Kjarninn - 13.03.2014, Blaðsíða 49
05/07 viðtaL
viljum virkja þjóðina
Það finnst Björk, og hinum sem standa að „Stopp – Gætum
garðsins!“, ekki boðlegt. Hún vonast til þess að viðburður-
inn nái að vekja meðvitund um málið og skili því að lögin
muni taka gildi á þeim tíma sem upphaflega var lagt upp
með, 1. apríl næstkomandi. „Við viljum að málið verði ekki
kæft í hel. Að lögin fái að taka gildi. Það er ótrúlega mik-
il vinna og barátta búin að fara í að semja þessi lög. Frá
mörgum mismunandi umhverfisráðherrum og þverpóli-
tískt. Og það er ótrúleg lítilsvirðing að aflýsa þeim bara sí
svona. Síðan langar okkur mikið að sýna stuðning við bæði
Náttúrverndar samtökin og Landvernd. Við viljum virkja
þjóðina í fjársöfnun svo að samtökin geti
starfað af fullum styrk og sem fulltrúar
okkar og náttúrunnar. Svo þau geti ráðið
sér lögmenn, prentað plaköt og verið með
alvöru skotfæri til að fylgja þessu máli
alla leið.“
vonar að ríkisstjórnin hlusti
Það eru, svo vægt sé til orða tekið, ófriðartímar í íslenskum
stjórnmálum. Evrópusambandsmálið, breytingar á lögum um
Seðlabanka, ósannsögli fjölmargra stjórnmálamanna og svo
auðvitað náttúruverndarlögin eru á meðal þess sem skekur
íslenska þjóðmálaumræðu. Óróleikinn hefur meðal annars
endurspeglast í endurteknum fjöldamótmælum á Austurvelli.
Telur Björk að þessi óróleiki, og jafnvel óþol, sem ríkir gagn-
vart íslenskum stjórnmálum um þessar mundir muni gagnast
þeim málstað sem hún hefur ákveðið að leggja lið?
„Við Grímur ákváðum þetta í janúar og vorum þá aðal-
lega að hugsa um lögin sem áttu að taka gildi 1. apríl. Þannig
að það er tilviljun að þetta raðast svona upp. En ég vona að
þessi orka flæði öll í góða átt. Og að þessi ríkisstjórn hlusti á
þjóðina sína.“
„En ég vona að þessi orka flæði
öll í góða átt. Og að þessi ríkis-
stjórn hlusti á þjóðina sína.“