Reykjanes - 10.01.2013, Qupperneq 13
1310. janúar 2013
Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki.
ég HeF meStAr áHyggjur AF ungA FóLKinu
Alþingiskosningar nálgast. Margir láta í sér heyra á vett-vangi stjórnmálanna og margt
er gagnrýnt og mörgu lofað. Það er mik-
ið atriði að kjósendur geti fengið skýr
svör frá frambjóðendum hvaða skoðun
þeir hafa og hvernig þeir ætli að vinna
að málunum á Alþingi. Reykjanes mun
í næstu blöðum óska eftir skýrum svör-
um frá þingmönnum kjördæmisins og
þingmanns kandidötum.
1. Vilt þú að álver rísi í Helguvík? , hvað
telur þú að þú getir best gert til að það
verði – skýr dæmi um hvað þú getur
gert!
Já ég er eindreginn stuðningsmaður
álvers í Helguvík og tel löngu tímabært
að koma þeirri mikilvægu framkvæmd
af stað aftur. Það sem þarf til er eindreg-
inn stuðningur og vilji allra þeirra sem
að verkefninu koma, ljúka fjármögn-
un og tryggja orkuöflun. Stuðningur
opinberra aðila er afar mikilvægur og
að staðið sé við þau loforð sem gefin
hafa verið og að fjárfestingarsamningar
séu virtir. Að sjálfsögðu þurfa að nást
samningar um orkuöflun og verð á
milli Norðuráls og orkufyrirtækjanna
og vona ég að það klárist á næstu vikum
eða mánuðum. En einnig – og það er
ekki síður mikilvægt – þurfa opinberir
aðilar að klára það sem upp á þá stendur.
Atkvæði okkar þingmanna í stjórnar-
andstöðu réðu því á sínum tíma að fjár-
festingarsamningurinn var samþykktur.
Ég mun hér eftir sem hingað til styðja
við bakið á þessu verkefni.
2. Vilt þú að raflínur verði lagðar í lofti
til Suðurnesja? Hvað telur þú að þú
getir best gert til að það verði – skýr
dæmi um hvað þú getur gert!
Ég vil tryggja öruggt framboð á raf-
orku til Suðurnesja og ég er afar ánægð
með þá niðurstöðu sem sveitarstjórnin í
Vogunum náði skömmu fyrir jól.
3. Vilt þú að Kísilver rísi í Helguvík?
Hvað telur þú að þú getir best gert til
að það verði – skýr dæmi um hvað
þú getur gert!
Já, ég vil að Kísilver rísi í Helguvík
eins og áform eru um og tel þetta mik-
ilvæga stoð í atvinnuuppbyggingu á
svæðinu. Þetta mál hefur tafist af ýms-
um ástæðum en er enn í vinnslu og von-
ast ég til þess að það fái farsælan endi og
að öflugir samstarfsaðilar fáist að ver-
kefninu. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
hafa haldið afar vel á því máli með því
að vinna vel með fyrirtækinu og tryggja
því góða aðstöðu. Ég mun veita þessu
verkefni minn stuðning þegar og ef það
kemur til kasta Alþingis.
4. Vilt þú að samkeppnisumhverfi
gagnavera verði styrkt hér á landi?
Hvað telur þú að þú getir best gert
til að þín skoðun verði ofan á – skýr
dæmi um hvað þú getur gert!
Ég hef talað skýrt og barist fyrir því á
Alþingi að rekstarumhverfi gagnavera
hérlendis verði samkeppnishæft – eða
betra – en það gerist í samkeppnislönd-
um okkar. Ríkisstjórninni hafði næstum
því tekist að bregða fæti fyrir þennan
mikilvæga iðnað með úrræðaleysi
og andstöðu við nauðsynlegar laga-
breytingar. Nýr meirihluti var mynd-
aður í þinginu fyrr á kjörtímabilinu fyrir
tilstuðlan okkar í stjórnarandstöðunni
og náðum við þannig að knýja fram
gríðarlega mikilvægar breytingar á
skattalöggjöfinni sem lagfærði þessa
samkeppnisstöðu, þrátt fyrir andstöðu
ýmissa stjórnarþingmanna og ráðherra.
Það var mikilvægur árangur og tryggði
m. a. að gagnaver Verne á Ásbrú tók til
starfa. Þarna má enn gera betur og mun
ég halda áfram að vinna í því.
5. Vilt þú að niðurstöður matshóps
um virkjanakosti verði samþykktar?
Hvað telur þú að þú getir best gert
til að þín skoðun verði ofan á – skýr
dæmi um hvað þú getur gert!
Ég er andvíg þingsályktunartillögu
þáverandi starfandi iðnaðarráðherra,
Oddnýjar Harðardóttur og Svandísar
Svavarsdóttur umhverfisráðherra um
rammaáætlun sem nú er til meðferðar í
þinginu. Þær lögðu til ýmsar breytingar,
t. a. m. þá að færa sex virkjunarkostir
úr nýtingarflokki í biðflokk þvert á það
sem fagleg verkefnisstjórn hafði lagt upp
með. Þannig var margra ára ferli sett í
uppnám og raunar gert marklaust. Það
er miður. Við þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins höfum talað mjög skýrt í
þessum efnum og lýst okkur algerlega
óbundin af þessari rammaáætlun verði
hún samþykkt. Við höfum enn fremur
lagt til okkar eigið þingmál þar sem við
leggjum til að málið verði fært upp úr
hinum pólitísku skotgröfum og fært aft-
ur til verkefnisstjórnarinnar til frekari
meðferðar. Það er að mínu mati mjög
góð leið til sátta í þessu mikilvæga máli.
Ég er eindreginn stuðningsmaður þess
að rammaáætlun verði kláruð til þess
að upprunalegu markmiðin náist – um
að ná sátt um hvað má virkja og hvað
á að vernda.
6. Vilt þú að næsta ár verði tekjuskatts-
frítt ár fyrir almenning svo menn geti
greitt af húsnæðislánum? Hvað tel-
ur þú að þú getir best gert til að þín
skoðun verði ofan á – skýr dæmi um
hvað þú getur gert!
Fjölmörgum leiðum hefur verið
velt upp á síðustu misserum til þess að
koma atvinnulífinu í gang og bæta stöðu
heimilanna í landinu. Þetta er ein þeirra.
Mér finnst okkur hreinlega bera skylda
til þess að skoða allar leiðir með opn-
um huga. Ég sé marga kosti við svona
aðgerð – þarna væri fólk hvatt til þess
að vinna og skapa verðmæti sem ég tel
nauðsynlega forsendu þess að koma
okkur upp úr þeim öldudal sem við
erum í núna. Ég myndi vilja láta gera
úttekt á áhrifunum af svona aðgerð –
á ríkissjóð, á heimilin, en ekki síður á
íslenskt efnahagslíf í heild. Það er ljóst
að tekjutap ríkissjóðs yrði all nokkuð og
því mætti líka hugsa sér aðrar útfærslur,
stytta tímann eða helminga afsláttinn.
Þetta þarf að skoða í samhengi hlutanna
og umfram allt með þá spurningu í huga
hvort þetta stuðli að lausn vandans.
7. Hvernig vilt þú koma til móts við
erfiða stöðu heimila í kjölfar banka-
hrunsins?
Brýnasta verkefni okkar er að leysa
úr erfiðri stöðu heimilanna í landinu.
Það á að vera forgangsverkefni okkar
allra sem gefum kost á okkur til forystu
í stjórnmálum og þarna eigum við að
taka höndum saman. Það er miður að
svo mikill tími hafi farið til spillis og
að við séum enn að glíma við þenn-
an stóra vanda rúmum fjórum árum
eftir hrun. Það árangursleysi skrifast
á ríkisstjórnina sem hefur ekki horfst
í augu við þetta gríðarlega vandamál
og hefur ekki haft burði til þess að tak-
ast á við það. Forgangsröðunin er og
hefur verið röng sem sést best á því að
nú í upphafi árs telur forsætisráðherra
brýnasta verkefnið fyrir þinglok vera
að umbylta stjórnarskrá Íslands. Ég er
þessu algerlega ósammála.
Vandinn er flókinn og að minnsta
kosti tvíþættur. Annars vegar sá
forsendubrestur sem allir húsnæðis-
eigendur urðu fyrir við bankahrunið
og hins vegar að finna framtíðarfyr-
irkomulag húsnæðismála hér á landi
sem er sambærilegt við það sem aðrar
þjóðir búa við.
Við urðum öll fyrir sama forsendu-
brestinum en ólgan sem enn ríkir í
samfélaginu er að mínu áliti ekki síst
vegna þess að úrlausn vandans hefur
ekki tekið mið af því heldur frekar af
því hvert lánafyrirkomulag skuldarans
er. Þannig hafa margir þeirra lántakenda
sem tóku gengistryggð lán fengið lausn
sinna mála í gegnum dóma Hæstaréttar,
en eftir sitja aðrir t. d. þeir sem tóku
verðtryggð lán hjá Íbúðalánasjóði. Það
er óhjákvæmilegt annað en að líta sér-
staklega til þess hóps og vil ég beita mér
fyrir því. Óvissan er enn alltof mikil þar
sem fjöldi dómsmála er ekki lokið og
hreint fáránlegt að ríkisstjórnin hafi
ekki fallist á tillögu okkar sjálfstæðis-
manna á Alþingi strax árið 2009 um að
þessi mál fengju flýtimeðferð í gegnum
dómskerfið.
Ég hef mestar áhyggjur af unga fólk-
inu okkar. Heil kynslóð hefur verið skil-
in eftir nánast eignalaus – og raunar
með skuldir langt umfram eignir–og
tekjur hrökkva ekki fyrir framfærslu
og niðurgreiðslu lána. Jafnvel hjá þeim
sem þó eru svo lánsamir hafa atvinnu.
Við nýttum ekki tækifærið til almennrar
skuldalækkunar með því að festa vísi-
töluna 2009 og það tækifæri sýnist mér
því miður runnið okkur úr greipum. Nú
telja margir að afnám verðtryggingar sé
allra meina bót – en staðreyndin er sú
að það leysir ekki vandann afturvirkt.
Ég er ekki talsmaður þess að banna
verðtrygginguna, en ég vil auka vægi
óverðtryggðra lána þannig að fólk hafi
raunverulega valkosti, en í öllu þessu
samhengi skiptir auðvitað langmestu
að samhliða fari styrk efnahagsstjórn,
verðmætasköpun í atvinnulífinu og að
stöðugleiki ríki í efnahagsmálum.
Ég tel nauðsynlegt að horfa til sam-
setningar vísitölunnar. Það er vitanlega
galið að verð á hvítvíni og sokkabuxum
og skattahækkanir vinstristjórnarinn-
ar skuli hækka fasteignalánin okkar.
Verðtrygging fasteignalána bundin við
neysluverðsvísitölu gengur ekki upp.
Það þarf að finna nýja útfærslu þar sem
verðtrygging á fasteignalánum er tengd
fasteignaverði en ekki einhverju blandi í
poka. Við getum ekki bundið lánin við
vísitölu neysluverðs þegar laun og kjör
fylgja ekki sömu uppskrift.
Samandregið er staðan þessi: Við
verðum fyrst að koma hjólum atvinnu-
lífsins af stað af fullum krafti. Skapa
verðmæti. Við verðum við að reikna
og greina hver vandinn raunverulega er.
Fá alla okkar bestu sérfræðinga að þessu
borði með okkur í stjórnmálunum og
finna raunæfar lausnir og koma þeim í
framkvæmd. Hætta að sópa vandanum
undir teppið og horfast í augu við hann.
Svo þarf að taka ákvarðanir – sumar
verða án efa erfiðar. Er betra að tugir
þúsunda Íslendinga fari í gjaldþrot eða
er betra að gera skuldir upp með veð-
settum eignum og afskrifa afganginn?
Bjóða síðan leigu–jafnvel með föstum
kauprétti? Tómar byggingar út um allt
hjálpa engum. Fjölskyldur og einstak-
lingar sem losnað hafa undan skulda-
klafa eru líklegri til að skapa verðmæti
og stuðla að betra efnahagslífi, betra
þjóðfélagi. Þannig þjóðfélag vil ég taka
þátt í að skapa.
8. Vilt þú að Kvótafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar verði samþykkt? Hvað telur
þú að þú getir best gert til að þín
skoðun verði ofan á – skýr dæmi um
hvað þú getur gert!
Ég vil nú fyrst sjá hvaða frumvarp
ríkisstjórnin kemur sér saman um að
leggja fram áður en ég lýsi mig and-
víga eða samþykka því. Núna er staðan
reyndar sú að atvinnumálaráðherrann
treystir sér ekki einu sinni til þess að
leggja frumvarpið fram vegna þess að
það hefur ekki stuðning. Ef ég mætti
gefa ríkisstjórninni eitt ráð þá er það að
hætta við þetta mál og einbeita sér að
þeim brýnu málum sem bíða – að leysa
úr skuldavanda heimilanna og styðja við
atvinnuuppbyggingu í landinu. Annað
má að mínu mati bíða.
Skýr svör óskast
Allt í einum pakka í Víkingastræti – Öðruvísi stemmning
w w w . f j o r u k r a i n . i s - P ö n t u n a r s í m i : 5 6 5 1 2 1 3
Þorrahlaðborð kr. 6.600 á mann.
Þrumandi þorrablót að hætti
Víkinga hefjast 20.janúar
Pakkatilboð í Víkingastræti
Lipur sem Loki tökum við á móti hópum stórum sem smáum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar. www.fjorukrain.is
ATH. Morgunmatur innifalinn í öllum pökkum.Tilboð gilda til 30. apríl 2013.
Aukanótt í 2ja manna herbergi kr. 5.000, á mann.
1. Þorrapakki:
Gisting, bjór og þorrahlaðborð.
Víkingasveitin leikur fyrir matargesti.
Tveggja manna herbergi kr. 13.400 á mann.
Þorrahlaðborð án gistingar kr. 6.600 á mann.
2. Leikhúspakki í Víkingastræti
– Fjörukráin og Gaflaraleikhúsið:
Gisting, leikhúsmiði og 3ja rétta kvöldverður.
Blackout eftir Björk Jakobsdóttur
Tveggja manna herbergi kr. 14.200 á mann.
Leikhúsmatseðill tveggja rétta án gistingar kr. 2.800 á mann
Gildir aðeins á sýningarkvöldum á milli kl. 18.00 – 20.00
3. Árshátíðarpakki:
Gisting með fordrykk og þriggja rétta hátíðarkvöldverði.
Tveggja manna herbergi kr. 13.700 á mann.
4. Sælkerapakki:
Gisting og kvöldverður með þriggja rétta sælkeraveislu.
Tveggja manna herbergi kr. 13.000 á mann.
Nánari upplýsingar á heimasíðum okkar.
www.fjorukrain.is og www.gaflaraleikhusid.is
Víkingasveitin leikur fyrir matargesti öll kvöldin.