Hagtíðindi - 01.01.1918, Page 12
8
H A G T i fi 18 D1
1918
Lax og silungsveiði árið 1916.
Samkvæmt hlunnindaskýrslum veiddust 10 700 laxar árið 1916,
Er það heldur minna heldur en árið á undan, er veiðin var 12 000.
Aftur á móti var silungsveidi árið 1916 alls 448 þús. silungar, og
er það að tölunni til líkt og árið áður, er veiðin var 445 þús. En i
rauninni inun veiðin hafa verið töluvert rýrari, því að í henni er
talin murta úr Þingvallavatni, og hún hefur veiðst óvenjulega mikið
þelta ár (172 þús., en 152 þús. árið á undan).
Selveiði árið 1916.
Samkvæmt hlunnindaskýrslum hreppstjóranna hafa árið 1916
veiðst 489 fullorðnir selir og 5 675 kópar. Er það minna heldur en
meðalveiði undanfarandi ára. Árið 1915 veiddust 838 fullorðnir selir
og 5 324 kópar.
Árið 1916 var farið að gera út selveiðaskip til þess að veiða
seli norður í höfum. Voru tvö skip gerð út til þess þá um vorið,
gufuskipið »Kópur« frá Tálknafirði og mótorskipið »Óðinn« frá
Seyðisfirði. Stundaði »Kópur« veiðina í þrjá mánuði (apríl, maí og
júní). Veiddi hann 2 010 fullorðna seli, 900 kópa og 2 birni. »Óð-
inn« stundaði selveiðarnar einn mánuð (maí) og veiddi um 300 seli
og 1 ísbjörn.
Aukakosning til alþingis 1917.
18. ágúst 1917 fór fram aukakosning til alþingis í Norður-ísa-
fjarðarsýslu. Kjósendur á kjörskrá voru 1 159. Þar af greiddu 825
atkvæði eða 72°/o. Kosningahlultaka karla var þó nokkru meiri, 78%,
en kvenna nokkru minni 61 °/o. 66 kjósendur eða um 8°/o af þeim
kjósendum, sein atkvæði greiddu, greiddu atkvæði brjeflega fyrir kjör-
fund. Mestur hlutinn (50) af þessuin kjósendum voru úr Hóls- og
Eyrarhreppum.
I líiutíöindi koma út að minsta kosti C sinnum á ári og kostn 1 krónu nrganguriim,
en nskrifendur að Hngskýrslum íslnuds fá Hngtiðindi fyrir ö0 aurn um árið, eða bæði Ifng-
sliýrslur og Hagtiðindl fyrir 2 krónur og 5u nura um árið. 1‘rir sem óska nð gerast áskrifcndui
suúi sjcr til hngstofununr.
Prentsmiðjan Gutenbcrg.