Hagtíðindi

Volume

Hagtíðindi - 01.12.1990, Page 34

Hagtíðindi - 01.12.1990, Page 34
454 1990 Mynd 1. Fólksfjölgun 1941-1990 1941 1947 1957 1965 19701972 1977 1982 1985 '88 '8990 Efri línan sýnir beina fjölgun en neðri línan hlutfallslega fjölgun. Á síöastliönum 50 árum hefur fólksfjölgun oröiö minni en 1990 í hlulfalli viö ibúafjölda árin 1941,1969-1970,1976-1978,1985-1986 og 1989. Fjölskyldur og einhleypingar Úr þjóðskránni er ekki unnt að fá upplýsingar um tölu heimila né hveijir mynda saman heimili. Ekki er heldur að fmna fjölskyldur í venjulegri merkingu þess orðs, heldur í þrengri merkingu, og eru fjölskyldur samkvæmt skýrgreiningu þjóðskrárinnar nefndar kjamafjölskyldur til auðkennis. í töflu 8 er sýnd tala kjamafjölskyldna. í kjamafjölskyldu em bamlaus hjón eða bamlaus kari og kona í óvígðri sambúð og foreldrar eða foreldri með böm eða fósturböm 15 ára eða yngri. Böm 16 ára og eldri sem búa hjá foreldri eða foreldmm em ekki talin til kjamafjölskyldna, og fjölskylda, sem t.d. samanstendur af móður og syni eldri en 15 ára, er ekki kjamafjölskylda, heldur er þar um að ræða 2 „einhleypinga". Þetta þrönga fjölskylduhugtak hefur verið notað á þjóðskrá vegna þess að hún er löguð eftir þörfum skattyfirvalda og annarra opinberra aðila. Komið er fram hvemig skráningu hjónabanda er hagað. Það hefur lengi tíðkast á íslandi að fólk hefji óvígða sambúð og sé í henni um lengri eða skemmri tíma. Oft er hún undanfari hjónabands en í öðmm tilvikum varir hún sem óvígð sambúð eða henni lýkur með samvistaslitum. I manntali því, sem tekið var 16. október 1952 og þjóðskráin var stofnuð eftir, var þess getið ef fólk var íóvígðri sambúð, og það skráð á þjóðskrá. S íðan hefurþessari skráningu verið haldið við eftir ýmsum heimildum, en eðli málsins samkvæmt getur hún aldrei orðið fullkomin. Bæði skortir þjóðskrá oft upplýsingar um að óvígð sambúð sé komin á, þó að ekkert væri til fyrirstöðu skráningar að öðm leyti, og eins getur það verið að viðkomandi einstaklingar hagi skráningu lögheimilis sökum hagsmuna sinna með þeim hætti, að ekki geti komið til skráningar á óvígðrisambúð. Hiðsamagildirumóvígðasambúð og hjónaband, að aðilar verða að hafa sameiginlegt lögheimili. Ný skráning óvígðrar sambúðar byggist á upplýsingum um sameiginleg aðsetursskipti karls ogkonueðaflutningannarsheimtilhins. íársvinnslu þjóðskrár 1980 og síðar hefur ný óvígð sambúð ekki verið skráð, nema það lægi fyrir að hlutaðeigendur ættu bam saman eða tekið væri fram á aðseturs- skiptatilkynningu að um óvígða sambúð væri að ræða. Tala óvígðrar sambúðar án bama var því allmiklu lægri 1981-87 en ef skráningarreglur hefðu haldist óbreyttar. Þegar skattkort vom gefin út í árslok 1987 kusu margir sem vom í óskráðri óvígðri sambúð að láta skrá hana til þess að fullnýta persónuafslátt beggja aðilanna. Þessa gætir í tölum frá og með 1988. Þegar ógiftir foreldrar nýfædds bams eiga lög- heimili saman em þeir skráðir í óvígða sambúð, og sama á við ef foreldramir flytjast saman á sama þjóðskrárári og bamið fæðist. Islenskir makar vamarliðsmanna og erlendra sendiráðsmanna koma í töflu 8 í liðina ,/nóðir með böm“, „faðir með böm“, og „einhleypingari*. Alls er hér um að ræða 81 einstakling í hjónabandi, en um tölu þeinra í óvígðri sambúð er ekki vitað. Að röktu öllu því, sem að ffaman er sagt um skráningu óvígðrar sambúðar, má telja líklegt að tala einstæðra foreldra sé of há í töflu 8. Fæðingarland, ríkisfang og trúfélag Skráning fæðingarstaðar erlendis byggist á framlögðu vottorði eða upplýsingum á tilkynningu um aðsetursskipti við fluming til landsins. Ætlast er til að hún miðist við ríkjaskipan eins og hún er nú, en ýmislegt getur orðið tíl þess, að villur séu í henni. Fram til 1963 var ekki greint milli Danmerkur, Færeyja og Grænlands á þjóðskrá, og mun hluti

x

Hagtíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.