Innsýn - 01.12.1986, Síða 9

Innsýn - 01.12.1986, Síða 9
setningu skólans. Hann hefði gjarnan viljað heimsækja fólkið á litlu eyjunni Vestmannaeyjar, rétt undan suðurströnd landsins, en honum var sagt að ef hann færi þangað, gæti hann átt á hættu að komast ekki til baka í tíma til að ná vélinni til Ameríku, vegna þess að stormviðri gerðu oft ókleyft fyrir vélar til eyjarinnar að lenda. Eyjan er svo lítil að flugbrautin liggur aðeins í eina átt. Ef vindar blása úr öðrum en tveimur áttum, geta flugvélarnar ekki lent. Svo séra Tarr tók ekki áhættuna, en ég gat farið. Við höfðum mikið heyrt talað um hinn hjartahlýja söfnuð, sem taldi sjötíu meðlimi, þar af þrjátíu ungmenni og börn, á þessari sjómannaeyju. Séra Súlíus og ég höfðum ráðgert að eyða þremur dögum með þessu fólki. Við lentum heilu og höldnu, en eins og svo oft gerðist, þá kom stormur, vindurinn blés úr rangri átt, og við vorum tepptir þarna í viku! Ég missti af vélinni til Englands, en fólkinu virtist standa á sama, og unga fólkið var yfir sig hrifið. Ég held jafnvel að þau hafi næstum beðið um þennan storm! Drottinn blessaði samverustundir okkar með þessum auðmjúku og einlægu eyjaskeggjum. Kvöld eftir kvöld söfnuðumst við saman í kirkjunni og nutum upplífgandi stunda saman. Meira að segja eftir að samkomunum lauk þá voru margir, sérstaklega unga fólkið, tregt til að fara heim. Svo við færðum okkur inn í eina bekkjar- stofuna þar sem við kenndum þeim sálma og töluðum um verkefni æskulýðsins um allan heim. Eitt kvöldið hættum við ekki fyrr en klukkan hálfeitt. Unga fólkið okkar þarna á norðurslóðum helgar sig sínum söfnuði og er mjög virkt og athafnasamt. Síðasta ár tóku ellefu "Master Guides" við heiðursmerkjum sínum í þessari kirkju í Vestmannaeyjum, og þessi sömu ungmenni héldu opinberar samkomur á hverju sunnudagskvöldi í Séra Páll leit yfir hópinn með hlýlegu augnaráði. Honum þótti vænt um þessa unglinga og óskaði af heilum hug að hann gæti leitt þá inn á rétta braut. Hvernig gæti hann látið þau skilja hversu áríðandi það væri, að þau vönduðu val sitt á vinum og kunningjum? Séra Páll var lág- vaxinn en frekar holdugur. Hann brosti og kallaði eina stúlkuna til sín. Hann tók stólinn sinn og færði hann fram fyrir bekkjaraðirnar og stóð uppi á honum. Svo rétti hann stúlkunni hönd sína og bað hana að reyna að toga sig niður af stólnum. Fyrst var hún feimin og þorði ekki, en þar sem séra Páll hvatti hana vingjarnlega, tók hún í hönd hans og togaði. Séra kirkjunni. Það var vissulega upplifun og forréttindi að mega heimsækja trúsystkini okkar á íslandi og að sjá árangurinn af boðskap þriðja engilsins á þessari fjarlægu eyju. Unga fólkið okkar hér, sendir bestu kveðjur til meðbræðra sinna um allan heim. Hin litla eyja í norðri mun vissulega vera meðal þeirra sem fagna komu Drottins þegar sá dagur kemur. * Alfa Lind Páll reyndi að standa fast en varð fljótlega að láta undan og undir fagnaðar- látum unglinganna skröngl- aðist hann niður. Hann þurrkaði svitann af enni sér með vasaklútnum sínum. og horfði um stund yfir salinn. Svo bað hann stúlkuna um að fara upp á stólinn. Hann rétti henni aftur hönd sína og sagði svo við hana: "Nú skalt þú draga mig upp á stólinn til þín". Stúlkan roðnaði og hristi höfuðið. Hlæjandi og vandræðalega sagði hún: "En það get ég ekki!" Séra Páll varð nú alvarlegur og það sló þögn á hópinn. Svo sagði hann hægt . og með áherslu: "Munið það, kæru ungu vinir, að það er mun auðveldara að draga niður á við en upp til sín." Sigríður Nílsen ÞYNGDARLÖGMÁLIÐ Innsýn ó.tbl. 1986 9

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.