Reykjanes - 24.04.2013, Side 12
24. apríl 2013
árleg heimSókn leikSkóla-
barna á bæjarSkriFSToFu
Á hverju ári koma börn í svoköll-uðum skólahóp á leikskólan-um Gefnarborg í heimsókn á
bæjarskrifstofu Garðs. Skólahópurinn
eru þau börn sem munu kveðja leik-
skólann í sumar og hefja sína grunn-
skólagöngu í haust.
Börnin hitta bæjarsjórann, skoða
bæjarskrifstofuna og syngja jafnan
fyrir starfsfólk skrifstofanna og var
bæjarstjórinn sérstaklega ánægður með
lagavalið, en börnin kvöddu með að
taka lagið Traustur vinur fyrir Magnús
bæjarstjóra.
Hvert barn fær svo ljósrit af lófa sín-
um, djús og lítið páskaegg.
12
Laghentir ehf - Iðjustíg 1c - Reykjanesbæ
(í sama húsi og SS Bílaleigan, ekið inn frá Íslandsbanka)
Sími: 456-7600 - Gsm: 861-7600 - www.laghentir.is
Opið alla virka daga frá 8:00 til 18:00
á SuðurneSjum býr
goTT og duglegT Fólk
Ég hef oft verið spurð að því hvort Suðurnesjamenn séu ólíkir öðr-um íbúum landsins. Oft liggur í
spurningunni hvort Suðurnesjamenn
séu latari, siðlausari eða lauslátari en
almennt gerist. Þó þessi skoðun á
Suðurnesjamönnum sé hvorki á rök-
um reist né réttlát langar mig að eyða
á hana nokkrum orðum.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum hefur
verið mikið undanfarið. Það er fyrst og
fremst vegna þess að svæðið stóð höll-
um fæti eftir brottför hersins 2006 og
nógu mörg ný fyrirtæki með góð störf
höfðu ekki náð að festa rætur á svæðinu
á þeim tíma sem liðinn er. Atvinnu-
leysið hefur verið tilefni til að vekja
upp gamla fordóma fyrir Suðurnesja-
mönnum byggða á frásögnum af veru
hermanna á svæðinu.
Ég hef talsvert skoðað umræðuna
um Suðurnesjamenn og herinn og
komist að því að mjög ólík viðhorf
birtast í Suðurnesjablöðum miðað
við landsmálablöð á tíma hersetunn-
ar. Í þeirri umræðu sem hvolfdist yfir
Suðurnesin með komu herstöðvarinn-
ar voru íbúar varnarlausir. Suðurnesja-
menn voru taldir standa með herliðinu
gegn íslenskri tungu og menningu og
væru þar allir undir sömu sök settir.
Umræðan var flokkspólitísk og skiptist
milli vinstri og hægri milli þeirra sem
vildu atvinnu og þeirra sem aðhylltust
félagsleg gildi. Áróðursskrif um herinn
gátu mótast af sterkum hvötum þar sem
réttar upplýsingar voru aukaatriði. Í
opinberri umræðu á þessum tíma var
aldrei minnst á að Suðurnesjamenn
hefðu ekki beðið um að fóstra herliðið
heldur var þeim gert að taka við þess-
um erlendu gestum sem bæði auðguðu
mannlífið á svæðinu og tvístraði því.
Gegn því sem haldið var fram í
landsmálablöðunum í blaðagreinum
mótaðist viðhorf Suðurnesjamenna
til hersins af fjarlægð og vinsemd. Í
skrifum í blöð á Suðurnesjum sem
Faxi hefur m. a. gert góð skil kemur
fram að Suðurnesjamenn hafi nálg-
ast menningu hersins á annan hátt en
aðrir landsmenn og litið áhrifin öðrum
augum.
Þessa sögu þarf að endurmeta og
fræða íbúa annars staðar á landinu
um hvað raunverulega fór fram í
kringum herinn. Fordómar gagn-
vart Suðurnesjamönnum er ennþá til
staðar og þeim er viðhaldið í umræðu
sem erfitt er að eiga við. Í því ljósi tel
ég að landsmenn skuldi Suðurnesja-
mönnum endurskoðun og uppgjör
í þessu máli. Í því uppgjöri þarf að
skoða fordómalaust mikilvægri þeirr-
ar menningarmótunar sem kom frá
Suðurnesjum á þessum tíma og skoða
hvernig raunveruleg aðlögun íbúa og
herliðsins var.
Það er mitt mat að með sambúð
Suðurnesjamanna og hinna erlendu
gesta hafi fari fram fyrsta raunverulegu
tilraun Íslendinga til að takast á við nú-
tímann. Fyrsta íslenska tilraunin til að
samlagast raunverulega erlendri menn-
ingu og fyrsta tilraunin til að innleiða
það sem við í dag köllum nútímalega
vinnumenningu.
Inga Sigrún Atladóttir skipar 2. sæti
á lista VG í Suðurkjördæmi.
Fjölgað úr 600 í 2100
Aðalfundur Félags eldri borgara á Suðurnesjum var haldinn 9. mars s. l. Fram
kom í ræðu formanns Eyjólfs Eysteins-
sonar að starfið er kröftugt. Um 80
félagar starfa í stjórn og nefndum og
er boðið uppá fjölbreytt félagsstarf á
Nesvöllum og víðar. Mikið starf fer
fram í öllum sveitarfélögunum. Fram
kom að félögum hefur fjölgað úr 600 í
2100 á síðustu 10 árum. Félagið hér á
Suðurnesjum er eitt al öflugasta eldri
borgara félag landsins sagði Jóna
Valgerður Kristjánsdóir formaður
landssamtakanna, en hún flutti ræðu
á aðalfundinum.
Félagar njóta afsláttarkjara í mörg-
um verslunum og þjónustuaðilum á
öllum Suðurnesjum og reyndar gildir
afsláttarkortið um land allt. Allir 60
ára og eldri geta gerst félagar.
Nýlega opnaði Félag eldri borgara á
Suðurnesjum heimasíðu og er slóðin
www. febs.is
Inga Sigrún atladóttir.
Það er alltaf nóg að gera hjá kaffinefndinni.
www.3frakkar.com
Sími: 552-3939
Takk Sjálfstæðismenn fyrir
að leyfa hvalveiðar á ný
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
Þrír Frakkar
Café & Restaurant
Ferskur léttsteiktur bláugga-
túnfiskur m/soya-smjörsósu
og wasabi-kartöflumús
Nú er þitt tækifæri komið!