Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Side 4
Mikið æði hefur heltekið íslenska
æsku undanfarið en það er að leika
sér með svokallaða drakkó-karla. Í
raun eru þetta hausar af skrýtnum
fígúrum og líkist leikurinn furðu mik-
ið peningaharki. Hann snýst um það
að kasta drakkó-haus eins nálægt
vegg og mögulegt er. Sigurvegar-
inn hirðir hina hausana sem notað-
ir voru í spilinu. Nú hefur Melaskóli
riðið á vaðið og bannað leikföng-
in innan skólans en nokkur misklíð
hefur orðið vegna karlanna.
„Þetta er orðið dálítið peninga-
spursmál og það er alvarlegt,“ segir
Ragna Ólafsdóttir, skólastjóri Mela-
skóla, en eldri krakkarnir hafa not-
fært sér leikinn og haft karlana af
þeim yngri. Þá hefur verið tilkynnt
um hvarf nokkurra karla en Ragna
vill þó ekki fullyrða að um þjófnað
sé að ræða enda hefur slíkt alls ekki
komið í ljós.
Að sögn Rögnu leyfði skólinn
börnunum að leika sér með fígúr-
urnar til að byrja með. Hún segir
slíka leiki geta gagnast börnunum
vel og bendir á í því samhengi að ekki
öll börn vilji leika sér í boltaleikjum.
Hún segir þann vettvang geta ver-
ið ágætan fyrir börn til að hittast og
leika sér sem hún telur afar jákvætt.
Í því samhengi bendir hún á annað
æði sem gekk yfir hjá skólabörnum
fyrir örfáum árum en það var leikur
með Pókemon. Þar gátu börn skipst
á spilum og körlum. Þetta spil geng-
ur lengra því það líkist fjárhættuspili.
Hún bætir við að svona leikir geti
færst í miklar öfgar hægt og rólega.
„Þegar ég var lítil var þetta kallað
fimmaurahark,“ segir Ragna minnug
æskuáranna. Hún segir að oftar en
ekki hafi börnin þó notast við tappa
en stundum voru fimmaurarnir
lagðir undir.
Hún segir viðbrögð við banninu
hafa verið góð þótt sumir krakkar
geti verið ósáttir við það. Melaskóli
er þó ekki eini skólinn sem hefur
bannað þetta því frístundaheimil-
ið við skólann hefur gert það sama.
Svipuð vandamál komu upp og því
þótti vænlegast að biðja börnin að
leika sér heima með drakkó-karl-
ana.
valur@dv.is
föstudagur 25. maí 20074 Fréttir DV
Góður alhliða áburður.
Hentar vel í öll blómabeð, fyrir
matjurtir, skrautrunna og tré.
Inniheldur öll helstu næringar-
og snefilefni.
Berið á 3-4 sinnum yfir vaxtar-
tímann frá maí fram í miðjan júlí
www.aburdur.is
Gott í garðinn
Fæst í öllum helstu garðyrkju- og byggingavöruverslunum landsins
Telja kindur í
þjóðgarðinum
Skotveiðifélag Íslands stóð
fyrir rjúpnatalningu á Þingvöll-
um á þriðjudaginn. „Þetta fer
þannig fram að hópur fólks röltir
um svæðið og telur þá karra sem
sjást,“ segir Einar Kr. Haraldsson
hjá Skotveiðifélaginu. Á vorin eru
karrarnir oft áberandi þar sem
þeir koma sér fyrir á hólum og
verja óðul sín.
Taldir voru sjö karrar og ein
hæna. Einnig varð vart við þrjár
kindur og tvo refi. Í fyrra fund-
ust fjórir karrar. Mesta fjölgunin
virðist vera meðal refa. Önn-
ur tófan var alhvít en hin var að
komast í dökkan feld.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Dæmdur fyrir
ofsaakstur
Maður var dæmdur í 350
þúsund króna sekt í Héraðsdómi
Suðurlands fyrir umferðarlaga-
brot. Þegar maðurinn ók á sem
mestum hraða mældist hann á
160 kílómetra hraða. Þá var hann
einnig dæmdur fyrir að hylja
númeraplötuna á mótorhjólinu
gagngert til þess að koma í veg
fyrir að lögreglan gæti náð núm-
erinu. Maðurinn hefur margoft
gerst sekur um umferðarlaga- og
fíkniefnabrot. Þá var hann einnig
sviptur ökuleyfi í sex mánuði.
ÞEGIR UM EIGIN HAG
Verkalýðsfélag Vestfirðinga fund-
aði í gær með starfsmönnum Kambs
á Flateyri. „Þessi fundur er fyrst og
fremst til þess að ræða uppsagnirnar
og réttindi starfsmanna Kambs,“ segir
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður
Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
Finnbogi segir að með þessu sé
verkalýðsfélagið að standa við loforð
sín við starfsmenn Kambs. „Þetta er
lokaður fundur. Við förum yfir þessi
mál með starfsfólkinu í rólegheitum,“
segir hann. Hinrik Kristjánsson for-
stjóri Kambs tilkynnti fyrir viku síðan
að fyrirtækið yrði selt. Þar með missa
120 manns á Flateyri vinnuna, 65
manns í landvinnslu og 55 sjómenn.
Orðagjálfur ráðamanna
Þingflokkur Frjálslynda flokksins
hittist á miðvikudag og ræddi mál-
efni Flateyrar. Þingflokkurinn krefst
þess að ný ríkisstjórn láti að sér kveða
í málinu án tafar. „Allt tal um skoð-
un, athugun eða óvænta atburðarás
er orðagjálfur manna sem þora ekki
að takast á við sérhagsmunina sem
stjórnvöld eiga að stjórna en ekki
þjóna,“ segir í ályktun frá frjálslyndum.
Kristinn H. Gunnarsson, þingflokks-
formaður Frjálslynda flokksins, telur
athyglisvert að tvö fyrirtæki á Vest-
fjörðum hafi lent í viðlíka hremming-
um á skömmum tíma. „Annars vegar
var það Bakkavík í Bolungarvík sem
neyddist til þess að selja frá sér kvót-
ann og nú er það Kambur sem hættir
vinnslu,“ segir Kristinn.
Miklar skuldir
Þegar hafa tilboð verið samþykkt
í þrjá báta Kambs. Hinrik Kristjáns-
son framkvæmdastjóri og aðaleig-
andi félagsins segist lifa í þeirri von
að fjársterkir aðilar treysti sér til þess
að halda áfram útgerð á Flateyri. „Ég
vona bara að einhver sjái sér hag í því
að koma og taka yfir það sem hér er
eftir,“ segir hann.
Hann treystir sér ekki til þess að
leggja mat á það hver staða hans verði
þegar fyrirtækið verður gert upp.
Hans fyrsta markmið sé að greiða nið-
ur skuldir Kambs, sem séu talsverðar.
Þýðir ekki að gráta
„Það hjálpar okkur ekkert að gráta,“
segir Stanislaw Kordek, sjómaður á
Flateyri. Hann er sannfærður um að
einhver kaupandi finnist sem haldi
áfram útgerð á Flateyri. Hann segir að
til skamms tíma hafi reynst mjög auð-
velt fyrir fólk að fá lánsfé fyrir húsnæði
á Flateyri og telur að það verði erfitt
fyrir þá sem ekki finna sér vinnu.
„Ég stefni að því að kaupa bát og
fara að gera út sjálfur ef ekkert rætist
úr hlutunum hérna,“ segir Stanislaw.
Stanislaw er íslenskur ríkisborgari.
Hann flutti til Íslands frá Póllandi og
hefur búið á Flateyri síðan 1995.
Verkalýðsfélag Vestfirðinga fundaði með starfsmönnum Kambs og kynnti þeim rétt-
indi sín. Þingflokkur Frjálslynda flokksins segir að allt tal um skoðun og athugun á
málinu sé orðagjálfur. Eigandi Kambs treystir sér ekki til þess að segja hvernig hann
kemur út úr sölunni á fyrirtækinu.
Flateyri Hinrik Kristjánsson eigandi
Kambs á flateyri selur fyrirtækið. 120
manns missa vinnuna og afkoman
verður ótrygg fyrir marga fleiri. Hinrik
vonar að einhver haldi áfram útgerð
á staðnum.
Verkalýðsforinginn
ræddi uppsagnirnar
við starfsfólkið og
kynnti þeim réttindi
sín.
Sjómaðurinn stanilslaw Kordek hefur búið og unnið á flateyri í meira en tíu ár.
Hann hefur trú á því að útgerð verði haldið áfram á flateyri. Ef það bregst þá hyggst
hann fjárfesta í bát og fara sjálfur í útgerð.
Sigtryggur Ari jóhAnnSSOn
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Drakkó-karlar útlægir úr Melaskóla:
Leikfangahark bannað
Drakkó-æðið Börn á íslandi geta vart slitið sig frá svokölluðum drakkó-körlum en
melaskóli sá sig knúinn til þess að banna þá eftir að bera fór á misklíð innan skólans
vegna þeirra.