Reykjanes - 10.01.2013, Page 4

Reykjanes - 10.01.2013, Page 4
4 10. janúar 2013 Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokki ég mun berjASt með FóLKinu í LAndinu Alþingiskosningar nálgast. Margir láta í sér heyra á vett-vangi stjórnmálanna og margt er gagnrýnt og mörgu lofað. Það er mikið atriði að kjósendur geti fengið skýr svör frá frambjóðendum hvaða skoðun þeir hafa og hvernig þeir ætli að vinna að málunum á Alþingi. Reykjanes mun í næstu blöðum óska eftir skýrum svörum frá þingmönnum kjördæmisins og þingmanns kandidöt- um. 1. Vilt þú að álver rísi í Helguvík? , hvað telur þú að þú getir best gert til að það verði – skýr dæmi um hvað þú getur gert! Já ég vil að álver í Helguvík rísi og hefji starfsemi strax og auka þannig atvinnuþátttöku fólks og skapa vel launuð störf á Suðurnesjum! Sem bæjarstjóri í Garði var ég í for- ystusveit þeirra sem börðust fyrir því að álver í Helguvík og Garði risi. Frá því að ég lét af starfi bæjarstjóra hef ég einnig tekið þátt í að vinna málinu brautar- gengi. Margar blaðagreinar og viðtöl á liðnum árum bera vitni um að ég hef gert meira en að tala um álver, heldur lagt mitt af mörkum á ýmsan hátt. Það mun ég gera áfram og leggja mig fram um að nýta þau tækifæri sem ég fæ til að hafa áhrif á verkefnið og framgang þess. Ég hef eins og fleiri bent á þann þjóðhagslega ávinning sem af álverinu hlýst. Engin ein framkvæmd í landinu mun hafa eins jákvæð áhrif á efnahag landsins og álverið í Helguvík. Ekki eru dæmi um slík áhrif í öðrum hag- kerfum í kringum okkur af einstakri framkvæmd. Hvaða þjóðfélag hefur efni á að láta annað eins tækifæri líða framhjá sér á meðan þúsundir manna skortir trygga atvinnu? Álverið mun skapa 400 störf auk 500 afleiddra starfa. Ef 70% þeirra starfa koma í hlut íbúa á Suðurnesjum fá rúmlega 700 manns vel launuð störf til framtíðar og tekj- ur sveitarfélaganna aukast hratt. Hver hefur efni á því að láta slík störf bíða? Framleiðsla og verðmætasköpun til útflutnings er eina leiðin út úr krepp- unni og undirstaða öflugs atvinnulífs sem aftur er grundvöllur nýsköpunar, bættrar heilbrigðisþjónustu, menntun- ar og velmegunar á íslandi. Það verða engin loforð gefin um bættan hag nema hjól atvinnulífsins fari af stað og við framleiðum okkur út úr kreppunni! Ég er í góðu sambandi við forystu- menn HS orku hf. og Norðuráls sem reglulega hafa upplýst mig um stöð- una. Auk þess hef ég lagt málinu lið á ýmsan annan hátt og mun berjast fyrir þessu verkefni áfram. Suðurnesjamenn þekkja störfin mín og þurfa ekki að efast um að ég legg mig fram við ver- kefnið þar til það er í höfn. 2. Vilt þú að raflínur verði lagðar í lofti til Suðurnesja? Hvað telur þú að þú getir best gert til að það verði – skýr dæmi um hvað þú getur gert! Já, ég vil að loftlínur verði lagðar sem fyrst svo tryggja megi örugga orku- afhendingu til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum! Þetta er ein grunn- forsenda þess að skapa fjölbreytt störf á Suðurnesjum. Án nægrar öruggrar orku gerist lítið í atvinnumálum! Það liggur ljóst fyrir að auka þarf flutningsgetu og öryggi í afhendingu orku til atvinnulífs og heimila á Suðurnesjum. Það verður ekki gert nema með öflugri línum til svæðis- ins. Sveitarfélög og opinberir aðilar hafa samþykkt að efla veitukerfið svo koma megi raforku með öruggum hætti til álvers í Helguvík og Garði. Ég er náttúrunnandi og meðvitaður um umhverfi mitt og tel því loftlínur mun skárri kost en jarðstrengi. Lagning jarð- strengja krefst allt að 60m breiðs ruðn- ing í jörðu, sem mun rista djúpt sár í náttúru Reykjaness vestur og norður með öllu nesinu. Loftlína er afturkræf framkvæmd að mestu en jarðstrengur óafturkræf framkvæmd. Þarfir mann- lífs og atvinnulífs til nútíma þæginda og framleiðslu kalla á raforku. Raforku verður ekki komið til fyrirtækja og heimila án fórna. Tími grútarlampa og hestvanga er lögnu liðinn! Skýrir samningar um uppbyggingu álvers, orkuvera og atvinnulífs á Suðurnesjum grundvallast á lagn- ingu raforkulína og aukins raforku- flutnings til Suðurnesja og frá þeim. Ég veit að þeir samningar standa og því ætti ekki að vera þörf á sérstakri aðkomu þingmanna að málinu. Sem þingmaður mun ég leggja áherslu á þessa framkvæmd og að hún fari í gang sem allra fyrst. Ég vil minna aftur á að línulagnir og uppbygging orkufreks iðnaðar á Suðurnesjum kalla á 10.000 árstörf þegar framkvæmdir fara af stað. Ekkert land í veröldinni hefur efni á því að halda framkvæmdum af slíkri stærðargráðu í frystingu! Afleiðing þess að nýta ekki þetta tækifæri er brottflutningur þúsunda iðnaðar- manna, tæknimanna og fjölskyldna þeirra með tilheyrandi tekjulækkun íslenskra heimila, fyrirtækja og rík- issjóðs. Ég mun vinna að því að snúa þessari óheillaþróun við! 3. Vilt þú að Kísilver rísi í Helguvík? Hvað telur þú að þú getir best gert til að það verði – skýr dæmi um hvað þú getur gert! Já, ég vil að kísilver rísi í Helguvík! Þegar hafa verið undirritaðir samn- ingar um uppbyggingu kísilvers í Helguvík. Þá samninga hafa fjármála- ráðherra, HS Orka, Reykjanesbær og fleiri undirritað við byggingaraðila kís- ilverksmiðjunnar. Verkefnið er í þeirra höndum og ábyrgðin þeirra að koma því af stað. Þegar verkefninu er lokið og kísilverið komið í gang mun það skapa 90 störf auk afleiddra starfa. Ég mun sem þingmaður leggja verkefninu lið og greiða fyrir því á allan þann hátt sem ég get. Ef ég hefði lausn á töfum verkefnisins væri ég löngu búinn að leysa málið. 4. Vilt þú að samkeppnisumhverfi gagna- vera verði styrkt hér á landi? Hvað telur þú að þú getir best gert til að þín skoðun verði ofan á – skýr dæmi um hvað þú getur gert! Já, ég vil að samkeppnisumhverfi gagnavera verði styrkt mikið svo laða megi fyrirtæki hingað með umhverfi- svæna starfsemi. Við verðum að vera samkeppnishæf við önnur lönd! Almennt hef ég sagt að gagnaver og sambærilegur samkeppnisrekstur búi við sömu skilyrði á Íslandi og í öðrum löndum hvað varðar skatta og skyldur. Við höfum ódýra umhverfisvæna orku að bjóða og eigum að nýta okkur það sem forskot. Fyrirtæki um allan heim vilja nýta umhverfisvæna orkugjafa í rekstri sínum og við eigum að leggja áherslu á að ná slíkum fyrirtækjum til okkar. Hlutverk þingmannsins er að skapa góða almenna umgjörð innlendra- sem erlendra fyrirtækja til reksturs í landinu þar sem skattar eru sanngjarnir. Stækkun skattstofna skilar okkur miklu meiru en hækkun skatta á stöðugt fækkandi fjölskyldur og fyrirtæki. 5. Vilt þú að niðurstöður matshóps um virkjanakosti verði samþykktar? Hvað telur þú að þú getir best gert til að þín skoðun verði ofan á – skýr dæmi um hvað þú getur gert! Já, ég vil að niðurstaða hópsins verði virt og farið eftir tillögum hans að forgangsröðun verkefna. Öfgasinnuð flokkapólitík má ekki svipta okkur umhverfisvænni orkuframleiðslu fyr- ir öflugt atvinnulíf á Íslandi í nútíð og framtíð! Rammaáætlun var niðurstaða þverpólitískrar sérfræðinganefndar og faglegrar verkefnastjórnar, sem fékk það verkefni að vinna tillögur sem gætu orðið grundvöllur að þverpólitískri sátt í þjóðfélaginu um orkunýtingarkosti okkar Íslendinga. Ríkisstjórn Samfylk- ingar og VG hefur stofnað vinnu hóps- ins í hættu. Í umsögn Orkustofnunar um þingmál ríkisstjórnarinnar vegna Rammaáætlunar segir „hagkvæmustu og best rannsökuðu virkjanakostir eru fluttir úr orkunýtingarflokki í biðflokk“ Hér er átt við þrjár vatnsaflsvirkjanir í Þjórsá, Hvammsvirkjun, Holtavirkj- un og Urriðafossvirkjun. Ég mun sem þingmaður leggja áherslu á sátt um Rammaáætlun eins og hún kemur frá sérfræðingahópnum. 6. Vilt þú að næsta ár verði tekjuskatts- frítt ár fyrir almenning svo menn geti greitt af húsnæðislánum? Hvað telur þú að þú getir best gert til að þín skoðun verði ofan á – skýr dæmi um hvað þú getur gert! Ég vil að þessi athyglisverða tillaga verði skoðuð mjög alvarlega. Það þarf að mynda breiða og almenna sátt um skatta á landsmenn. Ég mun leggja áherslu á lækkun skatta á einstak- linga og fyrirtæki en leggja meginá- herslu á stækkun skattstofna með því að auka atvinnu og verðmætasköpun. Flatur virðisaukaskattur án innskattar á alla þjónustu í stað tekjuskatts gæti orðið grundvöllur að neysluskatti þar sem svartri atvinnustarfsemi verði að mestu eytt. Talið er að allt að 30% tekna séu ekki taldar fram til skatts og mikil- vægt að ná til þess hóps sem ekki tekur þátt í kostnaði samfélagsins vegna þjón- ustu sem við öll viljum og þiggjum. Það verða allir að taka þátt í sameiginlegum kostnaði þjóðfélagsins. Kosti þess og galla að hafa tekjuskattsfrítt ár þarf að skoða vel og þá niðurstöðu hef ég ekki haldbæra. Eins þarf að skoða hugmynd- ir um að vaxtabætur verði greiddar beint inn á höfuðstól íbúðalána. Ég mun berjast fyrir því að gripið verði til aðgerða í skuldamálum heim- ilanna! 7. Hvernig vilt þú koma til móts við erfiða stöðu heimila í kjölfar banka- hrunsins? Ég vil berjast fyrir sanngjarnri fram- tíðarlausn í þessum málum! Tryggur fjárhagur heimilanna og auknar ráð- stöfunartekjur almennings er ein grunnforsenda þess að hér megi koma hagkerfinu í gang, útrýma fátækt og færa fólki aftur tækifæri á að eigna sér húsnæði, mennta börnin sín og njóta lífsins gæða í þessu auðuga og fallega landi okkar. Við getum ekki sætt okk- ur við verri stöðu þessara mála hér en annarsstaðar í heiminum! Róttæk viðbrögð við skuldavanda heimilanna er forsenda þess að fólkið í landinu fái aftur trú á stjórnvöldum og á réttlátt velferðarsamfélag. Ég mun sem þingmaður standa fyrir því að við gefin loforð verði staðið. Lausn á skuldavanda íslenskra heimila er loforð sem við verðum að standa við. Miðað við ráðstöfunartekjur íslenskra heimila hafa skuldir þeirra tólffaldast frá árinu 1980 og nema nú 240% af tekjum. Ég tek undir ályktun Lands- fundar Sjálfstæðisflokksins frá 2011, en þar var samþykkt að færa niður höf- uðstól verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána. Þessi aðgerð og önnur endurskipulagning skulda heimilanna er forsenda fyrir auknum hagvexti og framtíðaruppbyggingu íslensks þjóð- félags. Ég mun berjast með fólkinu í landinu fyrir efndum í þessu máli! 8. Vilt þú að Kvótafrumvarp ríkisstjórn- arinnar verði samþykkt? Hvað telur þú að þú getir best gert til að þín skoðun verði ofan á – skýr dæmi um hvað þú getur gert! Nei! Ég styð ekki kvótafrumvarpið eins og það er sett fram af hluta ríkis- stjórnarinnar. Ég treysti því að sú sátt sem náðist á meðal 20 aðila í sjávar- útvegi í upphafi kjörtímabilsins verði grunnurinn að nýju kvótafrumvarpi. Ríkisstjórnin hafnaði þeirri einstöku samstöðu sem náðist á milli allra hags- munaaðila í sjávarútvegi og ég tel að sú sátt verði grunnurinn að framtíðarsátt í málaflokknum. Skýr svör óskast

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.