Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Síða 12
Föstudagur 25. maí 200712 Helgarblað DV
Í glóðvolgum stjórnarsáttmála þeirra Geirs Haarde og Ingi-bjargar Sólrúnar Gísladóttur er að finna ákvæði um að auk-
in þróunarsamvinna, mannréttindi
og áhersla á friðsamlegar úrlausnir
deilumála skuli verða hornsteinar ís-
lenskrar utanríkisstefnu. Það kemur í
hlut Ingibjargar Sólrúnar, nýskipaðs
utanríkisráðherra, að fylgja þessari
stefnu úr hlaði.
Fráfarandi utanríkisráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, lagði fram
skýrslu í mars um starfsemi og fram-
tíð Þróunarsamvinnustofnunar Ís-
lands, ÞSSÍ. Skýrslan olli nokkru
fjaðrafoki meðal starfsfólks ÞSSÍ, sem
taldi að skipulagsbreytingar á stofn-
uninni ógnuðu starfsöryggi sínu. Til-
lögur Valgerðar eru þó í nokkru sam-
ræmi við það hvernig sambærilegar
stofnanir eru reknar erlendis.
Þröngur stakkur sniðinn
„Lögin um ÞSSÍ setja stofnuninni
þröngan ramma hvað varðar sam-
starf við aðra og hvaða aðferðum
skuli fylgt við verkefnaframkvæmd,“
segir í skýrslunni. Í lögum um stofn-
unina segir að ÞSSÍ skuli ætíð hafa
yfirstjórn með þeim verkefnum sem
hún sinnir. Þetta telur Valgerður að
geri Þróunarsamvinnustofnuninni
erfitt um vik með að þróa nýjar leið-
ir í samstarfi við aðrar stofnanir og
samtök. Bjóða megi verkefnin út og
auka þannig hagræðingu. „Með því
er dregið úr óhagræði og yfirbygg-
ingu stjórnsýslunnar og henni fyrst
og fremst falið eftirlitshlutverk í stað
þess að sjá bæði um framkvæmd og
reglulegt eftirlit,“ segir í skýrslu ráð-
herrans.
Íslenska stofnunin PEP Inter-
national hefur unnið þróunarstarf á
vegum Sænsku þróunarsamvinnu-
stofnunarinnar, SIDA, sem verktaki.
Auðunn Bjarni Ólafsson hjá PEP
hefur bent á að það geti aldrei verið
heillavænlegt að sama ríkisstofnun-
in sjái um stefnumótun, fjárframlög,
framkvæmd, skýrslugerð og eftirlit
með sjálfri sér.
SIDA með útboð
Vasko Hadzievski, starfsmaður
SIDA í Skopje, segir að hefð sé fyrir
því að stofnunin nýti sér þjónustu
annarra stofnana og samtaka með
útboðum.
„Þarna er ég að tala um samtök
á borð við Kvinna till kvinna, sem
vinna að jafnréttismálum og upp-
byggingu kvennahreyfingar. Síðan er
það Olof Palme-stofnunin. Þá hefur
Sænska Helsinkinefndin unnið tals-
vert á vegum SIDA á Balkanskaga.
Forum Syd eru líka regnhlífarsam-
tök stofnana sem unnið hafa á okkar
vegum. Þetta eru allt stórar sænskar
sjálfstæðar stofnanir sem vinna að
verkefnum á vegum SIDA í Make-
dóníu. Önnur verkefni eru unnin á
vegum ráðgjafarfyrirtækja og ann-
arra stofnana. Þessu til viðbótar eru
þegar tvær makedónískar sjálfstætt
starfandi stofnanir sem vinna nú
að þróunarmálum fyrir SIDA,“ segir
Hadzievski.
Engin reynsla til
„Okkar vandi er sá að það er
varla nokkurt íslenskt fyrirtæki sem
hefur reynslu af því að starfa í þró-
unarverkefnum. Það sama gildir
um frjálsu félagasamtökin hérna,“
segir Sighvatur Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri ÞSSÍ, þegar hugmynd-
ir um útboð á verkefnum stofnunar-
innar eru bornar undir hann.
Starfsfólk stofnunarinnar sendi
Valgerði Sverrisdóttur bréf þar sem
gerðar eru ítarlegar athugasemd-
ir við skýrsluna. Í þessu bréfi lýsa
starfsmennirnir áhyggjum af því að
verði verkefni stofnunarinnar boð-
in út muni það skapa hættu á því að
illa verði farið með almannafé. Sig-
hvatur Björgvinsson lýsti sig sam-
mála starfsfólki ÞSSÍ.
Í viðtali DV við Auðun Bjarna
Ólafsson kom fram að hann hefði
gefið ÞSSÍ það til kynna að stofnun
hans gæti tekið að sér uppbygging-
arverkefni á Sri Lanka. Auðunn seg-
ir stjórnendur stofnunarinnar hafa
bent á að samkvæmt lögum yrði
ÞSSÍ að standa sjálf að eigin verk-
efnum.
Aðild að Evrópusambandi
Lífsnauðsynlegri þróunarað-
stoð á borð við það að tryggja ferskt
vatn og húsaskjól fyrir íbúa fyrrum
Júgóslavíu er nú lokið. Við tók starf
sem fyrst og fremst miðar að því að
losa löndin undan miðstýringu, efla
lýðræðislega hugsun og sjálfstæði
sveitar- og bæjarstjórna og tryggja
mannréttindi og jafnrétti.
Hadzievski segir þessa vinnu
vera tímafreka en hún skilji jafn-
framt mest eftir sig. „Meginmark-
miðið með þessu starfi er aðlögun
að Evrópusambandinu og á endan-
um full aðild að ESB,“ segir Hadzi-
evski.
Þetta er nokkuð sem Íslending-
ar standa frammi fyrir í andránni.
„Ríki Evrópusambandsins eru mik-
ilvægasta markaðssvæði Íslands.
Samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið hefur reynst þjóðinni
vel og hann er ein af grunnstoðum
öflugs efnahagslífs þjóðarinnar,“
segir í nýja stjórnarsáttmálanum.
Nýja ríkisstjórnin vill að skýrsla sem
svokölluð Evrópunefnd skilaði af sér
snemma á árinu verði grundvöll-
ur að nánari athugun á því hvernig
hagsmunum Íslendinga verði best
borgið gagnvart Evrópusamband-
inu. Meirihluti Evrópunefndar var
eindregið andsnúinn aðild að sam-
bandinu.
sigtryggur@dv.is
Í nýjum stjórnarsáttmála er kveðið á um aukna þróunarsamvinnu. Valgerður Sverrisdóttir lagði í vetur til að
Þróunarsamvinnustofnun Íslands, ÞSSÍ, yrði með lagabreytingu auðveldað að bjóða út verkefni. Þetta muni
leiða til hagræðingar og starfsemin verði líkari því sem gerist í nágrannalöndum þar sem löng reynsla er af
þróunaraðstoð. Starfsfólk ÞSSÍ er andsnúið þessum breytingum.
„Okkar vandi er sá að
það er varla nokkurt
íslenskt fyrirtæki sem
hefur reynslu af því að
starfa í þróunarverk-
efnum. Það sama gildir
um frjálsu félagasam-
tökin hérna.“
ÞARF AÐ HAGRÆÐA Í ÞSSÍ
Nýr utanríkisráðherra
Ingibjargar sólrúnar gísladóttur bíður
það verkefni, samkvæmt stjórnarsátt-
mála, að vinna að aukinni þróunarsam-
vinnu, mannréttindum og friðsamlegum
úrlausnum á alþjóðlegum deilum. Forveri
hennar Valgerður sverrisdóttir gaf út
skýrslu þar sem hún taldi að breyta þyrfti
starfsaðferðum Þróunarsamvinnustofn-
unar íslands til þess að auka hagkvæmni
og minnka yfirbyggingu.
Flóttamannabúðir í Bosníu
sameinuðu þjóðirnar settu upp flóttamannabúðir víðs vegar um Balkanskaga þegar stórir
hópar fólks lentu á vergangi í löndum þar sem frost getur náð þrjátíu gráðum. í þessum
búðum í Bosníu hefur hópur sígauna komið sér fyrir. Þeir báðu blaðamann vinsamlegast að
hafa með sér súkkulaði handa börnunum, næst þegar hann ætti leið um.