Hagtíðindi - 01.02.1962, Qupperneq 13
1962
HAGTÍÐINDI
33
frá degi til dags. Á móti innlánsaukningunni var eignamegin um að ræða hækkun
á víxlum, um 28,0 millj., og hækkun skuldabréfa og verðbréfa, um 18,7 millj. kr.
Eign sparisjóðanna af handbæru fé (inneign í bönkum og peningar í sjóði) hækkaði
á árinu úr 92,6 millj. kr. í 124,3 millj. kr. og var 14,4% af samanlögðum eignum
allra sparisjóðanna í árslok 1960.
Tekjuafgangur af rekstri sparisjóðanna, miðað við meðaltal af eignum í árs-
byrjun og árslok, var 0,9% árið 1958, 1,0% árið 1959 og 0,8% árið 1960 Tilsvar-
andi tala 1939 Var 1,7%.
Hinn 22. febr. 1960 hækkaði Seðlabankinn, samkvæmt tilmælum ríkisstjórn-
arinnar, innlánsvexti og útlánsVexti lánastofnana. Voru almennir sparisjóðsvextir
hækkaðir úr 5% í 9%, vextir af sparifé með 6 mánaða uppsagnarfresti úr 6% í 10%
og vextir af fé, sem bundið er til 10 ára, úr 7% í 11%. Innlánsvextirá vísanabóka
hækkuðu úr 4% í 6% og vextir af hlaupareikningsinnstæðum úr 2x/2% í 4%. Þá
voru almennir forvextir hækkaðir úr 7%í 11% (og aðrir útlánsvextir tilsvarandi).
Hinn 29. des 1960 ákvað Seðlabankinn lækkun á almennum sparisjóðsvöxtum í
7%, 6 mánaða bókum í 8% og 10 ára bókum í 91/2%. Einnig lækkuðu innlánsvextir
ávísanabóka í 4% og hlaupareikningsinnstæðna í 3%. Frá sama tíma lækkuðu al-
mennir forvextir í 9%. Þá voru teknar upp sparisjóðsbækur með eins árs uppsagn-
arfresti og skyldu vextir á fé á þeim vera 9%.
Hér fer á eftir yfirht um spariinnlán, heildarútlán (að meðtalinni verðbréfa-
eign) og niðurstöðutölu efnahagsreiknings í árslok 1960 hjá 10 stærstu spp-isjóð-
unum, miðað við upphæð spariinnlána (í þús. kr.):
Spari- Heildar- Niðuret.tala
innlán útlán efnahagsreikn.
Verzlimarsparisjóðurinn, Reykjavík 130 399 155 482 177 449
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 108 074 97 464 115 358
Sparisjóðurinn í Keflavík 58 427 58 674 69 599
Sparsjóður Hafnarfjarðar 52 036 55 272 62 141
„ Akraness 39 841 43 855 51 501
Samvinnusparisjóðurinn Reykjavík 37 660 39 116 43 228
Sparisjóður Mýrasýslu, Rorgamesi 28 725 27 754 37 870
„ Akureyrar 21 732 19 598 23 846
„ Glœsibœjarhrepps, Akureyri 18 689 13 143 19 892
„ Sauðárkróks 15 908 16 831 19 822
Sparisjóðsfé í innlánsstofnunum hefur í Iok áranna 1939 og 1956—1960 alls
numið sem hér segir (í millj. kr.):
1939 1956 1957 1958 1959 1960
Ðankar 55,6 982,5 1 073,6 1 185,7 1 356,4 1 642,5
Sparisjóðir 14,2 337,9 420,9 520,2 623,1 716,6
Söfnunarsjóður íslands 4,5 16,1 16,7 17,0 17,6 17,9
Innlánsdeildir kaupfélaga ... 1,9 139,4 164,8 197,6 233,6 240,0
Samtals 76,2 1 475,9 1 676,0 1 920,5 2 230,7 2 617,0
í töflu Hagtíðinda um þróun peningamála eru innstæður í sparisjóðsávísana-
bókum taldar með hlaupareikningsfé, en í yfirfitum þessarar greinar eru' þær taldar
sparisjóðsfé.
Verzlunarsparisjóðurinn Var gerður að banka í apríl 1961, en hann er í þessari
grein tafin með sparisjóðum, vegna þess að tölur lxennar ná ekki lengur en til
ársloka 1960.