Reykjanes - 13.12.2012, Síða 9

Reykjanes - 13.12.2012, Síða 9
913. desember 2012 jólabókaflóð á neSvöllum Síðasta fimmtudag var bókakynn-ing á Nesvöllum. Bækur sem þar voru kynntar eru Suðurnesja- bækur. Marta Eiríksdóttir las úr bók sinni, Mei mí beibí. Úlfar Þormóðsson las úr bók sinni, Boxarinn. Svanhildur Eiríksdóttir las úr bókinni Árni Sam á fullu í 40 ár. Eðvarð T. Eðvarðsson las úr bókinni Saga Ungmennafélags Keflavíkur. Svanhildur Las úr bókinni Saga slökkviliðsins á Keflavíkurflug- velli. Allt eru þetta verulega athyglisverðar bækur, sem Suðurnesjamenn ætti að huga að. árni á fullri ferð. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi verður haldið 26. janúar n. k. Árni Johnsen er kominn á fulla ferð í undirbúningi að góðri kosningu. Hann hefur ver- ið á ferðinni um allt kjördæmið og fengið gott fólk með sér til að ræða málin. Reykjanes leit við á fundi hans í Garðinum. Katrín hjá Ný-fisk hafði þar framsögu ásamt Gísla Heiðarssyni bæjarfulltrúa og Finnboga Björnssyni framkvæmdastjóra DS. Fínn fundur og vel mætt. Fréttatilkynning ályktun um aðildarviðræður við eSb SAMSTAÐA telur afar brýnt að viðræðunum ljúki á þessu ári til að þær skyggi ekki á brýn kosn- ingamál í næstu alþingiskosningum. Þessi kosningamál eru, að mati SAM- STÖÐU: lausn á skuldastöðu heim- ila og smærri fyrirtækja og leið til að afnema gjaldeyrishöftin sem tryggir almenna velferð og efnahagslegt sjálf- stæði landsins. handbókin frábær eftir fertuGt eftir jónu óSk pÉturSdóttur er komin út hjá bókaútGáfunni Sölku Í bókinni fjallar Jóna Ósk á opinská-an hátt um líkamlega og andlega heilsu kvenna á breytingaskeiði. Sumar konur fara létt í gegnum þetta tímabil en aðrar finna fyrir töluverð- um óþægindum. Umfjöllunarefnin eru eins og við má búast fjölmörg; horm- ónabreytingarnar, kynlíf, sambönd og félagsleg tabú, útlit og fatastíll, umhirða húðar – svo fátt eitt sé nefnt. Umræða um æviskeið kvenna eftir fertugt einkennist oft af fordómum en það er mikilvægt fyrir konur að vera vel upplýstar og viðbúnar því að taka á móti þeim breytingum sem verða þá óhjákvæmilega. Við ráðum miklu um líðan okkar og heilsufar á þessum aldri eins og þessi gagnlega og tímabæra bók bendir á. „Bók þessi er gott yfirlit yfir það breytingaskeið sem allar konur ganga í gegnum. Hér er einkennum skeiðsins og líðan kvenna á þessum tíma gerð góð skil á mannamáli. Ekki eru not- uð fræðiheiti heldur eru hlutirnir út- skýrðir af konum sem hafa upplifað þá á eigin kroppi, sem gerir einkenni tíðahvarfa mun raunverulegri fyrir vikið. Myndirnar sem prýða bókina eru einnig skemmtilegar og lífga upp á textann. Sérstakur kafli sem ætlaður er mökum kvenna er þarfur og mun nýtast vel. “ Ebba Margrét Magnúsdóttir, kven- sjúkdóma- og fæðingarlæknir. Nánari upplýsingar veitir Álfrún G. Guðrúnardóttir í s: 522 2255 / 864 2211

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.