Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Blaðsíða 30
MÁNudagur 18. JÚNÍ 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkassinn XXX RottweileRhundaR hafa tekið upp á því að opna blogg- síðu til höfuðs Óskari Axeli Óskarssyni eins af eigend- um útvarps- stöðvarinn- ar Flass104.5. Ástæðuna fyrir síðunni segja Rottweiler- hundar vera þá að Óskar skuldi þeim félögum pening sem þeir áttu að fá greitt fyrir að spila á tónleikum á vegum Flass í fyrra. Enda heitir síðan www.oskarax- elskuldarpening.blogspot.com. Ég hef heyrt að skuldin hlaupi á hundruðum þúsunda og skil ég vel að Rottweiler menn séu orðnir þreyttir á því að vera snuðaðir um greiðslu. Það er spurning hvort að hér sé í fæðingu ný aðferð handrukk- unar eða öllu heldur netrukk- un. Kannski fer maður að sjá handrukkara þjóðarinnar opna til dæmis síðu sem heitir www. diddiaugaskuldarfyrirkókaín. blogspot.com? Nei ég skil Rott- weiler menn vel. Það er ömur- legt þegar menn standa ekki skuldbindingar sínar. en svo ég snúi méR að aðeins meira léttmeti þá ætla ég sem kjóla- og slúð- urmeistari DV að leyfa mér aðeins að ræða um þær vinkon- ur Britney Spears og Lindsay Lo- han. Britney gerir nýlega grín að starfssystur sinni Lindsay Lohan á heima- síðu sinni. Britney bað aðdá- endur sína um að hjálpa sér að velja titil á nýjustu plötuna sína og var einn af möguleikunum klárt skot á Lohan og vand- ræði henn- ar en greyið skráði sig ný- lega í meðferð. Er þetta ekki svolítið eins og ef kontal- genfíkillinn Jói úr þættinum Kompás færi að gera grín af Guggu? Það er nú ekki meira en nokkrir mán- uðir síðan að Britney rakaði af sér háríð, fór í meðferð og skeit bara almennt í degið. Ekki nóg með það heldur birtast myndir af henni daglega með annað hvort túttuna eða rassinn úti. Sorrí, varð bara létta aðeins á mér varðandi þetta. en þaR sem ég talaði síðasliðinn mánudag um USB-goskælinn þá verð ég nú að segja ykkur frá allra heitustu USB-græjunni. Já við erum að tala um USB- rassakæli. Notalega sessu sem þú tengir einfaldlega í USB-tengið á tövunni þinni og hún blæs köldu og fersku lofti á afturendann. Er það bara ég eða hljómar þetta ekki eins og eitt- hvað sem að Gummi í Byrginu þyrfti á að halda eftir erfiða helgi? Ásgeir Jónsson veltir hlutunum fyrir sér Jón Vigfússon er nemandi við Menntaskólann á Egilsstöðum. Ólíkt flestum jafnöldrum sínum bauðst Jóni, sem er á sautjánda aldursári, draumastarfið sitt nú í vor. Hann greip gæsina þegar hún gafst og starfar nú sem atvinnuleikari við leikhús Frú Normu. Þegar Jón er spurður hvernig 16 ára piltur fái starf sem atvinnuleik- ari segir hann: „Guðjón Sigvaldason, leikstjóri hringdi einfaldlega í mig og sagðist hafa mikinn áhuga á að fá mig til starfa í sumar. Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um enda hef ég mjög gaman að því að leika.“ Jón hefur unnið með Guðjóni áður svo þeir þekkjast orðið vel. „Ég tók þátt í 40 ára afmælissýningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs, en þá settum við upp sýningu í skóginum. Í hitt skiptið lék ég með leikfélagi Menntaskólans á Egilsstöðum þar sem við settum upp leiksýninguna Súper Maríó.“ Tvö verk í sumar Leikhúsið Frú Norma setur nú upp gamanleiksýninguna Nátthrafn- ar, en Jón segir að um þróunarverk sé að ræða. „Verkið var líka sett upp í fyrra en er nú sýnt í endurbættri útgáfu“. Frumsýningin var miðviku- daginn 14. júní og fékk að sögn Jóns, frábærar viðtökur. „Við buðum bæj- arstjórninni og formönnum menn- ingarráðs Austurlands að koma. Sýn- ingin gekk frábærlega og við fengum mjög góðar viðtökur. Eftir sýninguna þökkuðu þau okkur kærlega fyrir þetta framlag til menningarlífsins á Austurlandi. Þetta var frábært kvöld,“ segir Jón en leikfélagið mun einnig setja upp barnasýningu þegar líður á sumarið sem sýnd verður um allt Austurland. Öfundaður af jafnöldum Jón hefur ekki áður unnið fyr- ir sér sem leikari, en viðurkennir að þetta sé frábær vinna: „Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef unnið við að leika. Allt annað sem ég hef leikið í hefur verið áhugaleikhús þannig að þetta er svolítið nýtt,“ segir Jón sem hefur þrjú hlutverk í sýningunni. „Ég leik barþjón auk þess sem ég er bæði ljósa- og hljóðmaður í sýning- unni. Hinir leikararnir, Halldóra Mal- ín Pétursdóttir og Stefán Benedikt Vilhelmsson, hafa líka þrjú hlutverk þannig að það er í nógu að snúast meðan á sýningunni stendur.“ Jón viðurkennir að hann finni fyrir öfund jafnaldra sinna, sem flestir vinna við hefðbundin sumarstörf ungmenna. „Þeim finnst ósanngjarnt að ég skuli fá borgað fyrir að leika mér,“ segir Jón í léttum tón en þessi efnilegi piltur stefnir á leiklist í framtíðinni. „Þetta er það sem ég hef hugsað mér að gera í lífinu og þess vegna er frábært tæki- færi að hafa fengið vinnu við alvöru leikhús, svona ungur.“ baldur@dv.is Jón Vigfússon er líklega einn yngsti atvinnuleikari landsins. Hann er einn þriggja leikara í gamanleiksýningunni Nátthrafn- ar sem Leikhús Frú Normu setur upp á Egilsstöðum. Í dag Á morgun Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +11 5 xx xx +122 xx +12 2 +12 3 xx xx +12 3 xx +12 3 xx xx +12 3 +13 2 xx xx xx xx xx +10 3 xx xx +133 -xx Tengsl ...Teitur Þórðarson á það sameiginlegt með... ...Sigurði Jónssyni að hafa þjálfað lið í Svíþjóð. Sigurður á það sameiginlegt með ...Loga Ólafssyni að hafa þjálfað Víkinga. Logi á það sameiginlegt með ...Guðjóni Þórðarsyni að hafa gert smálið óvænt að Íslands- meisturum. Guðjón á það sameiginlegt með ...Bjarna Sveinbjörnssyni að hafa leikið einn landsleik fyrir Íslands hönd. Bjarni á það sameiginlegt með ...Lárusi Orra Sigurðssyni að hafa leikið með Þór. Lárus Orri á það sameiginlegt með ...Bjarna Guðjónssyni að hafa verið á mála hjá Stoke City. Bjarni á það sameiginlegt með ...Arnari Grétarssyni að hafa snúið aftur úr atvinnu- mennsku síðasta sumar. Arnar á það sameiginlegt með ...Rúnari Kristinssyni að hafa leikið með Lokeren. Rúnar á það sameiginlegt með ...Heimi Guðjónssyni að hafa slegið í gegn með KR. Heimir á það sameiginlegt með ...Leifi Garðars- syni að hafa verið aðstoðar- maður Ólafs Jóhannessonar hjá FH. Leifur á það sameigin- legt með ...Aðalsteini Víglundssyni að hafa þjálfað Fylki. Aðalsteinn á það sameiginlegt með ...Ólafi Þórðarsyni að hafa leikið með ÍA. Ólafur á það sameiginlegt með ...Teiti Þórðarsyni að hafa ekki fagnað sigri það sem af er Íslandsmóti. Jón Viðurkennir að hann finni fyrir öfund jafnaldra sinna. 16 áRa atvinnu- leikaRi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.