Sendiboðinn - 19.04.1939, Side 7

Sendiboðinn - 19.04.1939, Side 7
SENDIBOÐÍNN Í5 ccnc:.-cc U' ncínc SENDIBOÐINN að flytja innilegar óskir um gíediíegt sumar til foretclra og aðstandenda (xirnanna, frá k ennurum skólans, me3 jjökk fgrir ueturinn— skólinn er ávallt lokaður nema í frímínút- úm, og engum börnum hleypt inn, fyrren þeirra tími er kominn. Foreldrar þurfa því að sjá um að barnið fari ekki að heiman fyrr enn tími er kominn til þess. Það er jafn mikil óstundvísi að koma löngu á undan tímanum, eins og að komaofseint. Skólanum er lokað 5 mín. eftir að hringt er inn í tíma. Þau börn, sem koma síðar að skóladyrunum verða að bíða úti þar til hringt er inn í næsta tima. Gæta verða foreldrar þess, að vera þess ekki valdandi, að barnið verði óstundvist, með því að láta það fara sendiferðir, þeg- ar komið er að þeim tíma, er barnið á að fara í skólann. Það er ekki sársaukalaust, að koma of seint í tima, aðeins af því, að ( það var gert, sem mamma bað um. Eg mun seint gleyma atviki, er kom fyrir í vetur. — Eg var ný búinn að loka skólanum, og kominn inn í kennslustofu. Þá verður mér litið út um gluggann og sé þá hvar 8 ára telpa kemur hlaupandi heim að skólanum, svo hart sem fæturnir geta borið hana. Úr andlitinu skein bæði eftirvænting og ótti. Þegar hún fann að hurðin var lokuð, fór hún að hágráta, og meiri hefði ekki sársaukinn verið hjá nein- um fullorðnum, þó að hann hefði séð alla lífshamingju sína hrynja í rústir. Þegar eg fór að tala við litlu stúlkuna, kom það upp úr kafinu, að hún hafðifar- ið í sendiför fyrir móður sína og þrátt H/f. Félagsbakaríið óskar öllum uíðskiptauinum sínum gleditegs sumars, med j>ökk jg rir vi ðskipti n á uetrinum. þrátt fyrir góðan vilja, orðið of sein í skólann. Sorg hennar yfir þessu óhappi var svo mikil, að það tók langan tíma að bæta úr því til fulls. Flestum börnum er, sem betur fer, eins farið og þessari litlu telpu. Þau þráekkert meira en að geta uppfyllt allar þær skyld- ur, sem skólinn leggur þeim á herðar og öllum foreldrum er skylt að hjálpa börnun- um til þess. En engir foreldrar getahjálp- að barni sínu til að vera reglusamt og stundvíst, nema þeir séu það sjálfir á heimilum sínum. ]. Þ. A

x

Sendiboðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sendiboðinn
https://timarit.is/publication/1028

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.