Reykjanes - 13.12.2012, Síða 6

Reykjanes - 13.12.2012, Síða 6
6 13. desember 2012 íSlendinGar 13 af 88 StarfS­ mönnum Ný-fiskur í Sandgerði er öflugt fyrirtæki. Starfs-mannafjöldi er 88. Sérs- taka athygli vekur að aðeins 13 af starfsmönnunum eru Íslendingar. Athyglisvert í ljósi þess að mikið atvinnuleysi er hér á svæðinu. pólitík Skiptir máli – tökum þátt eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi Eftir um 150 daga ganga Ís-lendingar að kjörborðinu og kjósa til Alþingis. Prófkjör, forval og uppstillingar eru í gangi hjá öllum stjórnmálaflokkum og á næstu tveimur mánuðum skýrist hvernig framboðslistar flokkanna verða skip- aðir. Nú er tækifæri til að hafa áhrif. Stjórnmálin mega muna sinn fífil fegurri og við sem störfum á þeim vettvangi finnum sennilega öll fyrir minni áhuga, virðingarleysi og jafn- vel vonleysi gagnvart stjórnmálum og stjórnmálamönnum. Eins skrýtið og það hljómar er mín upplifun samt sú að fólk sé þrátt fyrir þetta almennt pólitískara en áður. Hvert sem ég fer og hvar sem ég kem ræðir fólk við mig um pólitík, hvað það vill sjá betur gert og hvernig. Og hefur á því miklar skoðanir og margt til málanna að leggja. Í þessu er fólgin þversögn – almenningur er pólitískari á sama tíma og hefðbundin þátttaka í stjórnmálum fer dvínandi. Stjórnmál skipta máli, hugmynda- fræði skiptir máli, vinnubrögð skipta máli og einstaklingar skipta máli. Ég leyfi mér að fullyrða að við öll sem störfum í stjórnmálum séum þar af góðum hug – við viljum hafa áhrif á samfélagið og við höfum sannfæringu fyrir því sem við erum að berjast fyrir. Og það er einmitt ekkert athugavert við það að stjórnmálum fylgi barátta, stundum átök um mismunandi aðferð- ir og hugmyndafræði. Þetta er það sem lýðræðið snýst um. Við erum samt miklu oftar sammála þvert á flokkslínur á Alþingi heldur en menn halda–en átökin eru frétt- næmari. Við tölum oftar um og við hvert annað af virðingu á Alþingi – en virðingarleysið þykir fréttnæmara. Þetta fælir gott fólk frá þátttöku í stjórnmálum og þessu vil ég breyta. Tökumst á um menn og málefni en umfram allt sýnum hvert öðru virðingu. Það er gaman í stjórnmál- um, það er gaman að sjá hugmyndir fæðast og verða að veruleika. Til þess að hafa áhrif verða menn að taka þátt og nú er tækifærið. Prófkjör okkar sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi fer fram þann 26. janúar og rennur framboðsfrestur út þann 14. desember. Ég vil hvetja fólk til dáða – komið með okkur í baráttuna, tryggjum góða þátttöku, tökum slaginn saman og gerum gott samfélag betra. SjómennSkan er ekkert Grín! Haraldur Hjálmarsson ljós-myndari og sjómaður á nýjasta báti Grindavíkur- flotans sem ber heitið Áskell EA 749, tók þessar myndir á dögunum þegar skipið var í sinni fyrstu sjóferð eftir að Gjögur keypti skipið ásamt 1.500 tonna þorskkvóta. Voru þeir m. a. norður af Horn- bjargi þar sem þeir rákust á þenn- an stærðarinnar ísjaka. Á hinum myndunum sést sannarlega að sjó- mennskan er ekkert grín, eins segir í einum af frægari dægurlagatextum landsmanna. (Heimasíða Grinda- víkur) að ýmSu að huGa í landi Að ýmsu er að hyggja þegar skipin koma til hafnar til að landa. Þá er gott að geta treyst á góða þjónustu. Í dag mátti sjá kranabíl frá Jóni og Margeir sem sendi mann í körfuna til að huga að þeim nútíma fjarskiptabúnaði sem er á stýrishúsinu á Tómasi Þorvaldssyni GK 10 sem Þor- björn hf. gerir út. (Heimasíða Grindavíkur) Fréttatilkynning StjórnlaGaráðSmenn Gefa koSt á SÉr í framboð fyrir döGun Tveir fulltrúar úr Stjórnlaga-ráði–þeir Lýður Árnason og Gísli Tryggvason hafa ákveðið að gefa kost á sér í framboð fyrir Dögun fyrir alþingiskosningar 2013. Lýður er læknir að mennt og hefur látið að sér kveða í kvikmyndagerð, tónlist og nú síðast skáldsagnaritun en Gísli er lögfræðingur og gegnir nú embætti talsmanns neytenda en var áður framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna (BHM). Gísli og Lýður hafa verið ötulir málsvarar stjórnarskrárbreytinga síð- astliðin misseri enda hlutu þeir báðir kosningu í kjöri til Stjórnlagaþings á sínum tíma. Gísli hlaut kjör í krafti menntunar sinnar og áralangrar bar- áttu fyrir samfélagsumbótum og sat í B-nefnd stjórnlagaráðsins þar sem ma. var fjallað um undirstöður íslenskrar stjórnskipunar, Alþingi, ríkisstjórn og málefni sveitarfélaga. "Ég er búinn að vera svo lengi hinum megin við borðið til að reyna að hafa áhrif í réttlætisátt fyrir neytendur og launafólk að nú vil ég fara á þing til þess að komast í raunverulega aðstöðu til að bæta stöðu heimilanna–, " segir Gísli sem einnig leggur mikla áherslu á að rétta hlut landsbyggðarinnar. Lýður sat í C-nefnd stjórnlagaráðs þar sem m. a. lýðræðisleg þátttaka al- mennings, dómstólar og kosningakerfi var meðhöndlað, en hann var kjörinn inn á Stjórnlagaþing með góðum stuðningi frá Vestfjörðum, þar sem hann starfaði áralangt sem læknir við góðan orðstír–enda maður með báð- ar fætur á jörðinni og fingurna þétt á púlsi skjólstæðinga sinna og þjóðar- innar allrar. Lýður: "Ég legg höfuðáherzlu á að klippa á þann naflastreng sem liggur á milli Alþingis og hagsmunaaðila og gera þannig réttkjörnum stjórnvöldum kleift að rækja skyldur sínar við þjóð- ina í friði. Ég vil sjá nýja stjórnarskrá, landið í byggð og hátæknisjúkrahús í salti. " Dögun er framfarasinnað umbótaafl sem býður fram á landsvísu og sér til þess að nýja stjórnarskráin fái þann sess þjóðin hefur ákveðið henni. Gísli Tryggvason–gislit@ru.is–897 3314 Lýður Árnason–lydur@islandia. is–773 0312 Frekari upplýsingar um Dögun veita kosningastjórar: Andrea Ólafsdóttir: andreaolafs@ gmail. com–s.698 8101 Daði Ingólfsson: dadi@xdogun. is–s.611 6622 Lýður Árnason Gísli Tryggvason volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² kr. 1.500.000,- án fylgihluta kr. 1.800.000,- með fylgihlutum og byggingarnefndar teiknisetti. www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt RÝMINGARSALA Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM ALLT Á AÐ SELJAST! V H /1 2- 03 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 4,7m² kr. 242.100,- án fylgihluta kr. 265.410,- m/fylgihlutum 70 mm bjálki / Tvöföld nótun 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² kr. 323.910,- án fylgihluta kr. 359.910,- m/fylgihlutum TILBOÐ - BARNAHÚS 2,1m² kr. 119.900,- án fylgihluta kr. 135.900,- m/fylgihlutum 28 mm bjálki 34 mm bjálki / Tvöföld nótun GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá fleiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is w w w. r e y k j a n e s b l a d. i s

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.