Hagtíðindi

Årgang

Hagtíðindi - 01.12.1989, Side 29

Hagtíðindi - 01.12.1989, Side 29
1989 429 Tafla 2. Mannfjöldi 1. desember 1980-89 eftir byggðarstigi og kyni 1980* 1988* 1989 StaÖ- ir Mann- Qöldi StaÖ- ir Mann- fjöldi Stað- ir Mannfjöldi Alls % Karlar Konur Allt landið • 229.187 # 251.690 253.482 100,0 127.301 126.181 Staðir með 200 fbúa og íleiri 58 202.256 59 227.247 59 229.363 90,5 114.253 115.110 íbúar 100.000 og fleiri 1 121.207 1 141.353 1 143.322 56,5 70.355 72.967 íbúar 10.000-99.999 1 13.420 1 13.972 1 14.099 5,6 6.928 7.171 fbúar 5.000-9.999 2 13.830 2 15.152 2 15.182 6,0 7.743 7.439 íbúar 2.000-4.999 6 18.093 6 19.084 6 19.221 7,6 9.920 9.301 íbúar 1.000-1.999 15 19.404 16 21.760 16 21.831 8,6 11.172 10.659 íbúar 500-999 14 9.544 12 8.452 12 8.415 3,3 4.328 4.087 fbúar 300-499 12 4.909 15 5.902 15 5.769 2,3 3.002 2.767 íbúar 200-299 7 1.849 6 1.572 6 1.524 0,6 805 719 Fámennari staðir og sujálbýli • 26.931 • 24.443 • 24.119 9,5 13.048 11.071 íbúar 100-199 15 1.904 19 2.543 18 2.497 1,0 1.295 1.202 fbúar 50-99 13 951 11 705 12 823 0,3 447 376 Stijálbýli • 24.076 • 21.195 • 20.799 8,2 11.306 9.493 * Endanlegar tfilur. Norðurlanda, en hitt verður áfram hér á landi. Aður hafði það ekki áhrif á skráningu hjú- skaparstéttar þó að hjón, sem skráð eru samvistum, fengju leyfi dl skilnaðar að borði og sæng, nema til- kynnt væri um lögheimilisflutning sem leiddi til þess að þau fengju hvort sitt lögheimilið. Frá og með 1987 hefur þó verið farið eftir upplýsingum skilnaðarskýrslu um nýtt lögheimili, og verða því tölur hæni en ella. Rét t er að vekja athygli á því, að samkvæmt lög- um lýkur hjúskap ekki með samvistaslitum eða skilnaði að borði og sæng, heldur einungis með lögskilnaði. Til áður giftra teljast einungis ekklar og ekkjur og þeir sem hafa skilið að lögum. Fjölskyldur og einhleypingar Ur þjóðskránni er ekki unnt að fá upplýsingar um tölu heimila né hvetjir mynda saman heimili. Ekki er heldur að finna fjölskyldur í venjulegri meridngu þess orðs, heldur í þrengri meridngu, og eru fjölskyldur samkvæmt skýrgreiningu þjóð- skrárinnar nefndar kjamafjölskyldur til auðkennis. I töflu 8 er sýnd tala kjamafjölskyldna. í kjama- fjölskyldu eru bamlaus hjón (eða bamlaus karl og kona í óvígðri sambúð) og foreldrar eða foreldri með böm (eða fósturböm) 15 ára eða yngri. Böm 16 ára og eldri sem búa hjá foreldri eða foreldrum eru ekki talin til kjamafjölskyldna, og fjölskylda, sem Ld. samanstendur af móður og syni eídri en 15 ára, er ekki kjamafjölskylda, heldur er þar um að rasða 2 „einhleypinga". Þetta þrönga fjölskyldu- hugtak hefúr verið notað á þjóðskrá vegna þess að hún er löguð eftir þörfum skattyfirvalda og annarra opinberra aðila. Komið er ffam hvemig skráningu hjónabanda er hagað. Það hefur lengi tíðkast á Islandi að fólk hefji óvígða sambúð og sé í henni um lengri eða skemmri tíma. Oft er hún undanfari hjónabands en í öðrum tilvikum varir hún sem óvígð sambúð eða henni lýkur með samvistaslitum. I manntali því, sem tekið var 16. október 1952 og þjóðskráin var stofnuð eftir, var þess getið ef fólk var í óvígðri sambúð, og það skráð á þjóðskrá. Sið- an hefur þessari skráningu verið haldið við eftir ýmsum heimildum, en eðli málsins samkvæmt getur hún aldrei orðið fullkomin. Bæði skortir þjóð- skrá oft upplýsingar um að óvígð sambúð sé komin á, þó að ekkert væri til fyrirstöðu skráningar að öðru leyti, og eins getur það verið að viðkomandi ein- staklingar hagi skráningu lögheimilis sökum hags- muna sinna með þeim hættí, að ekki geti korrúð dl skráningar á óvígðri sambúð. Hið sama gildir um óvígða sambúð og hjónaband, að aðilar verða að hafa sameiginlegt lögheimili. Ný skráning óvígðrar sambúðar byggist á upp- lýsingum um sameiginleg aðsetursskipti karls og konu eða flutning annars heim til hins. I ársvirtnslu þjóðskrár 1980 og síðar hefur ný óvígð sambúð ekki verið skráð, nema það Iægi fyrir að hlutaðeigendur ættu bam saman eða tekið væri frarn á aðseturs- skdptatilkynningu að um óvígða sambúð væri að ræða. Tala óvígðrar sambúðar án bama var því allmiklu lægri 1981-87 en ef skráningarreglur hefðu haldist óbreyttar. Þegar skattkort voru gefin út í árslok 1987 kusu margir sem voru í óskráðri óvígðri sambúð að láta skrá hana til þess að fullnýta persónuafslátt beggja aðilanna. Þessa gætti ekki í tölum fyrir óvígða sambúð 1. desember 1987, þar [Framhald á bls. 431]

x

Hagtíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.