Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Page 31
ÞJÓÐ Á KROSSGÖTUM
101
þeirra í þjóðartekjunum með höft, styrki og
verðlagseftirlit að vopni. Aflciðingin verður
að lokum sú, að markaðshagkerfið er afnum-
ið með öllu og verðmyndunarkerfið hættir
að koma að nokkru verulegu gagni sem leið-
arvísir um hina hagkvæmustu nýtingu fram-
leiðsluþátta þjóðfélagsins.
Ef til vill gæti heilhuga þátttaka í fríverzl-
unarsamstarfi vestrænna þjóða ekki fært ís-
lendingum neina dýrmætari gjöf en þá að
hrífa efnahagsmál þeirra úr þessum álögum
og færa þeim í staðinn í hendur áttavita hins
frjálsa markaðar. Þegar við þetta bætast þau
stórkostlegu tækifæri, sein blasa við þrótt-
miklum íslenzkum atvinnuvegum, ef þeir fá
greiðan aðgang að hinum frjálsu mörkuðum
heimsins, ætti valið að verða íslendingum
auðvelt. Vonandi hafa þeir næga trú á sjálfa
sig og land sitt til að heykjast ekki á að leggja
út í eðlilega samkeppni við erlenda framleið-
endur, bæði á innlendum og erlendum mörk-
uðum.
Náttíari
Eg gekk þennan veg í hægri kælu
hafgúa sýngdu vísur hinum ferðlúna
í nótt deyr síðasti neistinn með andvarpi í klakann
í nótt stígur raust þúsund vatna til höfuðs mér
ég sat við ihnkerin margar nístandi nætur
sem speigluðu stjörnur sínar í ókunnum vötnum
hafgúa sýngdu lánga brimkviðu með stefi
ég hef setið við ilmkerin þessar nístandi nætur
meðan Jángeldurinn kulnaði á ísuðu gólfi skálans
leingi stynur þúngan vindurinn í durum
en ég er kominn myrka vegu að hlusta á gnýinn
og gánga með sjó.
Þorsteinn Jónsson jrá Hamri