Kjarninn - 13.03.2014, Page 53

Kjarninn - 13.03.2014, Page 53
01/01 SpeS 01/01 spes kjarninn 13. mars 2014 SpeS )DVWHLJQDVDODUJULSQLUJOµ²YROJLŪ YLWODXVXU¼PL festir á filmu við framhjáhald í sölueign r obert Lindsay og Jeannemarie Phelan hafa verið kærð fyrir að nota fasteign sem þau voru með í sölu fyrir framhjáhald. Fasteignin sem um ræðir var í eigu manns með nafnið skemmtilega Dick Weiner. Fasteignasalarnir eru sakaðir um að hafa verðlagt húsið allt of hátt, og þar með út af fasteignamarkaðnum, í því skyni að koma í veg fyrir sölu þess svo mánuðum skipti. Það sem þau Robert og Jeannemarie vissu hins vegar ekki, en hefðu kannski átt að vita um fasteignina sem þau voru með í sölu, var að húsið er útbúið öryggis- myndavélum. Þegar kona Weiners var að skoða upptökur úr myndavélunum einn daginn komst upp um framhjáhaldið. Robert og Jeannemarie uppgötvuðu hins vegar að ástarleikir þeirra höfðu verið festir á myndband, eins og fréttamyndin hér að ofan ber með sér, en þar horfa framhjáhaldararnir beint í linsu öryggis- myndavélarinnar með hjónarúm í bakgrunni. Fasteignasalan hefur sagt tvímenn- ingunum upp störfum.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.