Kjarninn - 13.03.2014, Blaðsíða 5
02/04 Leiðari
Margt í þessu ferli hefur orkað tvímælis, svo ekki sé fastar
að orði kveðið, en útkoman rennir stoðum undir viðspyrnu
atvinnulífsins um þessar mundir.
augljóst einkenni skammtímahugsunar
Stundum er ekki annað að skilja á stjórnmálamönnum, sama
í hvaða flokki þeir eru, að allt sem vel er gert í hagkerfinu sé
vegna þess að þeir séu að gera eitthvað rétt. Þetta er í besta
falli einföldun. Stjórnmálamenn geta vel verið svo til stefnu-
lausir og skammsýnir í næstum öllum aðgerðum sínum á
sama tíma og efnahagslífið skilar góðum tölulegum árangri.
Besti árangurinn næst þegar einka geirinn
og stjórnmálamenn vinna saman, til dæmis
á sviði menntamála og þegar kemur að
langtíma stefnumörkun á ýmsum sviðum.
Eitt augljósasta einkenni skamm-
tímahugsunar stjórnmálamanna er stóriðju-
búskapurinn sem er að grunni til sósíalísk
hugmyndafræði. Hér á Íslandi hefur þessi
hugmyndafræði birst svona; ríkið eða sveitarfélög, í gegnum
dótturfélög, fjármagna virkjanir með lánum í erlendri mynt,
oft eftir að hafa tekið auðlindir á einkajörðum eignarnámi.
Síðan er veðjað á að afleiðuviðskipti með rafmagn borgi sig
til lengdar. Um 80 prósent af allri raforku sem framleidd
er í landinu tilheyra áhættusömum afleiðuviðskiptum sem
íslenska ríkið stundar með rafmagn. Árið 2014, þegar flest
þróuð ríki eru að reyna að koma sér út úr auðlindadrifnum
atvinnuvegum og reyna að virkja hugvitið í meiri mæli, er
hlutdeild þessarar starfsemi í íslensku atvinnulífi mikið
umhugsunarefni. Vissulega skapast störf en þau eru dýru
verði keypt, hvort sem talið er í beinhörðum peningum eða
fórnum náttúrulegra gæða. Meira en 500 milljarða skuldir
Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur, tveggja stærstu
orkufyrirtækjanna, eru opinber fjárfesting í þessum störfum,
beint og óbeint. Það er mikið fyrir lítið.
Stóriðjubúskapur stjórnmálamanna birtist reyndar
í ýmsum myndum. Stjórnarþingmaðurinn Þorsteinn
„Besti árangur-
inn næst þegar
einkageirinn og
stjórnmála menn
vinna saman ...“