Innsýn - 01.12.1986, Síða 2

Innsýn - 01.12.1986, Síða 2
 * FRÁ RITSTJÓRNINNI -7T Árstíð skammdegisins hefur runnið upp á ný. Dagarnir verða styttri og styttri og hinir löngu, oft drungalegu vetrar- mánuðir liggja framundan. Þetta minnir okkur á hve nauðsynlegt ljósið er til þess að viðhalda lífinu. Hyrkrið virkar frá- hrindandi, og dregur úr okkur lífsþróttinn. En við vitum að hin myrkasta stund næturinnar er rétt fyrir dögun. Hátíð Ijóssins, jólin, gengur í garð, til að eyða myrkrinu um stund og minna okkur á að senn taka dagar að lengjast, senn tekur sól að hækka, sem er fyrsti vísir þess kraftaverks sem mun brjótast fram og opinberast með vori er lífið endurfæðist á nýjan leik eins og skainmdegi og vetrarfjötrar hafi aldrei verið til. En jólin minna einnig á að ekki einungis náttúrunni, heldur mannverunni sjálfri stendur vorið til boða. Hinn djúpi boðskapur jólanna er að með komu Krists, sonar Guðs til þessarar jarðar, lífs hans og dauða, var fræi vorsins sáð í hjörtu hvers og eins, og það getur þroskast og brotist fram í sannri lífsendurfæðingu vorsins við rétt skilyrði. David Harshall segir þetta: "Tii eru sannanir fyrir því aö fólk sem þekkir ekki til endur- 2 fæðingar þrái að taka þátt í þessari reynslu. Sjálfsmorð lýsir á mjög áhrifamikinn hátt örvænt- ingu þeirra sem gengið hafa öngstræti lífsins. En tölfræðilegar upplýsingar segja ekkert um alla þá sem halda áfram að borða, anda og sýna með sér lífsmark án þess að lifa raunverulega - fólk sem er dáið á meðan það er enn á lífi. Hið ófrjóa, tilgangslausa líf hrópar á endurfæðingu. Þetta fólk leitar hamingjunnar á öllum röngu stöðunum og það skapar sér guði úr öllu því sem gæti verið líklegt til þess að svala skemmtanafíkn þess. Sem tilfinningalegir rónar ráfar það áfram að næstu nýjung þegar hin síðasta er farin að gefa sig og er oröin leiðigjörn. Eðlilega á þetta ekki við um alla sem ekki hafa fæðst á ný, en þessi mynd á við um ótal einstaklinga hvers líf og hegðun kemur upp um þá og segir: ÉG þrái annað líf, ég er þreytt(ur) á þessu gamla lífi. Eðlileg skeið lífsins eru fæðing, barnsaldur, unglingsár, fullorðinsár og dauði. En dauðinn er ekki endi lífsins fyrir þann sem er fæddur á ný. Þessi skeið lífsins eru heldur ekki allt það sem lífið hefur upp á að bjóða þeim sem er endurfæddur. Vor endurfæðingar, geta átt sér stað á hvaða árstíma sem er!" Þetta er hinn sanni boðskapur jólanna sem Innsýn óskar að nái til þín kæri lesandi þessi jól. Hætti verk Guðs verða raunveruleiki í hjarta þínu. Innsýn er helgað þessu hlutverki að hvetja ungt fólk safnaðarins og þjóðfélagsins í heild til þess að uppgötva hið sanna líf. Það líf sem hefur gildi og tilgang. Við munum taka upp þá nýbreytni á komandi ári að verja einni eða tveimur síðum blaðsins til að birta spurningar frá ykkur, kæru lesendur, sem ritstjórnin mun leitast við að svara eftir fremsta megni. Þannig munum við reyna að komast í nánara sainband við lesendur og þannig einnig þjóna ykkur á raunhæfari hátt. En við þurfum á viðbrögðum frá ykkur að halda til þess að þetta takist! Innsýn þakkar auð- sýndan hlýhug í garð blaösins á liðnu ári í formi gjafa og á annan hátt. Innsýn þakkar einnig þeim sem hafa auðgað blaðið með ýmsu efni með ósk um áfram- haldandi gott samstarf á komandi ári og býður öllum lesendum sínum gleðilegra jóla góðs og blessaðs komandi árs. * Eric Guðmundsson.

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.