Innsýn - 01.12.1986, Qupperneq 11
mesta lostæti. Áður en
langt um leið voru fimm
pokar tómir. En einhver
maginn fékk meira en nóg
af slíku lostæti, eða
óæti, eftir því hvaða
hvaða sjónarmið maður
tekur, munnsins eða
magans.
Að lokum var farið að
skyggja, og sumir farnir
að blotna í súldinni. Var
því haldið heim á leið og
mátti ekki seinna vera svo
leitarflokkar yrðu ekki
gerðir út, en sumir
foreldrarnir voru óró-
legir. Reyndar fannst
sumum það freistandi þegar
eitt barnið var borið heim
til sín með mikla maga-
kveisu, að segja "Það
slitnaði kaðall..." en
allir stóðust freistingar,
og allir komu heilir heim,
tilbúnir í annað ævintýri,
aðra ævintýraferð.
Þröstur B. Steinþórsson
Innsýn é.tbl. 1986
11