Kjarninn - 13.03.2014, Page 89
02/03 kjaftæði
sá fram á mánuð af leiðindaauglýsingum og plöggi fyrir
kosningar sem ég hafði engan áhuga á, þar sem frambjóð-
endur hlupu á hundruðum. Því ákvað ég að fara í pásu. Þetta
skapaði hins vegar ákveðið vandamál í gangverki heilans,
eins og það var orðið. Fljótlega komst ég að því að ég hafði
til hneigingu til að móta allar hugsanir mínar í status sem
mætti setja á Facebook. Hin ósjálfráða hugsun var: „Hvernig
get ég orðað þetta sem status?“ Mér leið eins og heyrnar-
lausum manni með bökunarhanska sem voru límdir á hann
með málaralímbandi, þar sem ég hafði engin
úrræði til að tjá mig. Þessi stóðhestur varð
því að láta duga að dreifa afurð sinni í bolla
frekar en hryssu: Ég kom þessum pælingum
til vina og fjölskyldu í staðinn.
Það er til marks um hvað Facebook hefur
mikil áhrif að það skipar svona stóran sess
í hugsunum fólks. Önnur félagsnet hafa
ekki náð þessum áhrifum. Myspace missti af
lestinni og LinkedIn hefur ekki náð að hasla
sér völl þó að það sé eldra en Facebook. Ég
var reyndar lengi vel ekki alveg með það á
hreinu hvaða tilgangi LinkedIn þjónaði. Ég
skráði mig á þetta og tengdist öðru fólki
þar, en hafði svo ekki hugmynd um hvað fleira væri hægt
að gera. Tengjast fleira fólki? Mögulega væri þetta einhvers
konar pýramídasvindl, sem gerði ekkert annað en að stækka
og hefði ekkert til málanna að leggja. Nýlega komst ég þó
að því að það væri hægt að mæla með fólki. Skömmu síðar
átti ég í samskiptum við fasteignasala og ég var svo ánægður
með hann að heilinn minn reyndi að finna þessari ánægju
einhvern félagsnetsfarveg. Því hugsaði ég: Mikið langar mig
til að mæla með þessari manneskju á LinkedIn! Það getur því
verið að LinkedIn eigi eftir að sækja í sig veðrið.
be the first one to like this
Nú verð ég að játa eitt, sem ætti kannski ekki að koma þeim
neitt sérstaklega á óvart sem þekkja til mín á Facebook: Mér
„Mér leið eins og
heyrnar lausum
manni með
bökunar hanska
sem voru límdir á
hann með málara-
límbandi, þar sem
ég hafði engin úr-
ræði til að tjá mig.“