Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Síða 2
Einar Jökull Einarsson og Alvar Ósk- arsson voru fórnarlömb skotárásar sem gerð var í Hafnarfirði í fyrra. Þrír menn, þeir Guðni Guillermo Gor- ozpe, Bergur Már Ágústsson og Geir Þorsteinsson voru dæmdir í fangelsi fyrir árásina. Braust inn til Alvars Einar Jökull og Alvar sitja núna í gæsluvarðhaldi fyrir aðild þeirra að fíkniefnainnfutningnum á fimmtu- daginn í síðustu viku. Guðni Guillermo braust aðfara- nótt miðvikudagsins 21. júní á síð- asta ári inn á heimili Alvars sem þá bjó í kjallaraíbúð við Bergþórugötu 33 í Reykjavík. Hann sló Alvar í höf- uðið með kúbeini með þeim afleið- ingum að hann fékk áverka og tvo djúpa skurði við vinstra eyra. Alvar náði að koma sér í skjól í íbúðina á Burknavöllum 10 í Hafnarfirði þar sem Einar Jökull bjó ásamt félaga sínum, Ingva Guðmundssyni. Nokkrum klukkustundum síð- ar, eða að morgni þess 22. júní, fóru þeir Guðni, Bergur Már og Geir að íbúðinni og skutu tveimur skotum úr haglabyssu inn um eldhúsglugga og glugga í útidyrahurð hússins. Högl úr byssunni lentu í höfðinu á Alvari og í hægri handlegg hans. Mennirnir höfðu þó ekki lokið sér af því Guðni fór aftur að húsinu á Burknavöllum 10 í Hafnarfirði og kastaði molotov-kokkteil, eða bens- ínsprengju, inn um gat á rúðu í eld- húsglugga hússins. Eldur kviknaði í rimlagardínum í kjölfarið og pappa- spjaldi sem var inni í húsinu en eld- urinn slokknaði af sjálfu sér stuttu síðar. Íbúðin var mannlaus þegar Guðni kastaði sprengjunni. Samkvæmt dómi Héraðsdóms var ástæða árásarinnar óuppgerðar sak- ir sem mennirnir töldu sig eiga við Alvar. Á þessum tíma var Einar Jökull kominn í slagtog með mönnum sem voru tengdir fíkniefnaheiminum og var hann sjálfur í neyslu. Ekki er úti- lokað að fíkniefni hafi tengst árásinni þótt það sé ekki staðfest. Dæmdir í fangelsi Guðni Guillermo fékk lengsta dóminn í málinu eða tveggja ára fangelsi. Hann var einnig dæmdur fyrir umferðarlagabrot en hann hafði í beinu framhaldi af bensínsprengju- árásinni ekið gegn rauðu ljósi og ekið á hundrað kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Bergur Már fékk 15 mánaða fangelsisdóm og Geir fékk níu mánaða dóm. Dómur Geirs var skilorðsbundinn til sex mánaða. Rannsókn miðar vel Samkvæmt upplýsingum frá Stef- áni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höf- uðborgarsvæðinu, miðar rannsókn á smyglskútumálinu vel. „Það má segja að allt gangi samkvæmt áætlun en yfirheyrslur standa yfir hér á landi sem og erlendis. Ég get ekki tjáð mig um hvað hefur komið fram í þeim að neinu leyti.“ Samkvæmt heimildum DV eru fíkniefnin sem flutt voru inn upp- runnin í Litháen. Stefán vildi hvorki játa né neita því. Aðspurður hver þáttur íslenska huldumannsins í Færeyjum sé í mál- inu sagði Stefán að hann gæti ekki gefið frekari upplýsingar um þátt hans í smyglinu. Skútan sem kom frá Noregi hafði viðkomu í Færeyjum áður en hún kom til Fáskrúðsfjarðar. Ekki er útilokað að þeir Guðbjarni Traustason og Alvar Óskarsson, sem sigldu skútunni, hafi skilið eftir tvö kíló af amfetamíni áður en þeir héldu til Íslands. Fram kom í fréttum RÚV í gær að Arnar Jensson, fulltrúi lögreglunnar hjá Europol, hefði sagt að rannsókn- in næði til fleiri landa en Færeyja, Noregs, Danmerkur, Þýskalands og Hollands. Í samtali við DV í gær sagði Arnar að hann hafi ekki gefið út neinar yfirlýsingar þess efnis og vís- aði fréttum RÚV á bug. Að öðru leyti vísaði hann á lögregluna á Íslandi um rannsókn málsins. Gæsluvarðhald staðfest Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim Bjarna Hrafnkelssyni og Ein- ari Jökli Einarssyni var staðfestur af Hæstarétti Íslands í gær. Þeir voru á fimmtudaginn í síðustu viku úr- skurðaðir í gæsluvarðhald af Hér- aðsdómi Reykjavíkur til 18. október. Einar Jökull og Bjarni höfðu áfrýjað dómnum til Hæstaréttar þar sem þeir neituðu allri aðild að smygl- inu. Alvar Óskarsson og Guðbjarni Traustason voru handteknir á bryggjunni á Fáskrúðsfirði en þeir Einar og Bjarni voru handteknir á heimili sínu í Reykjavík um leið og lögregla réðst til atlögu við þá Alvar og Guðbjarna. Gæsluvarðhaldsúr- skurður yfir ökumanni bifreiðarinn- ar sem sótti þá rennur út á fimmtu- daginn. þriðjudagur 25. september 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Neytendasamtökin berjast gegn asó-litarefni í matvörum: Veldur ofvirkni og reiðiköstum Neytendasamtökin hvetja neyt- endur til að sniðganga vöru sem inni- heldur hin umdeildu asó-litarefni. Brynhildur Pétursdóttir hjá Neytenda- samtökunum segir ítarlega rannsókn í Bretlandi hafa leitt í ljós að neysla asó-litarefnis auk rotvarnarefnisins E211 geti valdið einkennum á borð við ofvirkni, reiðiköstum og hegðun- arvanda hjá börnum. „Þetta efni hef- ur lengi legið undir grun og fyrir sjö árum var gerð rannsókn sem sýndi þessar niðurstöður. Sú rannsókn þótti ekki nægilega ítarleg og því var nýjasta rannsóknin gerð.“ Dönsku neytendasamtökin hafa skorið upp herör gegn efninu og vilja að sögn Brynhildar fá vörur sem inni- halda efnið burt úr verslunum. Neyt- endur eru hvattir til að hafa augun opin fyrir rotvarnarefnunum E102, E104, E110, E122, E124 og E129 í inni- haldslýsingum á vöruumbúðum. Breska matvælastofnunin hefur farið sömu leið og ráðlagt að börn neyti ekki þessara efna. Í tilkynningu frá Neytendasamtök- unum segir að þar sem efnin séu ekki nauðsynleg í matvælum og á með- an rannsóknir gefi til kynna að efnin kunni að valda börnum skaða sé ekk- ert sem réttlætir tilvist efnanna. Efnið er meðal annars að finna í sælgæti og ís en einnig í vissum áfengum drykkj- um, eftir því sem fram kemur á lista sem dönsku neytendasamtökin birtu á vefsíðu sinni. „Við sjáum ekki alveg að opinber- ir aðilar hafi tekið svona sterkt til orða hér á landi. Það þarf mikið til að við hvetjum fólk til þess að sniðganga til- teknar vörur og þetta er mjög alvarlegt ef rétt reynist. Það er betra að börnin fái að njóta vafans í þessu máli.“ Neytendasamtökin Vilja litarefni sem veldur reiðiköstum hjá börnum út af markaði. Ólafur Ragnar og Clinton heiðraðir Forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, tók á sunnudag við verðlaunum fyrir forystu á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir að stuðla að nýrri sýn á nýtingu hreinnar orku um víðan heim. Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er meðal þeirra sem áður hafa hlotið verðlaunin. Verðlaunin eru veitt af Louise T. Blouin-stofnuninni sem efnir árlega til leiðtogafundar í New York sem helgaður er þörfinni á nýrri forystu í alþjóðamálum. Skór hækka í verði Enn meiri verðhækkana á fatnaði og skóm er að vænta í október vegna útsöluloka. Í sept- ember nam hækkunin um 13,5 prósentum en undanfarin ár hafa útsölulok einnig haft áhrif á verð í október. Veiking krónunnar og hækkað húsnæðisverð koma einnig til. Greiningar- deild Lands- bankans spáir talsverðri hækkun á vísi- tölu neyslu- verðs í næsta mánuði, eða 0,8 pró- sentum. Hækkunin nam 1,32 prósentum í september og er það mesta hækkun í einum mánuði frá því í maí 2006. Einar Jökull Einarsson og Alvar Óskarsson lentu í skotárás í Hafnarfirði í fyrra. Þrír menn voru dæmdir í fangelsi fyrir árásina en einn þeirra skaut úr haglabyssu á húsið. Kvöldið eftir henti Guðni Guillermo Garzope bensínsprengju inn í húsið sem var þá mannlaust. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að rannsókn smyglmálsins gangi vel og allt sé samkvæmt áætlun. SKOTIÐ Á SMYGLARA EiNAR þÓR SiGuRðSSoN blaðamaður skrifar: einar@dv.is Mennirnir höfðu þó ekki lokið sér af því Guðni fór aftur að húsinu á Burknavöllum10 í Hafnarfirði og kastaði molotov-kokkteil inn um gat á rúðu í eldhúsglugga hússins. Burknavellir 10 skotárásin átti sér stað að morgni 21. júní á síðasta ári. einar jökull og alvar voru í íbúðinni þegar árásin átti sér stað. Smyglari gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim einari og bjarna var staðfestur í gær í Hæstarétti. Fengu ekki að hækka verð Samgönguráðuneytið hefur staðfest úrskurð Neytendastofu um að Heimsferðum hafi verið óheimilt að krefja neytanda um viðbótargreiðslu að upphæð rúmar þrettán þúsund krónur vegna gengislækkunar krónunn- ar á þeim fjórum mánuðum sem liðu þar til pöntun á ferð var gerð og hún var greidd. Ekki var getið um þessa hækkun í almennum skilmálum og gat fyrirtækið ekki sagt til um hvernig þessi hækkun kæmi til. Langt umfram hámarkshraða Fjórir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á Grindavíkurvegi í fyrradag. Þar er hámarkshraði 90 kílómetrar á klukkustund en mennirnir mældust á 113 til 116 kílómetra hraða. Þeir eiga von á því að þurfa borga 50 þúsund krónur í sekt fyrir aksturinn. Þá var einn tekinn á Reykjanesbraut en sá ók á 94 kílómetra hraða á kafla þar sem hámarkshraðinn er 50 km. Hann á einnig von á því að þurfa borga 50 þúsund krónur í sekt, auk þess að fá fjóra punkta í ökuferilsskrá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.