Sendiboðinn - 19.04.1939, Blaðsíða 10
8
SENDIBQÐINN
korau einstakllnga *g alþjóðar^jí ; : cj í?
Nú fara vorprófin í hönd hér í skólun-
um. Eg vil enda þessar línur á því að
biðja foreldrana að hvetja börnin til þess
að íhuga vel hvert dæmi og spurningu og
þaulhugsa hvert svar og þrautreyna.
Æskilegast væri að barnið í hvertskipti
sem það leysir dæmi, hugsi sér að það
sé sjálfj söguhetjan í ofurlítilli sögu, þar
sem viðfangsefnið krefst úrlausnar, en
barnið hagnast á því, að reikna rétt, en
tapar á rangri úrlausn.
Foreldrar, íylgist með starfi skólans.
Gerið ykkur ómak til að kynnast kennara
barnsins og hjúkrunarkonu. Minnist þess,
að komi þau heim á heimili ykkar, þá
koma þau ’sem vinir, til að vinna gott
verk. Fylgist af áhuga með öllu námi
barnsins, því að meiri greiða getið þið
ekki gert barni ykkar. Ef ykkur finnst eitt-
hvað að, þá talið um það við viðkomandi
kennara, en ekki aðra, því að oft getur
verið um misskilning að ræða, sem auð-
velt er að leiðrétta.
Hjálpið barninu til að bera virðingufyr-
ir kennara og skóla, og því starfi, sem
þar fer fram. Minnist þess að skóli og
heimili eru tveir aðiljar, sem eiga að sjá
um uppeldi og þroska barnsins, og ber
því skylda til að virða starf hvors
annars. Því að ef svo er ekki, þá er það
fyrst og fremst barnið sem bíður tjón við
það, en ekki kennarar eða foreldrar.
J. Þ.
Útgefendur:
Kennarar barnaskóla Siglufjarðar.
Ábyrgðarmaður: Friðrik Hjartar.
;' t: C o' V ’ í , :f1 : i .í: t' .
Gjleðitecji
sumar!
Hrzl. Su. Kjartarson.-.
Fyrir fermingar-
stúlkurnar:
Kjólablóm
Hanzkar
Sokkar.
Hattaverzl. Guðrúnat Rögnvalds
Siglfirðingar!
Munið skemmtun
barnanna kl. 4,30
fyrsta sumardag.
Skemmtunin verður
aðeins þetta eina sinn.
Siglufjarðarprentsmiðja