Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Blaðsíða 8
föstudagur 25. maí 20078 Fréttir DV erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Saksóknari dæmdi Joya Williams til lengri fangelsisvistar en alríkisreglur mæla með: Dæmd fyrir að svíkja Coca-Cola „Ég man ekki eftir nokkrum glæp sem framinn hefur verið í mínu um- dæmi síðastliðin 25 ár þar sem rétt- lætið hefur verið eins fótum troðið,“ sagði J. Own Forrester, fylkisdómari í Atlanta, þegar hann dæmdi í máli Joya Williams, en hún er fyrrverandi ritari forstjóra vörumerkjadeildar Coca-Cola í höfuðstöðvunum í Atl- anta. Willams var dæmd til átta ára fangelsisvistar fyrir iðnaðarnjósn- ir og tilraun til að selja iðnaðarupp- lýsingar til erkifjandarins Pepsi, þrátt fyrir að alríkisdómstóllinn og við- mið sem alríkissaksóknarar fara eft- ir hafi mælst til að hún fengi fimm til rúmlega sjö ára fangelsisdóm. Mörg- um gagnrýnendum finnst dómurinn mjög þungur. Í fyrsta lagi í ljósi þess að ekki var um stórkostlegar upplýs- ingar að ræða og hins vegar í sam- anburði við væga dóma fyrir grófar líkamsárásir og jafnvel morð. Gagn- rýnin beinist því sterklega að þeirri tilhneigingu bandarísks réttarkerf- is að vernda fyrirtækin með kjafti og klóm til að verja hagsmuni en gera íbúum landsins ekki jafn hátt undir höfði. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að Williams hefði safn- að trúnaðarupplýsingum og stolið sýnum af óframleiddum drykkjum og reynt að selja til hæstbjóðanda. Þegar PepsiCo var boðið að kaupa upplýsingar í maí 2006 höfðu for- svarsmenn fyrirtækisins samband við Alríkislögregluna FBI. FBI tengdi málin saman og sendi tálbeitu á að- stoðarmenn Williams sem sáu um sölu upplýsinganna. Gervisamning- ur var undirritaður og síðan handtók FBI hina meintu afbrotamenn. „Þetta er glæpur sem við getum ekki þolað í samfélagi okkar,“ sagði fylkisdómarinn J. Own Forrester í samtali við AP fréttastofuna og sagði það ástæðu þess að hann hefði farið fram úr viðmiðunarreglum alríkis- dómstólsins. Williams, viðurkenndi sekt sína þegar leið á réttarhöldin. Með tárin í augunum bað hún Coke, yfirmann sinn, dómara og fjölskyldu sína fyr- irgefningar og fullyrti að hún væri ekki slæm manneskja. Dómarinn tók ekkert mark á iðrun Williams. skorri@dv.is Höfuðstöðvar Coca-Cola í Atlanta, Georgíu. Land tækifæranna eða land fyrirtækjanna? Olían streymir upp úr jörðu í Aserbaídsjan. Þjóðarframleiðslan jókst um þrjátíu og sex prósent á síðasta ári samkvæmt þarlendum sérfræðingum. Alijev-fjölskyldan rígheld- ur í stjórnartaumana. Erlend ríki hafa áhyggjur af stöðu mannréttinda og frjálsra fjölmiðla í landinu í kjölfar atburða síðustu vikna. ANDSTAÐAN Í FANGELSI Alijev-fjölskyldan hefur tögl og hagld- ir í Aserbaídsjan. Ilham Alijev tók við völdum af föður sínum árið 2003 og reikna flestir með að eiginkona hans setjist í forsetastól þegar hann lætur af störfum. Hún var kjörin á þing fyr- ir tveimur árum. Völd fjölskyldunnar koma til með að aukast á næstu árum enda er blússandi gangur í landinu. Þökk sé olíunni sem erlend stórfyr- irtæki keppast við að dæla upp. Þrátt fyrir olíugróðann eru fjörutíu prósent landsmanna talin lifa undir fátæktar- mörkum og spilling í stjórnkerfinu er með mesta móti. Minnir á Yukos Stórum hluta olíunnar er dælt til Tyrklands í gegnum olíuleiðslur sem taka sveig í kringum Armeníu enda er sambúð þjóðanna mjög stirð vegna deilna um yfirráð á Nagorno-Kara- bakh-svæðinu. Olíufyrirtækið Az- petrol leikur lykilhlutverk í þessum flutningum en það var í eigu fyrrver- andi fjármálaráðherra Aserbaídsjans og bróður hans. Þeir misstu fyrirtæk- ið hins vegar nýverið í kjölfar ákæru um að hafa lagt á ráðin um valdarán og stundað stórfelld skattsvik. Þyk- ir forsaga málsins og málatilbún- aður yfirvalda minna mjög á mál rússneska ríkisins á hendur eiganda olíufyrirtækisins Yukos þar í landi. Samkvæmt frétt The Financial Times hefur fjárfestum sem eru hliðholl- ir Alijev forseta verið fært fyrirtæk- ið. Bræðurnir bíða hins vegar dóms en réttarhöld yfir þeim hófust fyrr í mánuðinum. Stjórnvöld í Bandaríkj- unum og Evrópu, sem eru stórkaup- endur á olíu frá landinu, hafa lýst yfir áhyggjum af málinu og telja hættu á að yfirvöld séu sek um mannrétt- indabrot og virði ekki eignarétt ein- staklinga. Blaðið segir olíuviðskipti við Aserbaídsjan hafa orðið ótraust- ari í kjölfar breytts eignarhalds á Az- petrol. Frelsi fjölmiðla skert Á sama tíma og góðvinum forset- ans eru færð verðmætustu fyrirtæki landsins á silfurfati eiga fjölmiðl- ar, sem ekki eru hliðhollir stjórn- inni undir högg að sækja ef marka má fréttir vikunnar. Þannig hafa tvö dagblöð ekki komið út síðustu daga vegna þess að byggingunni sem hýsir blöðin var lokað vegna lélegs ástands. Áður höfðu fangelsisdóm- ar yfir nokkrum blaðamönnum vak- ið athygli og alþjóðleg samtök blaða- manna segja hvergi fleiri blaðamenn í haldi en í Aserbaídsjan. Talsmaður stjórnvalda vísar á bug gagnrýni um að verið sé að skerða frelsi fjölmiðla í landinu og bendir á að blaðamenn verði eins og aðrir þegnar að fara eft- ir lögum landsins. Þessi dæmi sína að litlar líkur eru á að Alijev forseti muni ráðstafa olíugróða landsins á annan hátt en spilltum einræðisherrum er tamt. Fjármagnið streymir ofan í vasa stuðningsmanna og þaggað er niður í andstæðingum hans með valdi eða peningum. Hvort vesturveldin fái forsetann til að breyta um stjórnar- hætti eða láti sem ekkert sé kemur í ljós en á meðan heldur misskipting- in að aukast í landinu og aðeins fáir njóta þeirra verðmætu auðlinda sem landið býr yfir. Vinir forsetans maka krókinn á meðan. Ilham Alijev Varð eftirmaður föður síns á forsetastóli. Er sak- aður um að misnota völd sín sem hafa auk- ist vegna mikils út- flutnings á olíu. Mehriban Aliyev, forsetafrú og þingmaður Er talin líklegur eftirmaður manns síns í starfi. Verslunargata í Baku Olíu- gróðinn í aserbaídsjan hefur laðað vestrænar verslanir að höfuðborg landsins, Baku. Talabani í megrun Forseti Íraks Jalal Talab- ani hefur verið lagður inn á heilsuhæli fyrir offitusjúk- linga í Bandaríkjunum. Hann er sjötíu og þriggja ára gamall og hefur undanfarið kvartað undan máttleysi sem rakið er til holdafars hans. Fyrr á ár- inu lá forsetinn á sjúkrahúsi í Amman í Jórdaníu eftir að hafa hnigið niður. Margir nafntog- aðir einstaklingar hafa leitað sér hjálpar á heilsuhælinu sem Talabani dvelur nú á, þar á meðal Ronald Reagan og John F. Kennedy forsetar Bandaríkj- anna. Svíum brugðið Sænsk, dönsk og norsk ung- menni lenda einna oftast í því að drekka of mikið í einu sam- kvæmt nýrri könnun Svenska Dagbladet. Um fjórðungur Skandínavanna, á aldrinum 15 til 16 ára, höfðu drukkið meira en fimm drykki í einu á eins mánaðar tímabili. Svíar eru í áfalli og segja að áfengisvarnir landsins hafi brostið. Reyndar drekka Írar, Bretar og Hollend- ingar aðeins meira. Íslensk ung- menni virðast samkvæmt þessari könnun verða einna hógværust í Evrópu en um 11 prósent þeirra féllu í þá gryfju að drekka meira en fimm drykki sama kvöldið. Skarfurinn flýgur Skarv, einn frægasti pöbb Danmerkur í huga Færeyinga og jafnvel Íslendinga, hefur náð flugi á ný. Skarfurinn, sem er í Pile- stræde 43–45, var upphaflega stofnaður af færeyska athafna- manninum Dánjal Petur Thor- steinsson árið 1975 og þar sátu brottfluttir frændurnir oftar en ekki að skrafi og ef til vill drykkju. Kúnnahópurinn breyttist þegar árin liðu og upp úr aldamótun- um lognaðist starfið rólega út af. Með breytingum á Skarfin- um árið 2006 er meiri áhersla nú lögð á flutning lifandi tónlistar og hefur íslenskum og nú dönsk- um kúnnum fjölgað á ný. Núver- ið spiluðu Pétur Ben og Lay Low á Diskótekinu Skarfinum, eins og hann er nú oft nefndur, við góðar undirtektir. Borga innflytjend- um fyrir að fara Innflytjendafjölskyldum með tvö börn verður borgað sem samsvarar hálfri milljón íslenskra króna flytji þær frá Frakklandi. Þetta er liður í átaki nýrrar ríkisstjórnar Nicol- as Sarkozy forseta til að fækka fólki með flóttamannabak- grunn í landinu. Innflytjend- um var gert sams konar tilboð fyrir tveimur árum og tóku þrjú þúsund manns því. Talið er að um fimm milljónir innflytj- enda búi í Frakklandi og hefur Sarkozy viðurkennt að hann telji það of mikið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.