Innsýn - 01.12.1986, Síða 16

Innsýn - 01.12.1986, Síða 16
AÐFANGADAGSKVÖLD Fyrir 18 árum voru geimfararnir Frank Bormann, 3ames Lorell og William Anders 380.800 km að heiman á braut um- hverfis tunglið. Og það var aðfangadagskvöld. Þeir voru fyrstir jarðarbúa til að kanna hinn ókannaða geim í eigin persónu. Geimrannsókna- stofnunin hafði áformað útvarpsávarp frá þeim til okkar -jólakveðja utan úr geimnum. Hvert mundi efni kveðjunnar verða? Rannsóknarstofnunin hafði lagt þá ákvörðun algjör- lega í hendur geimfaranna. Borman hafði skrifað niður nokkra punkta um " frið á jörðu". En hvernig gat sá boðskapur fallið í góðan jarðveg þar sem Bandaríkjamenn voru harðlega gagnrýndir á þeim tíma fyrir aðild sína að Víetnam stríðinu? Borman óskaði eftir einhverjum almennum boðskap - eitthvað sem allir jarðarbúar gætu sameinast um. 3óla- boðskapur til kristinna manna næði ekki til ótalinna milljóna Kín- verja, Indverja, Múhameðs- trúarmanna. Geimfararnir fundu fyrir einingu plánetu sinnar og vildu koma þessari tilfinningu til skila hjá íbúum jarðar. Hin einmana jörð , svífandi í myrkum ógn- vekjandi tómleikanum, þráði von. Þar voru ríkir menn sem fátækir. Kaþólsk- I GEIMNUM Eftir Paul Harvey ir og mótmælendur, gyðingar og múhameðs- trúarmenn. Shintotrúar- menn, Búddatrúarmenn.. Skiptir milli austurs og vesturs, umvafnir mismun- andi kynslóðagömlum hefðum og siðvenjum, oft í andstöðu hver við annan. Hvaða jólaboðskapur mundi geta höfðað til slíks sundurleits fjölda karla, kvenna, ungra, gamalla, heilbrigðra, sjúkra, velnærðra, hungraðra? Allir voru þeir reiðubúnir við orðtækinu -bíðandi. Dæmdu ekki orðaval Bormans þar til þú hefur sett þig í spor hans... - Það er ekki hægt að bjóða gleðileg jól þar sem hvorugt er til staðar. Það á ekki við að bjóða hungruðum gleðilega hátíð. - Það er ekki hægt, án hræsni, að ræða friðar- viðleitni við menn sem hafa verið sendir út í stríð. Samt sem áður má ekki láta þetta tækifæri frá sér fara án þess að koma boðskap til skila sem höfðar til alls mannkyns.. Og þá var það að Bbrman ritaði á eldfastan pappír geimfarsins þau orð sem hann mundi tala til okkar þetta aðfangadags- kvöld fyrir 18 árum. Frá Biblíunni, frá I.Mósebók, þessi orð " í upphafi skapaði Guð himin og jörð." Og við urðum sem eitt. Lauslega þýtt úr These Times, desember, 1982 Eric Guðmundsson *

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.