Hagtíðindi

Ukioqatigiit

Hagtíðindi - 01.01.1964, Qupperneq 7

Hagtíðindi - 01.01.1964, Qupperneq 7
1964 HAGTÍÐINDI 3 framteljendur skattumdæmis, eru spjöld þess tekin til vélmeðferðar: Skattar og önnur gjöld á einstaklingum eru reiknuð í vélum og þær látnar framleiða allar nauðsynlegar skrár og önnur starfsgögn. Þess skal getið, að enn sem komið er eru útsvör ekki reiknuð í vélum nema fyrir Reykjavík og nokkur önnur sveitarfélög, en þinggjöld alls landsins eru frá og með álagningarárinu 1963 reiknuð í vélum eins og fyrr greinir. — Síðar, þegar álagningarstörfum er lokið, fær Hagstofan skattspjöld alls landsins til afnota og er unnið úr þeim í vélum samkvæmt fyrir- ætlunum Hagstofunnar um birtingu og önnur afnot upplýsinga úr þeim. í töflum þeim, nr. 1—5, sem hér koma á eftir, eru birtar helztu niðurstöður þessarar skýrslugerðar. Eins og fram hefur komið tekur hún aðeins til einstaklinga, ekki til félaga. I töflu 1, sem sýnir heildartekjur eftir kaupstöðum og sýslum, eru bæði brúttótekjur og nettótekjur, en í öllum hinum töflunum eru aðeins brúttó- tekjur. Með brúttótekjum er hér átt við tekjur samkvæmt III. kafla framtalsskýrslu einstaklings án nokkurs frádráttar. í brúttótekjum eru þannig, auk launatekna í peningum og hlunnindum, allar fram taldar og/eða áætlaðar tekjur: „hreinar tekjur“ af atvinnurekstri, húsaleigutekjur af eigin íbúð og af útleigðu húsnæði, skattskyldar vaxtatekjur, arður af hlutabréfum, hvers konar lífeyrir og bætur (þar með fjölskyldubætur, en ekki barnalífeyrir og meðlög, sem eru eigi færð í III. kafla), að jafnaði tekjur eiginkonu og að vissu marki tekjur barna (sjá síðar). Nettðtekjur eru hins vegar tekjur samkvæmt III. kafla framtalsskýrslu að frádregnum leyfðum heildarfrádrætti samkvæmt IV. kafla framtalsskýrslu. í frádrætti þessum er kostn- aður við húseignir, vaxtagjöld, sum opinber gjöld, 50% af launatekjum konu, sjómannafrádráttur, og ýmislegt fleira. Hins vegar er persónufrádráttur ekki meðal þeirra liða, sem dragast frá brúttótekjum til þess að fram fáist nettótekjur. — Það skal tekið fram, að samkvæmt töflu 1 voru á árinu 1962 nettótekjur í heild 82,1% af brúttótekjum í heild. Bilið milli brúttótekna í þeirri merkingu, scm hér er notuð, og nettótekna hefur sífellt verið að breikka á undanförnum árum, bæði af því að frádráttarréttur hefur verið aukinn með lögum og vegna þess að frá- dráttarhæfur kostnaður við húsnæði o. fl. hefur farið vaxandi. — Rétt er að geta þess, að neikvæðar nettótekjur (frádráttur meiri en brúttótekjur) hafa, í töflu 1, ekki verið reiknaðar til frádráttar, heldur hefur þeim verið sleppt. Samkvæmt framansögðu eiga hreinar tekjur af atvinnurekstri að vera inni- faldar í brúttótekjum framteljenda, en frá þeirri reglu eru undantekningar, sem gera það að verkum, að brúttótekjur sumxa starfsstétta samkvæmt töflum 2—5 eru ekki sambærilegar við tekjur annarra starfsstétta. Hér er um það að ræða, að „hreinar tekjurlí af atvinnurekstri eru oftaldar í brúttótekjum framtalsskýrslu, þar eð tilkostnaður, sem með réttu ætti að koma á rekstrarreikning viðkomandi fyrirtækis, er ekki færður þar, heldur látinn koma til frádráttar í IV. kafla fram- talsskýrslu. Brúttótekjur hænda eru af þessum sökum oftaldar í öllum töflunum, þar eð vextir af skuldum vegna búsins, útgjöld vegna viðgerða og viðhalds útihúsa og annarra landbúnaðarmannvirkja svo og afskriftir slíkra eigna eru svo að segja undantekningalaust færðar til frádráttar á framtalsskýrslu, en ekki dregnar frá tekjum af búi áður en þær eru færðar á framtalsskýrslu. Sama mun gilda um trygg- ingaiðgjöld húsa og véla og slysatryggingaiðgjöld starfsfólks. Æskilegt hefði verið að lagfæra framtöl bænda hvað þetta snertir, en á því var enginn kostur og þarf m. a. að breyta landbúnaðar-framtalseyðublaðinu til þess að fá úr þessu bætt. — Á hliðstæðan hátt eru brúttótekjur þeirra, sem gera út fiskiskip og nota framtals- eyðublað skattyfirvalda til að telja fram tekjur og gjöld rekstrarins, oftaldar, en aðeins sem svarar skuldavöxtum vegna útgerðarinnar. Útgerðarmenn, sem ekki nota framtalseyðublað skattyfirvalda fyrir sjávarútveg, heldur láta í té sérstakt

x

Hagtíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.