Innsýn - 01.12.1986, Page 8
heitum hverum, eldgígum og
goshverum, með þverhníptum
skóglausum fjöllum og
flatlendi þakið hrauni.
Miðsumarsnæturnar eru
alltaf bjartar og vetrar-
næturnar eru langar. Hinir
mildu geislar miðnætur-
sólar sumarsins gefa
íslenska landslaginu
töfrandi svip, og hinar
löngu vetrarnætur eru oft
lýstar upp með hrífandi og
dularfuLlum norðurljósum.
Ég naut þeirra
forréttinda nú fyrir
skömmu að heimsækja
Sjöunda Daqs Aðvent-
söfnuðinn á Islandi ásamt
F.A. Tarr, formanni
Norður-Evrópu deildar-
innar, til að taka þátt í
aðalfundinum í Reykjavík
og einnig til þess að vera
viðstaddur hátíðlega
setningarathöfn nýs
framhaldsskóla, sem er um
það bil 50 km. frá
höfuðborginni.
Það var mjög ánægju-
legt að hitta aðvent-
söfnuðinn í hinni aðlað-
andi og rúmgóðu kirkju
okkar í Reykjavík, sem
skipar 120 safnaðar-
meðlimi. Við fréttum að
Sjöunda Dags Aðventistar
væri annar stærsti
sértrúarsöfnuðurinn á
eyjunni, hvíldardags-
skólameðlimir eru um 420
og safnaðarmeðlimir um
360. Við höfum 6 kirkjur,
2 safnaðarskóla og 1
framhaldsskóla. Þetta er
vissulega sambærilegt við
önnur samtök okkar af
svipaðri stærð, hvar sem
er í heiminum.
Séra 0. Guðmundsson,
safnaðarformaðurinn er
einlægur og trúrækinn
maður sem fólkið treystir
vel. Til 0.3. Olsen er
litið sem föður starfs
okkar á ísiandi, og hann
miðlar kærleika og aðstoð
til flokksins sem hann
hefur gætt í meira en
þrjátíu ár. Boðskapur
þriðja engilsins kom fyrst
að ströndum landsins árið
1886.
Við eigum góðan
æskuhóp á íslandi. Ellefu
ungmenni sóttu ungmenna-
mótið í París síðasta
sumar. Fimm ungmenni á
eyjunni hafa nýlega tekið
við aðventboðskapnum
gegnum Biblíubréfaskólann.
21 árs ungur hæfileika-
ríkur maður hefur nýlokið
námi við kennaraskólann í
Reykjavík og starfar nú
sem kennari við nýja
skólann okkar. Annar
ungur maður er í fram-
haldsnámi á Newbold
College á Englandi þetta
ár.
Eins og ég sagði áðan
þá var það okkur for-
réttindi að fá.að vera á
opnunarhátíð íslenska
skólans okkar, sem er
staðsettur í grasi gróinni
hlíð til móts við hafið.
Skólinn er falleg, vel
byggð bygging og getur
rúmað allt að 50 nemendur.
Fyrst þegar ég leit
skólann fylltist ég
einmanakennd, en sú
tilfinning hvarf fljót-
lega. Hið víðáttumikla
opna skógarlausa svaeði
allt í kring, hafið í
fjarska, hraunbreiðurnar í
hlíðunum og fjöllunum
ásamt hinu tæra og ferska
lofti gagntók mig og ég
fann að hér var staður sem
Guð myndi vera nærri og
þar sem mörg íslensk
ungmenni myndu hlýða á
fagnaðarerindið og taka
kallinu um þjónustu.
íbúatala íslands er um
140.000 og landið hefur
verið byggt í meira en
þúsund ár. Víkingar frá
Skandinavíu komu fyrstir
hingað, og því er haldið
fram að íbúarnir hér tali
elsta og hreinasta málið
af skandínavíubúum. Fólkið
er greint, kurteist og
friðelskandi, og hefur
tilhneigingu til að vera
örlítið feimnari en
evrópskir nágrannar
þeirra. ísland er
lýðveldi og hefur eigin
háskóla og verslunarskóla.
Þetta fólk öfundar engan
og er nátengt sinni litlu
eyju með þeirri einangrun
sem hún veitir frá
^hyggjum og erjum annarra
og stærri landa.
Sumir áhugaverðir
amlir siðir tíðkast enn á
slandi. Td. breytir kona
ekki eftirnafni sínu við
giftingu. Flest eftirnöfn
enda á -son eða -dóttir.
Ef skírnarnafn föður er
Guðmundur, þá verður
eftirnafn sonarins
Guðmundsson og eftirnafn
dótturinnar Guðmunds-
dóttir, og hún heldur
þessu nafni einnig eftir
giftingu. Samt sem áður
eru allir kallaðir eftir
skírnarnafni. Safnaðar-
formaðurinn heitir Júlíus
Guðmundsson, en bæði ungir
sem aldnir kalla hann
3úlíus.
Á hverju heiðskíru
kvöldi, meðan á heimsókn
okkar stóð, vorum við
heiðraðir með stórbrotinni
sýningu norðurljósanna.
Hvorki séra Tarr né ég
höfðum séð þau fyrr. Með
mikilli hrifningu horfðum
við á þessa dularfullu
ljósgeisla þeysa um
himinhvolfið, litirnir
margvíslegir, hlykkjandi
og bylgjandi í nýstárlegar
myndir, og stundum
hangandi niður úr geimnum
eins og yndisfagurlituð
gluggatjöld.
Séra Tarr gat aðeins
verið um kyrrt á eyjunni
yfir Aðalfundinn og
8