Reykjanes - 24.04.2013, Side 8

Reykjanes - 24.04.2013, Side 8
8 24. apríl 2013 Grindavík lauT geFur úT bækling um upp- byggingarSTeFnuna Uppbyggingarteymið á leik-skólanum Lautinni hefur gert nýjan og fínan bækling sem er ætlaður til kynningar á Uppbyggingar- stefnunni bæði fyrir foreldra og nýja starfsmenn. Þar er farið yfir ýmislegt en leiðarljósið er að vera samstilltur og jákvæður starfsmannahópur á Laut, vinna saman í sátt og virða skoðanir annarra. léTT yFir FramSóknarmönnum Reykjanes leit við fyrir stuttu á kosningamiðstöð Fram-sóknarflokksins. Það var ansi létt yfir Framsóknarfólki enda vænta þeir góðs árangusr í kosningunum á laugardaginn. STyrkir Til nýSköpunar og Þróunar í grindaVík Grindavíkurbæjar auglýsti til umsóknar styrki til nýsköp-unar og þróunar í Grinda- vík. Styrkumsóknirnar voru teknar til afgreiðslu í bæjarráði að loknum umsóknarfresti sem var til 15. mars síðastliðinn. Tvær umsóknir bárust. Annars vegar frá Codland og hins- vegar frá Íslenska sjávarklasanum. Styrkirnir voru auglýstir í Víkur- fréttum, Fréttablaðinu og á vef Grindavíkurbæjar. Auk þess var auglýsingin send á fyrirtækjapóst- lista Grindavíkurbæjar. Bæjarráð samþykkir báðar um- sóknirnar og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við umsækj- endur. Garður undirbúningur SólSeTurSháTíðar Hópur fólks á vegum Knattspyrnufélagsins Víðis undirbýr nú af kappi dag- skrá Sólseturshátíðarinnar 2013 sem verður dagana 27.–30. júní í sumar. Það er von þeirra sem að hátíðinni standa að sem flestir bæjarbúar takið þátt í hátíðinni, skreyti hús sín, mæti á viðburði, sýni sig og sjái aðra og brosi sérstaklega mikið alla helgina. Viðburðir einstaklinga í Garðinum. Þeir aðilar í Garðinum sem áhuga hafa á að viðburðir þeirra komi fram í dagskrá hátíðarinnar vinsamlegast sendi póst á netfangið gudbrandurjs@ svgardur.is með nákvæmum upplýs- ingum um hverskonar viðburð sé að ræða, opnunartíma og öðrum upp- lýsingum sem fram þurfa að koma. Það gætu verið viðburðir eins og persónulegar listasýningar í heima- húsi, tónlistarflutningur, basar, heim- boð í kaffi og vöfflur, í kjötsúpu eða hvað fólki dettur í hug að gera fyrir gesti hátíðarinnar. Litir á hverfum. (hægfara breyting ? ) Nokkuð hefur verið um að fólk í græna hverfi hafi lýst yfir óánægju með græna litinn í þessum hluta bæjarins, þar sem þetta sé grænasta svæðið í Garðinum, og lítið beri á grænu skrauti í miðju túni. Undirbún- ingshópurinn hefur hlustað á þessar athugasemdir og slær hér fram þeirri hugmynd, að á tveimur árum þá verði lit þessa hverfis á Sólseturshátíð breytt í bláan lit. Þ. e. ef ekki verða hávær mótmæli frá íbúum í hverfinu. Stefnan er því sú, að í ár verði um- rætt hverfi skreytt með bláu og grænu, en svo næsta ár verði græni liturinn alveg látinn víkja. (Heimasíða Garðs) Gerðaskóli. beSTi árangur í Fimm ár Niðurstöður úr samræmdum próf-um 4, 7 og 10 bekkjar voru lagð- ar fram á síðasta Skólanefndarfundi Garðs fram og borið saman á milli ára. Heilt yfir er þetta besti árangur miðað við síðustu fimm ár. Prófþáttakan var mjög góð og var á bilinu 74 – 100%. eSb Fór Til kína Skelfing er eitthvað aumkunarvert að horfa á Samfylkingarforystuna Jóhönnu Sigurðardóttur og Össur Skarphéðinsson. Þau sögðu í upphafi kjörtímabilsins að það myndi taka skamman tíma að ná samningum við ESB. Í mesta lagi tæki það 18 mánuði. Kjörtímabilið leið og enginn samn- ingur. Til að bæta sér þetta upp og til að geta skrifað undir eitthvað skruppu þau til Kína. Skrifað var undir fríversl- unarsamning við Kína. Eitthvað hefur Samfylkingin farið út af sporinu í þessu máli eins og flestum öðrum. Það var sem sagt Kína sem á að bjarga okkur en ekki ESB. Snjó kall inn skrif ar:

x

Reykjanes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.