Reykjanes - 12.12.2013, Blaðsíða 6
6 12. desember 2013
Auglýsingasíminn er
578 1190
Fiskmarkaður Suðurnesja
www.fms.is
Þjónustusími
Aðalskrifstofa: 422 2400 Gsm: 420 2311
Grindavík: 422 2420 Gsm: 824 2403
Sandgerði: 422 2410 Gsm: 824 2401
Reykjanesbær: 422 2410 Gsm: 824 2401
Hafnarfjörður: 422 2460 Gsm: 824 2406
Ísafjörður: 422 2430 Gsm: 824 2404
Höfn: 422 2450 Gsm: 824 2407
Til þjónustu reiðubúnir!
Árni Sigfússon,bæjarstjóri
Reykjanesbæjar
Getur breyst
Síðari umræða um fjárhagsáætlun verður miðvikudaginn 11. desem-
ber n.k.
Tillagan gerir að svo stöddu ráð fyrir
5% hækkun gjaldskrár, en það getur
breyst í meðförum bæjarstjórnar við
síðari umræðu.
Ásgeir Eiríksson,
bæjarstjóri Voga
Hækkun en
getur breyst
Síðari umræða um fjárhagsáætlun verður miðvikudaginn 11. desem-
ber n.k. Tillagan gerir að svo stöddu
ráð fyrir 5% hækkun gjaldskrár, en það
getur breyst í meðförum bæjarstjórnar
við síðari umræðu.
Hætta sveitarfélögin
við að hækka?
Það er mikill skilningur fyrir því í þjóðfélaginu að besta kjarabót allra landsmanna sé
að hægt sé að hemja verðbólguna.
Talað er um nauðsyn þess að hægt
verði að kjarasamninga á hófstilltum
nótum. Verkalýðshreyfingin hefur
lagt áherslu á að allir verði þá að taka
þátt. Í því sambandi hefur verka-
lýðsforystan beint þeim tilmælum
til sveitarfélaga að þau hætti við
áætlaðar hækkanir á sköttum og eða
þjónustugjörldum
Reykjavíkurborg varð fyrst til að
tilkynna að áætlaðar hækkanir yrðu
dreganra til baka. Nokkur sveitarfélög
hafa fylgt í kjölfarið. Reykjanes leitaði
til bæjarstjóranna hér á Suðurnesjum
og spurði hvað ætlar þitt sveitarfélag
að gera í þessum efnum?
Magnús Stefánsson,bæjarstjóri Garði
Lægri en í flestum sveitarfélögum
Bæjarstjórn Garðs mun afgreiða fjárhagsáætlun eftir síðari umræðu
þann 12. desember 2013 og er áætlunin
því ennþá til umfjöllunar. Við fyrri um-
ræðu í bæjarstjórn var gert ráð fyrir
að almenn gjaldskrá hækki um 3,9%,
sem er leiðrétting á verðlagi miðað við
verðlagshækkun frá september 2012 til
september 2013. Gjaldskrá Garðs er
eftir sem áður lægri en í flestum öðrum
sveitarfélögum og má segja að það hafi
verið framlag sveitarfélagsins til þess að
halda álögum og gjöldum í lágmarki.
Þegar þetta er skrifað liggur ekki fyrir
að horfið verði frá þeirri leiðréttingu
á gjaldskrá sem að framan er greint.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkur
Lækkun útsvars mikil kjarabót
fyrir Grindvíkinga
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur samþykkt fjárhagsáætlun ársins
2014, gjaldskrárbreytingar og tekið
ákvörðun um útsvarshlutfall.
Á árinu 2013 var útsvarið lækkað úr
14,48% í 14,28%. Á árinu 2014 verður
útsvarið enn lækkað niður í 13,99% og
verður með því lægsta á landinu.
Gjaldskrárhækkunum er stillt í hóf.
Stærstu gjaldaliðirnir fyrir venju-
lega fjölskyldu eru fasteignagjöld og
leikskóla- og dagvistargjöld. Fast-
eignaskattur á íbúðarhúsnæði hækkar
til móts við lækkað fasteignamat,
þannig að raunveruleg krónutölu-
hækkun verður ekki mikil.
Tímagjald leikskóla verður óbreytt
frá árinu 2013, en heildarkostnaður
vegna leikskóladvalar hækkar um 1%
milli ára vegna hækkunar á matar-
kostnaði. Niðurgreiðslur til foreldra
vegna dagforeldraþjónustu hækka
þann 1. janúar um 10.000 kr á mánuði.
Jafnframt er vert að minnast á við-
mið vegna afsláttar eldri borgara og
öryrkja af fasteignaskatti voru hækkuð
verulega sem leiðir til þess að fleiri eiga
rétt á afslætti. Auk þess er í undirbún-
ingi að koma á systkinaafsláttarkerfi
milli dagvistunarúrræða. Það kemur
barnmörgum fjölskyldum vel og er
veruleg kjarabót.
Lækkun útsvars úr 14,28% í 13,99%
mun vega hækkun á gjaldskrám upp
að fullu hjá meðalfjölskyldu. Grinda-
víkurbær hefur þannig lagt sitt lóð á
vogarskálarnar við að auka kaupmátt
án þess að verðbólga aukist. Lækkun
útsvars nær til allra launþega en ekki
aðeins þeirra sem nýta sér þjónustu
Grindavíkurbæjar.
Ég vil nýta tækifærið og skora á
atvinnurekendur að fylgja fordæmi
sveitarstjórnarfólks um land allt við
að halda verðlagshækkunum í skefjum.
Matvara, eldsneyti, fatnaður og önnur
neysluvara hafa mun meiri áhrif á vísi-
tölu neysluverðs en gjaldskrár sveitar-
félaga.
Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri Sandgerðis
Fasteignaskattur lækkar í
Sandgerði á árinu 2014
Fasteingnaskattur á íbúðarhúsnæði í Sandgerði lækkar um 0,25% á árinu
2014 vegna niðurfellingar viðbótará-
lags á fasteignaskatt. Álagningarhlut-
fall holræsagjalda og vatnsgjalda verða
óbreytt. Sorphirðu- og sorpeyðingar-
gjöld hækka ekki milli ára.
Leikskólagjöld, skólamatur, tónlist-
arskólanám og dvöl barna í skóla-
seli hækka að jafnaði um 3,9%.
Niðurgreiðsla Sandgerðisbæjar vegna
þessarar þjónustuþætta er mismikil,
eða 80% af kostnaði við leikskóla og
skólasel, 90% af kostnaði við tónlist-
arnám og 45% af kostnaði við skóla-
máltíðir. Aðrir liðir í gjaldskrá hækka
mismikið þó ekki umfram 5%.
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar af-
greiddi fjárhagsáætlun fyrir árin 2014-
2017 á fundi sínum 3. des. sl.