Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Blaðsíða 19
Í síðustu viku ræddi DV við Atla Eðvaldsson um stöðu íslenskr- ar knattspyrnu og nú er komið að Loga Ólafssyni fyrrverandi lands- liðsþjálfari og núverandi lífskúnst- ner að segja sína skoðun. Hann tel- ur knattspyrnu vera á uppleið en leggja þurfi meiri áherslu á ólíkar tegundir leikmannna í stað þess að einblína eingöngu á vinnusemi. „Ég held að það hafi orðið gríð- arlegar framfarir á undanförnum tíu árum. Þetta segi ég jafnvel þótt félagslið hafi ekki náð að sína næg- an styrk í alþjóðlegum keppnum. Í því samhengi verður að athuga að það helgast af því að erlendist spila eitthvers staðar á bilinu 40-50 ís- lenskir leikmenn og því ekki von á jafn góðum árángri í Evrópukeppni og ef þeir væru að spila heima. Framfarir hér á landi hafa sér- staklega komið fram í aukinni boltatækni og meiri hraða í leikn- um. Fyrst og fremst er ástæðan fyr- ir þessu tilkoma gervigrasvalla hér fyrir 10-15 árum síðan sem gerði það að verkum að hægt er að bæta boltatækni. Síðan hafa hallirnar gert þetta enn þá betra,“ segir Logi. Leikmenn vita ekki hvar þeir eiga að vera „Það sem við getum helst bætt okkur í er leikskilningur og takt- ísk þjálfun. Sú gagnrýni sem ég hef fengið í gegnum tíðina frá er- lendum sérfræðingum, lýtur að því að íslenskir leikmenn eru takt- ískt „ruglaðir“ og við þurfum að æfa þessa hluti betur svo leikmenn viti betur sitt hlutverk í liðinu. Ég held að aðstæður og veðurfar hafi eitthvað um þetta að segja og þeg- ar við þjálfararnir erum að setja upp æfingu gefst lítið svigrúm til þess að stoppa og leiðrétta menn í staðsetningum og slíku. Það get- ur endað með því að menn fái háls- og blöðrubólgu eftir æfingu,“ segir Logi hress í bragði. Aukinn hraði „Hraði í leikjum hefur aukist vegna þess að menn ráða betur við boltann og geta haldið knettinum betur innan liðs. En ég er ekki að segja að þetta sé orðið fullkomið því það vantar töluvert upp á að við náum þeim allra bestu í hraða. Viðhorf leikmanna hefur breyst hér á landi eftir að mönnum var ljóst að þeir gátu haft eitthvað upp úr þessu peningalega. Menn sjá núna að það er hægt að hafa þetta að atvinnu sinni í framtíðinni. Menn eru tilbúnir að leggja mikið á sig til þess að svo megi vera en það hefur í staðinn komið í veg fyrir að menn spili með hjartanu. Ef þær sögur eru réttar sem mað- ur heyrir af launum manna. Því sé ég hér svipað uppi á teningnum og var í Noregi á sínum tíma. Ég tel að innan örfárra ára muni stærstu klúbbarnir FH, KR, Valur og ÍA hafa sína leikmenn alla á launum og þeir munu vinna hálfan daginn,“ segir Logi af mikilli forspá. Þufum ólíka leikmenn „Eitt lið verður aldrei gott nema að það sé ákveðið jafnvægi í lið- inu. Sumir með afburðatækni, aðr- ir með afburða hraða, leikskilning og sterkir skallamenn. Hingað til höfum við verið of einsleitir í því að búa til ákveðna tegund af leik- mönnum. Við verðum að sjá þá hæfileika í leikmönnum sem búa í hverjum og einum. Það hefur ver- ið ákveðin tilhneiging til þess að steypa alla í sama mót. Hér voru uppi ákveðnar hug- myndir um tíma hjá KSÍ þar sem átti að búa til nokkurs konar afreks- hóp þar sem átti að leggja meiri rækt við það að finna hæfileikaríka leikmenn en því miður voru þessi áform lögð til hliðar,“ segir Logi dapur í bragði. Þjálfun snýst ekki um að öskra hátt „Ég held að það séu fleiri á sama máli, en ég tel að endurnýjun þjálf- ara sé ekki nægilega mikil. Ástæð- an fyrir því er kannski sú að það vanti aðstæður til þess. Ég hef fulla trú á því að menn hafi vilja til þess að bæta sig. En það vantar að menn hafi tækifæri til þess að einbeita sér bara að þessu en ekki þurfa að vinna með. Þannig geta þeir fylgst með þeim straumum sem eru í gangi í fótboltaheiminum. Við þurfum að skilja það á Ís- landi að þjálfun snýst ekki bara um að öskra nógu hátt. Þetta eru orð- in heilmikil vísindi og fræðigrein. Ég tel að það sé betra að ýta und- ir mikla hæfileika í fóbolta hjá leik- mönnum og fara fram á það við þá að þeir séu í góðu formi. Í stað þess að gera mikið með leikmenn sem hafa litla hæfileika í fótbolta en eru eins og minkur í mannaskít úti á velli og út um allar jarðir,“ segir Logi að lokum. DV Sport MÁNudagur 18. JÚNÍ 2007 19 Logi Ólafsson gefur sitt álit á íslenskri knattspyrnu í þess- ari viku. Logi segir að hér vanti meiri áherslu á leikskiln- ing og taktík, þó hraði og boltatækni hafi aukist. EKKI NÓG AÐ ÖSKRA HÁTT Hafsjór af fróðleik Logi er mikill knattspyrnusérfræðing- ur og fjölmiðlar brynna þorsta sínum gjarnan af hans viskubrunni. „Hraði í leikjum hef- ur aukist vegna þess að menn ráða betur við boltann og geta haldið knettinum betur innan liðs. En ég er ekki að segja að þetta sé orðið full- komið því það vant- ar töluvert upp á að við náum þeim allra bestu í hraða. Stjórn Arsenal mun ekki hindra Henry í að fara til Barcelona, vilji hann það: Arsene Wenger ræður ferðinni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.