Innsýn - 01.12.1986, Blaðsíða 3

Innsýn - 01.12.1986, Blaðsíða 3
OG ENGLARNIR SUNGU Allur heimurinn var hnepptur í óvissu þessa nótt. En fyrir Guði var engin óvissa. Hann vissi hvað var raunverulegt. Á meðan að þegnar ísraels mögluðu og kvörtuðu yfir því að þurfa að ferðast svo langa leið til þess eins að skrá sig fyrir enn einn rómverskan skatt, fögnuðu þegnar himins yfir gjöf Guðs, syni sínum, til mannanna. Meðan fólkið gretti sig og sligaðist undan ánauð Rómverja, var allur himinninn upptekinn í gleðisöng yfir fæðingu Frelsarans. Meðan leiðtogar ísraels grétu yfir hinni fyrri dýrð þjóðar sinnar, sem nú var horfin, sungu englar himinsins "Dýrð sé Guði í upphæðum!" Getur þú ímyndað þér senuna á himnum? Allir englarnir voru spenntir. Þeir söfnuðust umhverfis Gabríel, og hvöttu hann áfram með höndum og orðum. "Áfram með þig Gabríel.. Spurðu hann. Farðu inn til hans og spurðu. Gerðu það." Gabríel hikar enn við, óviss. Hann spyr, "Eruð þið viss um að ég ætti að spyrja?" "Ó, já, já. Spurðu hann. Farðu til hans.!" Svo Gabríel lætur undan og fer inn til Föðurins. Þvílíkur dýrðarsalur það er! Hann hefur aldrei látið af undrun sinni yfir þessari dýrð. (Og Oesús í fjár- húsi!) Gabríel stendur frammi fyrir Konungi alheimsins, rennur til fótunum, taugaóstyrkur bærir hann vængina fram og aftur. Drottinn alsherjar snýr hlýjum augum sínum til Gabríels. "Oá, Gabríel, hvað er það? "Hann veit þegar, en Innsýn ó.tbl. 198ó 3

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.