Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2007, Page 58
Tr
yg
g
va
g
a
ta
ry
g
g
va
g
a
ta
Fimmtudagur 2. ágúst 200758 Helgarblað DV
Föstudagur Laugardagur
Górilla - Fönk á VeGó
Það verður górillufönk á Vegamótum í
kvöld, en plötusnúðurinn Gorilla Funk
mætir á svæðið í þyrlu. Sá maður
heldur hjartslættinum í hámarki þegar
hann spilar, en þannig eru allir
plötusnúðar sem lærðu list sína hjá
inka-ættbálkum í Suður-ameríku. einfalt mál.
MaSSaStuð á Prikinu
Það verður hörkustemn-
ing á Prikinu á föstudag-
inn, ekki málið. Þar
kemur fram trúbadorinn
Jude, sem er þekktur sem
Jude law, fyrir utan
landsteinanna. á eftir
honum er enginn annar
en Magnús legó, sem er
sko ekkert dúpló og hefur
jafnvel hugsað um að taka upp nafnið
Magnús tækni-legó. Meira um það síðar.
láki oG rikki á Sólon
rikki G sér um efri hæðina á
laugardaginn í fjarveru
lærimeistara síns, BMV. rikki
þarf þó ekki að örvænta því
það er hinn spegilslétti láki
tender sem kemur inn á
neðri hæðinni.
PoSe á HVerFiS
Pose.is heldur svokallað Beep-partí á
Hverfisbarnum á laugardaginn. Gleðskapur-
inn hefst klukkan 22 og eru fríar veigar á
meðan birgðir endast. Pose-stelpurnar sjá
um að gestir hafi nóg af drykkjum til að gúffa
í sig á meðan gamla verslókempan Jay-o eða
Jónas óli bombar tónlistinni í gang.
alex a. á naSa
Flex Music bjóða
upp á plötusnúðinn
alex anderson á
nasa. anderson er
fastaplötusnúður á
risaklúbbum á borð
við Pacha og
Minestery of Sound
í london. Það eru Dj
Ghozt og Brumheim
frá Flex Music og Dj
Danni sem hita upp fyrir kappann en miðaverð er 1500
krónur og er aðeins selt við dyr.
illaður koMinn HeiM
Danni Deluxxx er kominn heim á Prikið
eftir að hafa túrað í Svíþjóð og í
plötusnúðabúðum í norður-kóreu.
illaður Dan er með alls kyns ný trix í
pokahorninu og er með öllu ófyrirsjá-
anlegt hvað kvöldið ber í skauti sér.
SinGStar-Partí á Sólon
Það verður allsherjar SingStar-
partí á Sólon á föstudagskvöld-
ið. Þar geta nett falskir
fagurgalarar sungið frá sér
lífslöngunina á meðan hinn
eini sanni rikki G snýr skífum,
hring eftir hring eftir hring. og
auðvitað, sing.
DJ JónaS óli á VeGó
Dj Jónas óli, eða Dj Jay o, dettur í
eintóma grimmd á Vegamótum í
kvöld. Jónas óli er ekki aðeins fær
plötusnúður, heldur spilaði hann
einnig með liðinu la Clippers, eitt
leiktímabil. ekki missa af Jay o, sem
er af mörgum talinn Dominique
Wilkins plötusnúðanna.
DJ SteF á HVeBBanuM
Það er enginn annar en Dj
Gunni Skúla, a.k.a. óld
Skúl, a.k.a. Dj Stef sem
verður á Hverfisbarnum í
kvöld. Gunni er gallharður
gæi sem hefur lengi verið
við stjórnvölinn á dans-
gólfum landsmanna. Þeir sem ætla að byrja helgina
með trukki, vinsamlegast mæti snemma.
VeiSla á QBar
Sunnudagurinn er helþéttur á Q-inu. Meistari Magic eða Gísli
galdur treður
upp ásamt
Yamaho.
Heyrst hefur
að Yamaho
ætli að fara
úr að ofan en
að galdurinn
ætli að toppa
það og fara
úr að neðan.
Sunnudagur
Benni á VeGó
reynsluboltinn Dj Benni B-
ruff sér um sunnudags-
kvöldið á Vegamótum.
kappinn sem hóf ferilinn á
tetris er orðinn einn
reynslumesti snúður landsins og kann
allar brellurnar í skífuþeytingum.
De la róSa á Prikinu
ef þú yrðir að velja milli þess að fara í
hringinn með tyson eða fara í röðina á
Sólon, hvort myndir þú velja? annars er De
la rósa að spila á Prikinu á sunnudaginn.
JaY ó á HVeBBanuM
Jónas óli hatar ekki að
þeyta skífum. Hann er
hreinlega á fullu alla
helgina og ætlar ekki í
sturtu. ó nei. Þetta
verður bara ein allsherjar keyrsla og hann
ætlar að enda þetta á Hverfis á sunnudaginn.
JBk á oliVer
Þegar sólin fer að skína
og sumarið færist yfir er
alveg pottþétt að
sætasta stelpan á
ballinu er á oliver. Þetta
veit plötusnúðurinn JBk
sem sér um að gjörsam-
lega blasta kerfið í drasl
helgi eftir helgi og er kvöldið í kvöld engin undantekn-
ing. Dustið rykið af dansskónum og dettið í gang.
HlYnur á ólíVer
eitt stykki sveittur Hlynur kemur fram með
grimmum tónum á ólíver á sunnudaginn.
um að gera að setja slaufu á verslunar-
mannahelgina með þessum hætti, en Hlynur
er þekktur í öllum heimshornum fyrir agaða
framkomu, stinnan rass og þétt dansspor.
Plötusnúður með glassúr, elskan.