gaf af sér 44 hestöfl en undir lokin var hægt að fá
þá með 1300 vél og var hún 74 hestöfl. Sá bíll sem tók við af fÍaT 127 var fÍaT Uno.
Akranes:
Bílar liðinna tíma
Án efa hafa öll sveitarfélög í landinu sinn sjarma, hvert auðvitað á sinn hátt. Ágætur
lesandi Vesturlands blaðs sendi á rit-
stjórnina þessar myndir af þremur
eldri bílum sem hann rakst á á ferð
sinni um Akraneskaupstað, bílum sem
eru orðnir sjaldséðir í það að minnsta í
höfuðborginni. Þetta vakti hjá honum
ljúfar minningar um gamla tíma.
Til gamans birtum við þessar
myndir en þær eru allar teknar á
Akranesi. Nú er það nostalgian í al-
gleymingi og upprifjun gamalla ljúfra
stunda. Það er oft ljúft að hugsa til
genginna tíma!