Sendiboðinn - 19.04.1939, Side 6
4
SENDIBOÐINN
3ÓHANN ÞORVALDSSON:
REGLUSEMI, STUNDVÍSI,
Það er einkum tvennt, óstundvísi og
slæm regla, sem ýmsir hafa fundið okkur
íslendingum til foráttu. Þvi miður hafa
þessar ásakanir við rök að styðjast. Þetta
verður skiljanlegra, þegar þess er gætt,
að allt fram á síðustu tíma hefir íslenzkt
þjóðlíf og uppeldi ekki lagt þá rækt sem
skyldi við þessa eiginleika. En nú er svo
komið, að þetta tvennt — reglusemi og
stundvísi — eru ein mikilvægustu atriðin
í öllu uppeldi. Af þessum ástæðum leggja
skólarnir nú sérstaka áherzlu á, að börnin
læri þetta tvennt svo vel, að þau gleymi
því ekki að lokinni skólagöngu.
Reglusemi.
Sérhver skóli hefur skólareglur, er hann
starfar eftir. Sumar þessar reglur eru skráð-
ar í reglugerð skólans, en aðrar ekki.
Reynt er að hafa þessar reglur sem fæstar
og einfaldastar, en um leið að framfylgja
þeim eftir getu. Það er einn þátturinn i
reglusemi barnsins, að starfa eftir þessum
reglum og halda þær í hvívetna.
Má þar t. d. nefna námið sjálft, hvað
barnið skal læra á vissum tíma, svo og
það, sem kennarinn setur fyrir í hvert
skipti. Ennfremur nauðsynleg áhöld og
bækur, svo sem: blýant, penna, penna-
stöng, strokleður, yddara og bækur til að
skrifa í. Tösku undir áhöld og bækur.
Meðferð á þeim bókum, sem barnið fær í
skólanum o. fl. Hér í skólanum er það
regla, að ekkert barn fær að fara inn í
kennslustofu á þeim skóm, er það notar
úti og þarf því að hafa með sér inniskó
eða leista til að vera á í timum. Enn-
fremur að barnið komi hreint og þokka-
lega til fara í skólann og hafi vel merkt
allt, sem það þarf að skilja eftir á göng-
um, svo sem: skófatnað, húfu og kápu.
Að barnið gleymi engu heima af þvi, sem
það þarf að nota þann daginn, og hafi
leyst af hendi þau verkefni, er það átti að
vinna. Sæki skólann daglega, nema þegar
veikindi hamla, enda sé þá viðkomandi
kennari látinn vita.
Allt þetta er eg nú hefi nefnt, telst til
reglusemi barnsins.
Það er skiljanlegt, að barnið getur ekki
sýnt fullkomna reglusemi nema heimilið
hjálpi til. Þuð er skylda foreldra að fylgj-
ast með því, hvort barnið leysir af hendi
þau verkefni, er kennarinn setur fyrir, en
láta sér ekki nægja þau svör barnsins, að
það eigi ekkert að gera, heldur komast
eftir hjá viðkomandi kennara hvort það
sé rétt.
Stundvísi.
Stundvísi skólabarnsins er að mestu í
því fólgin, að barnið komi á réttum thna
í skólann. Þó að þetta virðist einfalt mál,
reynist það mörgum börnum mjög erfitt.
Flest börn á aldrinum 7—10 ára eru
mjög gleymin, og mörg þeirra þekkja ekki
á klukkuna.
Af þessum ástæðum getur barnið ekki
sýnt stundvisi, nema mamma hjálpi því.
Foreldrar þurfa því að vita á hvaða
tíma barnið á að koma í skólann og
minna það á, þegar hinn rétti tími er
kominn.
Bezt er fyrir móðurina að hafa stunda-
töflu barnsins hjá sér í eldhúsi eða á öðr-
um hentugri stað. Algengt er að barnið
komi mikið fyrr, að skólahúsinu en það á
að koma eftir stundatöflu, og verður þá
barnið að bíða í forstofu skólans, því að