Hagtíðindi

Ukioqatigiit

Hagtíðindi - 01.05.1988, Qupperneq 20

Hagtíðindi - 01.05.1988, Qupperneq 20
192 1988 Nýr grundvöllur fyrir vísitölu framfærslukostnaðar. í gildandi lögum um vísitölu framfærslu- kostnaðar og skipan kauplagsnefndar nr. 5/1984 segir, að Kauplagsnefnd skuli eigi sjaldnar en á fimm ára ffesti láta fara fram athugun á því, hvort ástæða sé til að endurskoða grundvöll vísitölunnar og skuli sú athugun fyrst fara fram á árinu 1985. Telji allir nefndarmenn að lokinni slíkri athugun að endurskoðunar sé þörf, getí nefndin ákveðið að gerð skuli neyslukönnun til endumýjunar á grundvelli vísitölunnar. Að fengnum niðurstöðum er nefndinni — sé hún sammála — heimilt að ákveða fram- færsluvísitölunni nýjan grundvöll án þess að koma þurfi tíl lagasetningar. Kauplagsnefnd ákvað um mitt ár 1985, að ný neyslukönnun skyldi fara fram. Hafist var handa við könnun þessa í júlí 1985 og stóð hún fram yfir mitt ár 1986. Síðan hefur verið unnið að samræmingu gagna, skráningu og úrvinnslu. Hagstofa íslands annaðistneyslukönnuninaeinsogjafnanáður. Yfir- umsjón með rannsókninni og gerð nýs vísitölu- grundvallar hafði Vilhjálmur Ólafsson, skrifstofu- stjóri, en Elías Héðinsson, félagsfræðingur, annaðist tölvuúrvinnslu. Gerð nýs vísitölugrund- vallar lauk í aprílmánuði 1988 og ákvað Kaup- lagsnefnd þá að hann skyldi reiknaður í fyrsta sinn miðað við verðlag í maíbyijun 1988 og vísitalan sett 100 stig á þeim tíma. Jafnframt skyldi eldri gmnnur vísitölunnarffebrúar 1984 = 100) reiknaðurísíðasta sinn í maíbyrjun. Hinum nýja vísitölugrunni er því beitt í fyrsta sinn í júnfbyijun til mælingar á verð- breytingum frá fyrra mánuði Hér á eftir verður gerð grein fyrir neyslu- könnuninni og hinum nýja grunni vísitölu fram- færslukostnaðar. Hagstofan mun síðar á þessu ári gera sérstaka skýrslu um niðurstöður neyslu- könnunarinnar í nákvæmari atriðum. Hinn svonefndi vísitölugrunnur er í reynd safn hvers kyns heimilisútgjalda. Útgjaldasafnið eða vísitölugrunnurinn tekur þ ví ekki aðeins til daglegra kaupa á matvöru, drykkjarvöru, hreinlætisvöru, fatnaði o.þ.h., heldur er einnig meðtalinn kostnaður heimilanna af rafmagni og hita, pósti og síma, rekstri eigin bíls, húsnæði og svo alls kyns kaup á þjónustu. Þá eru meðtalin útgjöld vegna ferðalaga og tómstundaiðkana svo eitthvað sé nefnt. Alls eru um 600 liðir vöru og þjónustu í hinum nýja vísitölugrunni. Neyslukönnuninni er ætlað að leiða í ljós, hve mikil þessi útgjöld eru og hvemig þau skiptast á einstaka liði. I vísitölugrunninum eru liðimir allir tíundaðir í smáatriðum á þann hátt, að bæði magn og verð allra vörutegunda og þjónustu- liða kemur fram. Með magni er þá átt við ákveðinn fjölda mjólkurlítra, kílóa af smjöri, hveití, sykri o.s.frv., stykkja af sápu, para af sokkum og skóm, kílóvattstunda af raforku, fjölda máltíða á veitinga- húsum, ferðalaga til útlanda svo dæmi séu nefnd. Tilgreint er nákvæmlega um hvaða tegund, merki, stærð eða gerð er að ræða á hverjum lið. Þegar vísitölugrunnurinn hefur þannig verið fundinn er framfærsluvísitalan reiknuð í hverjum mánuði. Verð á öllum vöm- og þjónustuliðunum er kannað, og síðan er reiknað út, hver útgjöldin em miðað við gildandi verð á þeirri vöm og þjónustu, sem er í gmndvellinum. Úpplýsinga um verð er ýmist aflað á þann hátt, að farið er í búðir og verð viðkomandi tegunda skráð eða að þeirra er aflað úr útgefnum verðskrám eða þá að þær em fengnar beint frá seljendum. Taka má fram, að aldrei er leitað að verði ódýmstu vöm eða þjónustu heldur alltaf að verði á þeirri vöm og þjónustu, sem neyslu- könnunin hefur sýnt að mest er keypt, án tillits til þess hvort unnt sé að finna sömu eða svipaða vöm eða þjónustu á lægra verði. Með þessu móti er framfærsluvísitölunni jafnan ætlað að sýna, hvað hið upphaflega útgjaldasafn kostar og hvemig kostnaðurinn breytist frá einum tíma til annars. Neyslukönnunin 1985/1986 var með svipuðu sniði og sú sem síðastgildandi vísitölugmnnur var byggðurá, en hún fór fram á ámnum 1978 og 1979. Tekið var af handahófi úrtak 550 einstaklinga úr þjóðskrá, án tillits tíl tekna, stöðu, búsetu eða fjöl- skylduhátta, og náði könnunin til heimila þessara einstaklinga. Könnunin sjálf var tvíþætt. Annars vegar héldu þátttakendur búreikninga um tveggja vikna skeið, og skráðu öll útgjöld fjölskyldunnar á þeim tíma. Þetta var vandaverk því tiltaka þurfti nákvæmlega allt sem keypt var eða greitt, ekki aðeins í krónum og aumm, heldur þurfti að færa nákvæmlega vömtegund og vöramerki, lítra, þyngd eða stykkjafjölda, ástand vömnnar, svo sem hvort brauðið var niðursneitt eða heilt, kjötið nýtt, saltað eða reykt o.s.frv. Þessi þáttur könnunarinnar stóð yfir í heilt ár, þannig að hveijar tvær vikur héldu nokkrar fjölskyldur, víðs vegar á landinu, búreikn- inga og tók hver hópurinn við af öðmm. Hinn þáttur könnunarinnar var sá, að sömu fjölskyldumar eða einstaklingamir færðu skýrslur um ársútgjöld vegna tíltekinna þátta, svo sem árs- kostnað af rafmagnsnotkun eða húsakyndingu, kaupum húsbúnaðar, heimilistækja, fatnaðar, bfla, um notkun bfla, ferðalög o.fl. Þótt neyslukönnunin 1985/1986 væri svipuð þeirri, sem gerð var á ámnum 1978 og 1979, varhún þó um sumt frábmgðin. Könnunin náði jafnt til einhleypinga og hjóna, með eða án bama, foreldra eða annarra heimilismanna og án tillits tíl aldurs bama. Fyrri kannanir hafa hins vegar eingöngu tekið til hjóna, þó ekki til hjóna með böm yfir 17 ára aldri. Könnunin náði bæði til fjölskyldna launþega og sjálfstæðra atvinnurekenda, en fyrri kannanir hafa eingöngu tekið til fjölskyldna launþega. Þá vom þátttakendur talsvert fleiri en í fyrri könnunum.

x

Hagtíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.