Hagtíðindi - 01.05.1989, Qupperneq 22
174
1989
Vísitala byggingarkostnaðar í maí 1989.
Hagstofan hefur reiknað vísitölu bygg-
ingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan maí 1989.
Reyndist hún vera 141,6 stig, eða 1,9% hærri en í
apríl (júní 1987=100). Þessi vísitala gildir fyrir júní
1989. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn
(desember 1982=100) er453 stig.
Launaliðir byggingarvísitölunnar hækkuðu um
2,7% sem olli um 1,1% hækkun á vísitölunni.
Annars vegar er hér um að ræða áfangahækkun á
ákvæðisvinnutöxtum iðnaðarmanna 1. maí síðast-
liðinn samkvæmt kjarasamningum frá fyrra ári, og
hins vegar hækkun á útseldri vinnu verkamanna
samkvæmt kjarasamningum gerðum 1. maí síðast-
liðinn. Auk framangreinds hafði 4,2% verðhækkun
á innihurðum og innréttingum í för með sér um
0,3% hækkun á vísitölunni og hækkun ýmissa
annarra efnis- og þjónustuliða olli um 0,5% hækk-
un á vísitölu byggingarkostnaðar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala bygg-
ingarkosmaðar hækkað um 26,5%. Síðustu þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,9% og sam-
svarar það 30,4% árshækkun.
Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 1988-1989.
Vísitölur Breyting frá fyrra mánuði, % Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar:
Gildis- tími Út- reiknings- timi Síðasta mánuð % Síðustu 3 mánuði % Síðustu 6 mánuði % Síðustu 12 mánuði %
1988
Janúar 107,9 107,4 -0,5 14,7 16,2
Febrúar 107,4 107,3 -0,1 12,2 15,3
Mars 107,3 108,7 1,3 16,8 3,0 12,7 14,1
Apríl 108,7 110,8 1,9 25,8 13,3 8,2 15,4
Maí 110,8 111,9 1,0 12,5 18,3 8,4 14,1
Júní 111,9 121,3 8,4 163,2 55,1 26,4 21,3
Júlí 121,3 123,5 1,8 24,0 54,3 32,2 23,1
Ágúst 123,5 124,3 0,6 8,1 52,2 34,2 22,7
September 124,3 124,5 0,2 1,9 11,0 31,2 21,6
Október 124,5 124,8 0,2 2,9 4,3 26,9 17,2
Nóvember 124,8 124,9 0,1 1,0 1,9 24,6 16,2
Desember 124,9 125,4 0,4 4,9 2,9 6,9 16,2
1989
Janúar 125,4 129,5 3,3 47,1 16,0 10,0 20,6
Febrúar 129,5 132,5 2,3 31,7 26,6 13,6 23,5
Mars 132,5 136,1 2,7 38,0 38,7 19,5 25,2
Apríl 136,1 139,0 2,1 28,8 32,8 24,1 25,5
Maí 139,0 141,6 1,9 24,9 30,4 28,5 26,5
Júní 141,6