Hagtíðindi - 01.05.1989, Page 25
1989
Meðalgengi dollars 1987-1989.
177
í krónum. Mars Janúar -mars
Kaup Sala Kaup Sala
1987 39,11 39,23 39,37 39,49
1988 39,10 39,22 37,73 37,85
1989 53,16 53,30 50,88 51,01
Heimild: Seðlabanki fslands
Athugasemd við töflu um
fískafla 1989 og 1988.
Tölur um togarafisk eru bráðabirgðatölur og
ekki unnar eftir sömu heimildum og aðrar tölur
töflunnar. Því kann að gæta nokkurs misræmis á
milli þeirra, sem leiðréttást í endanlegum tölum
ársins.
Launavísitala
Hagstofan hefur reiknað launavísitölu til
greiðslujöfnunarfyrirjúnímánuð 1989. Er vísitalan
2.244 stig eða 1,3% hærri en vísitala fyrra mánaðar.
Fiskafli janúar-apríl
1988 og 1989
Þús. tonna m.v.
fisk upp úr sjó
Botnfiskafli togara
Botnfískafli báta
Botnfískafli alls
Sfldarafli
Loðnuafli
Annar afli
Fiskafli alls
1988 1989
133,5 122,6
116,8 132,5
250,3 255,1
4,5 0,7
604,8 607,3
10,3 5,8
869,9 869,0
Heimild: Fiskifélag íslands
Skýringar við mannfjöldatöflur á bls. 192-196.
Töflurnar fjórar á bls. 192-198 sýna endanleg-
ar tölur yfir mannfjölda á landinu eftír kyni, aldri og
hjúskaparstétt, annars vegar 31. desember 1988 og
hins vegar að meðaltali yftr árið. Koma árslokatöl-
urnar í stað samsvarandi talna á bls. 41-47 í janúar-
blaði Hagtíðinda 1989. Þær eru notaðar til þess að
sýna nýjustu stöðu mannfjöldans, en meðalmann-
fjöldatölumar eru notaðar þegar reikna þarf tíðni
atvika yfir árið.
Mannfjöldinn 31. desember er reiknaður eftir
upphaflegum tölum 1. desember, og er þá miðað við
breytingar mannfjöldans fram til áramóta, sem ekki
hafði verið tekið tillit til þegar íbúaskrár voru unnar.
Þó era engar breytingar gerðar vegna fólksflutn-
inga. Breytingar ffá upphaflegu tölunum era þær
helstar, að böm á 1. ári era fulltalin og að skipting
á hjúskaparstétt breytíst nokkuð, einkum hjá fólki á
þrítugsaldri.
Við samdrátt í þijá aðalflokka hjúskaparstéttar,
era taldirmeð giftu fólkimakarvamarliðsmannaog
erlendra sendiráðsmanna (þeir era ekki á þjóðskrá
hér á landi), og fólk sem hefur slitið samvistum eða
skilið að borði og sæng, enda er staða þess varðandi
stofnun nýs hjúskapar hin sama og annars gifts
fólks. Þegar svo ber undir, að tíl landsins flyst fólk,
sem er gift en maki fylgir ekki, telst það hafa slitíð
samvistum, þó að svo sé ekki í raun. Hið sama á við
þegar annað hjóna flytur lögheimili sitt til útlanda,
þá teljast þau hafa slitíð samvistum, þó að svo þurfi
ekki að vera íraun. Samkvæmt framansögðu teljast
til áður gifts fólks einungis þeir sem slitið hafa
hjúskap við lögskilnað eða lát maka.