Hagtíðindi - 01.02.1962, Page 19
1962
HAGTlÐINDI
39
flugvélarnar, a. m. k. allar hinar stærri, tryggðar að öllu leyti hjá erlendum
tryggingafélögum.
Upplýsingar um tryggingar íslenzkra aðila erlendis eru mjög af skornum
skammti. í greiðslujafnaðarskýrslum eru tölur, sem sýna greiðslur vegna trygginga
til og frá útlöndum. Árin 1957—59 voru þessar greiðslur sem hér segir:
Grciðslur til Grciðslur frá
útlundu, útlöndum,
millj. kr. millj. kr,
1957 ............................ 51,8 46,5
1958 ............................ 54,0 38,9
1959 ............................ 65,5 47,5
Þessar tölur eru miðaðar við opinbert gengi á þessum árum, þannig að 55%
yfirfærslugjald og yfirfærslubætur samkvæmt lögum'nr. 33 29. maí 1958, um útflutn-
ingssjóð o. fl., er ekki meðtalið. 16% yfirfærslugjald samkvæmt lögum nr. 86/1956
var ekki tekið af tryggingaiðgjöldum, eins og áður segir. Ef tryggingagreiðslur
frá maílokum til ársloka 1958 eru með áætlun hækkaðar um 55%, og eins greiðslur
árið 1959, fást eftirfarandi tölur:
Grciðslur til Greiðslur frú
útlanda, útlöndum,
millj. kr. millj. kr.
1957 ............................. 51,8 46,5
1958 ............................. 71,3 51,4
1959 ............................ 101,5 73,6
Greiðslurnar til útlanda eru að langmestu leyti iðgjöld. Tjónabætur og umboðs-
laun til útlanda frá inulendum félögum er tiltölulega lág upphæð. Greiðslurnar frá
útlöndum eru að miklu leyti tjónabætur frá erlendum tryggingafélögum, nokkur
hluti þeirra er þó umboðslaun frá erlendum félögum til innlendra félaga, en lítill
liluti iðgjöld. Þar sem þessar greiðslur eru ekki greindar sundur í iðgjöld, tjón og
umboðslaun, og reikningar tryggingafélaganna sýna ekki sérstaklega viðskiptin
við útlönd, eru ekki fyrir hendi áreiðanlegar tölur um heildarupphæð iðgjalda
Vegna frumtrygginga og tjónabóta, sem landsmenn greiða til eða fá greidda frá
tryggingafélögum, innlendum og erlendum. Þessi heildarupphæð iðgjalda samsvarar
nettó-upphæð iðgjalda innlendra félaga (sú tala kemur fram í yfirhtum I og III),
að frá dregnum iðgjöldum, sem þau fá frá erlendum tryggjendum, og að viðbættum
endurtryggingaiðgjöldum og frumtryggingaiðgjöldum, sem íslenzk trygginga-
félög og einstakir aðilar greiða til útlanda. Hér fer á eftir áætlun um heildarfrumið-
gjöld (10% iðgjaldaskattur ekki meðtalinn) og heildartjónabætur landsmanna árin
1957—59, en þær tölur verður að nota með varúð:
Iðgjöld, Tjónabœtur,
millj. kr. millj. kr.
1957 ............................. 130 91
1958 ............................. 170 107
1959 ............................. 223 146
í lögum nr.86/1956, um útflutningssjóð o. fl., sem tóku gildi 22. desember 1956,
var svo fyrir mælt, að innheimta skyldi sérstakt gjald af iðgjöldum vátrygginga-
samninga. Gjald þetta — sem innheimt var öll árin 1957—60 — nam 10% af
iðgjaldsfjárhæð. Undanþegin þessu gjaldi voru iðgjöld af líftryggingum, brunatrygg-
ingum húsa, tryggingum skipa og flugvéla og tryggingum búfjár. Þetta gjald kemur
ekki fram í reikningum félaganna. Tekjur af því hafa verið sem hér segir: 1957 4,4
millj. kr., 1958 7,4 millj. kr. og 1959 8,1 millj. kr.