Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2007, Page 4
„Þessi niðurstaða kemur mér alls
ekki á óvart. Það hefur verið mik-
il umræða um þessi mál í sumar og
í vor. Fólk virðist skynja að ekki hafi
náðst sá árangur með kvótakerf-
ið sem að var stefnt,“ segir Guðjón
Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins.
Í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup
kemur fram að 72 prósent þjóðar-
innar eru óánægð með núverandi
fiskveiðistjórnunarkerfi. Einungis
fimmtán prósent aðspurðra kveðast
vera ánægð með kvótakerfið en frá
árinu 2004 fækkar óánægðum um
þrjú prósent.
Meingallað kerfi
„Tvö meginatriðin í lögunum um
stjórn fiskveiða eru annars vegar þau
að byggja upp þorskstofninn og hins
vegar að efla trausta atvinnu í byggð-
um landsins. Hvorugt markmiðið
hefur náðst.“
Guðjón segir að ýmsar ástæður
séu fyrir því að þessi markmið hafi
ekki náðst. Hann segir að lögin um
stjórn fiskveiða séu þannig úr garði
gerð að þar sé óheft verslun sem
komið hafi verið á árið 1991. Guðjón,
sem var forseti Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, segir að hann
hafi varað við þessu þegar hann
starfaði þar. „Það voru allir fyrirvar-
ar teknir í burtu árið 1991 um
að færa þetta á milli byggð-
arlaga. Þetta hlaut því allt að
fara á fulla ferð og við vör-
uðum alveg sérstaklega við
þessu á sínum tíma. Við
sögðum að þetta myndi
valda byggðaröskun og
ósætti meðal þjóðarinn-
ar. Kvótakerfið hefur orðið
til þess að tekjuskipting
er orðin misjöfn á milli
sjómanna eftir landshlut-
um og svæðum.“
Vill lagfæringar
Aðspurður hvaða
breytingar Guðjón vill
sjá á fiskveiði-
stjórnunarkerf-
inu segist hann
vilja að framsalið verði endurskoð-
að. „Ég vill að byggðirnar verði
varðar miklu meira en verið hefur.
Ég geri mér samt grein fyrir því að
það er ríkisstjórnarmeirihluti sem
er ekki tilbúinn til að henda því fyr-
ir róða. Það er samt hægt að lagfæra
ýmislegt í þessu kerfi. Til dæmis
hluti sem snúa að réttindum fólks-
ins í byggðunum.“
Guðjón segir að það
sé ekki rétt að einn
útgerðarmaður geti
ráðið atvinnuferl-
inu í heilu byggð-
unum. Seg-
ir Guðjón að
sumar byggðir
séu algjörlega
háðar sjáv-
arútvegi. „Á
meðan það er
einn stór út-
gerðarmaður
sem get-
ur ráðið því hvort að byggð standi eða
falli er það algjörlega óviðunandi.“
Engar byltingar
„Þó að kerfið sé svo sannarega
ekki gallalaust hefur ekki fundist
neitt annað betra,“ segir Arnbjörg
Sveinsdóttir, formaður sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefndar. Aðspurð
hvort ekki sé mögulegt að gera úr-
bætur á núverandi fiskveiðistjórnun-
arkerfi segir Arnbjörg að menn hafi
verið að bæta kerfið smám saman á
undanförnum árum. „Það hefur ver-
ið byggt á því að auðlindin er ekki
takmörkuð. Síðan hafa komið inn
hlutir eins og byggðakvóti og línuí-
vilnun sem hafa verið gerðir til að ná
byggðarlagamarkmiðum,“ segir Arn-
björg. Línuívilnun er til dæmis þegar
þúsund tonnum af ýsu er landað en
aðeins hluti af henni reiknast til afla-
marks.
Aðspurð hvort farið verði í frekari
úrbætur á kerfinu á næstu mánuð-
um segir Arnbjörg að stöðugt sé
verið að horfa til hluta sem bæti
kerfið. „Ég hef samt enga trú á
því að það verði einhverjar bylt-
ingar í þeim efnum.“
fimmtudagur 2. ágúst 20074 Fréttir DV
Kemur eKKi á óvart
Aðeins fimmtán prósent þjóðarinnar eru ánægð með kvótakerfið samkvæmt nýrri
Gallupkönnun. Guðjón Arnar Kristjánsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir
óviðunandi að heilu byggðirnar standi eða falli með einum stórum útgerðarmanni. Arn-
björg Sveinsdóttir, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, segir að ekki hafi tekist að
benda á betra kerfi.
EinAr þór SiGurðSSon
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
„Á meðan það er
einn stór útgerðar-
maður sem get-
ur ráðið því hvort
byggð standi eða
falli er það algjör-
lega óviðunandi.“
Fiskvinnsla Núverandi fiskveiði-
stjórnunarkerfi þykir ekki nógu gott
ef marka má niðurstöður gallup.
Guðjón Arnar Kristjánsson formaður
frjálslynda flokksins segir að niðurstaðan úr
Þjóðarpúlsi gallup komi sér ekkert á óvart.
Samkeppni í
tekjublöðum
Tekjublað Mannlífs kemur út í
dag. Hingað til hefur Frjáls versl-
un verið eina tímaritið sem hefur
sent frá sér tekjublað, það blað
kom út í gær.
Í tekjublaði
Mannlífs er
að finna upp-
lýsingar um
tekjur 2.500
Íslendinga á
öllu land-
inu, þeirra á
meðal tekj-
ur æðstu stjórnenda fyrirtækja,
athafnamanna og stjórnmála-
manna. Einnig bregður Tekju-
blaðið ljósi á kjör umönnun-
arstétta og þeirra sem vinna
mikilvæg láglaunastörf. Þar að
auki eru laun tuttugu áberandi
bloggara tilgreind. Launatölur
í blaðinu eru byggðar á álögðu
útsvari eins og það birtist í álagn-
ingarskrám.
Í síbrotagæslu
Tveir ungir menn, átján og
nítján ára, voru í gær úrskurðaðir
í síbrotagæslu en úrskurður þess
efnis var kveðinn upp í Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Í tilkynningu
frá lögreglunni segir að drengirn-
ir hafi báðir margsinnis kom-
ið við sögu lögreglu þrátt fyrir
ungan aldur. Hafa þeir áður ver-
ið handteknir fyrir ýmis afbrot,
meðal annars innbrot, nytja-
stuld, fjársvik og vörslu ávana-
og fíkniefna. Auk þess hafa þeir
margsinnis verið handteknir fyrir
umferðarlagabrot.
Húnabjörg
til aðstoðar
Björgunarskip slysavarna-
félags Landsbjargar, Húna-
björg á Skagaströnd, þurfti að
aðstoða 46 tonna snurvoðar-
bát sem hafði fengið veiðar-
færin í skrúfuna. Atvikið átti
sér stað upp úr hádegi í gær.
Báturinn var við Kálfhamars-
vita, norðan við Skagaströnd,
þegar hann fékk veiðarfærin
í skrúfuna. Þetta mun vera
sjöunda björgunarferð Húna-
bjargarinnar frá sjómanna-
deginum í byrjun júní þar
sem hún aðstoðar við björgun
skipa og báta við Húnaflóann.
600 milljónir
á hvern starfs-
mann
Fjárfestingafélagið FL
Group skilaði 23,8 milljarða
króna hagnaði á fyrri helm-
ingi ársins og jókst afkoma
þess um 304 prósent miðað
við sama tíma í fyrra. Hjá
FL Group starfa þó einung-
is tæplega fjörutíu manns.
Landsbanki Íslands skilaði
sambærilegum hagnaði en í
heildina starfa 2.456 starfs-
menn innan hans. Ef hagn-
aði FL Group er deilt niður á
hvern starfsmann má áætla
að hagnaður af hverjum
starfsmanni fyrirtækisins
nemi 600 milljónum króna,
hagnaður á hvern starfsmann
Landsbankans nemur þá tæp-
um tíu milljónum króna.
þórhallur Gunnarsson manaði Ellý Ármannsdóttur í beina útsendingu með dóttur sína:
Ellý í beinni með dótturina Ellý
Ellý Ármannsdóttir þula var ekki
einsömul þegar hún kynnti sjónvarps-
dagskrána í fyrradag. Í fangi hennar
hvíldi dóttirin Ellý sem er tveggja og
hálfs mánaðar gömul. Móðirin Ellý
segir Þórhall Gunnarsson, dagskrár-
stjóra Sjónvarpsins, hafa manað sig
upp í að fara í beina útsendingu með
nöfnuna.
Ellý segist ekki hafa heyrt í Páli
Magnússyni útvarpsstjóra eftir uppá-
tækið. „Ég held að hann hafi alveg
húmor fyrir þessu. Þetta er lifandi mið-
ill og við erum alltaf í beinni. Mér sýn-
ist þetta hafa fallið í góðan jarðveg.“
Símtölunum rigndi inn hjá Sjón-
varpinu eftir að Ellý kynnti tvo dag-
skrárliði í beinni útsendingu með dótt-
ur sína upp á arminn. „Fólk hringdi
inn með alls konar spurninga. Einn
vildi vita hvort þetta væri dúkka. Aðr-
ir spurðu hvort þetta væri mitt barn og
hvað það væri gamalt.“
Hún segir dóttur sína afar þæga.
„Hún gerir varla annað en að borða og
sofa. Ég ákvað því að taka hana bara
með mér í vinnuna. Þórhallur byrjaði
að grínast með að ég ætti nú að taka
hana með í kynningu og ég sagðist
ætla að taka hann á orðinu.“ Ellý seg-
ist hafa spurt Þórhall fyrst hvort hún
yrði rekin eftir uppátækið en hann hafi
lofað því að hún héldi vinnunni. „Hún
var auðvitað með mér í beinni í marga
mánuði,“ segir Ellý og rifjar upp með-
gönguna.
Aðspurð segist hún ekki vera að
reyna að feta í fótspor annarra með
því að búa til heimilislega stemningu
í sjónvarpsverinu. „Ég fer bara mínar
eigin leiðir. Mér var sagt að Sirrý hefði
einhverju sinni komið með sitt barn í
sjónvarpið svo þetta hefur verið gert
áður.“
Ellý segir að það megi allt eins eiga
von á því að hún mæti oftar með dóttur
sína og nöfnu í sjónvarpið. „Ég passa
mig bara á því að kynna ekki dagskrár-
liði sem eru bannaðir börnum.“
erla@dv.is
Ellý Ármannsdóttir Ellý tók Ellý dóttur sína með í vinnuna þar sem hún kynnti
áhorfendum næstu dagskrárliði
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is