Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Síða 22
þriðjudagur 25. september 200722 Fókus DV
Frisell Projekt í salnum
bandaríkjamaðurinn Scott McLeMore leiðir tríóið FriSeLL Projekt á tónleikum í SaLnuM í
kvöld. tríóið, sem skartar auk scotts á trommum þeim róbert ÞórhaLLSSyni á bassa og
Sunnu GunnLauGS á 30 ára Wurlitzer-rafpíanó, mun leika tónlist eftir gítarleikarann og
grammy-verðlaunahafann biLL FriSeLL sem sótt hefur efnivið í ýmsar tónlistartegundir.
tónleikarnir hefjast kLukkan 20 og er miðasala á salurinn.is.
á þ r i ð j u d e g i
SkrímSlin í
arkitektar
ekki fram-
leiðslufyrirtæki
Það er alltaf ánægjulegt þegar bent er á eitthvað sem verið er að gera á Íslandi,“ segir
Margrét Harðardóttir, arkitekt og
annar stofnenda arkitektastofunn-
ar Studio Granda sem fékk Sjón-
listaverðlaunin 2007 síðastliðinn
föstudag fyrir hönnun á viðbygg-
ingu við Vogaskóla í Reykjavík og
einbýlishús á Hofi á Höfðaströnd.
Verðlaunin voru nú afhent í ann-
að sinn en verðlaunaféð nemur
tveimur milljónum króna. Að-
spurð hvort verðlaunin hafi komið
á óvart segir Margrét að í ljósi þess
að þrír voru tilnefndir hafi þetta
ekki komið þannig séð á óvart.
„Það voru náttúrlega þrjátíu pró-
senta líkur og því var þetta ekkert
svo óvænt,“ segir Margrét.
Önnur bygg-ingin sem
Studio Granda
hlaut verð-
launin fyrir er
opinber en
hin fyrir
einkaað-
ila. Margrét
segir tölu-
verðan mun
á þessu
tvennu
hvað varðar verkferla arkitekta.
„Þetta eru mjög ólíkar byggingar.
Önnur þeirra var unnin algjörlega
í samstarfi við eigendurna og var
hún sköpuð af báðum aðilum.
Hin var svokallað alútboð þar
sem fimm aðilar fengu að bjóða í
bygginguna og var leitað að lægsta
verðinu. Smá tillit var tekið til
hönnunar en það var í rauninni
verðið sem réð því að sú bygging
var byggð. Þar unnum við með og
fyrir verktakann en ekki fyrir verk-
kaupann. Það er allt önnur staða
því notandinn og byggjandinn eru
mikið fjær. Þetta er mjög slæmt
form fyrir barnaskóla.“
Margrét svarar aðspurð að þetta sé mjög hamlandi fyrirkomulag. „Það má
ekkert kosta. Það þurfti til dæmis
að berjast fyrir því að fá að nota
flísar í skólann en verktakinn gerði
eins mikið og hann gat og stóð sig
því mjög vel miðað við aðstæður.
Það eru eiginlega allir í spennu-
treyju í svona verkefni.“
Studio Granda, sem var stofnuð árið 1987, fæst ekki eingöngu við hönnun húsa
heldur við afar fjölbreytt verk-
efni. „Við erum líka í brúargerð
og þess vegna hönnun á hlutum.
Við erum eiginlega í öllu á þessu
sviði,“ segir Margrét og bætir við
að það sé mjög mikilvægt að hafa
sem mesta fjölbreytni. „Það eykur
svo sviðið þegar maður hugsar
víðar og er ekki alltaf að framleiða
það sama. Og við erum að reyna
að hanga í því að arkitektar séu
ekki framleiðslufyrirtæki heldur
skapandi fyrirbæri.“
SjónliStaverðlaunin
„Ég er hræddur, ég vil fara heim,“ sagði lítill
snáði stundarhátt á frumsýningunni á Gott kvöld!
á sunnudaginn var. Hann skreið upp í fangið á
pabba sínum og pabbi varð að fara fram með hann
smástund til að róa hann niður. En þeir voru brátt
komnir aftur og horfðu saman á leikinn til enda.
Í þessum leik, Gott kvöld!, eftir Áslaugu Jóns-
dóttur, barnabókahöfund og myndlistarmann,
er fjallað um talsvert viðkvæmt og vandmeðfar-
ið efni: ótta barnsins, hræðslu litla drengsins sem
er skilinn eftir einn heima, þó ekki sé nema stutta
stund. Það er hræðsla sem getur hæglega breyst
í óviðráðanlega angist, stjórnlausan kvíða, takist
einstaklingnum ekki að ná valdi á henni, komast
yfir hana. Þannig mun þó líkast til ekki fara fyrir
drengnum sem þessi leikur segir frá. Honum tekst
nefnilega með hjálp hugarflugsins að búa sér til
innri heim þar sem allt hið óttalega fær á sig æv-
intýralegar og undirfurðulegar myndir. Allir, sem
skildir hafa verið eftir ungir – í einhverjum skiln-
ingi – eru ekki svo lánsamir. Þegar verst lætur geta
afleiðingarnar fylgt manninum alla ævi, jafnvel
eyðilagt líf hans.
Gott kvöld! er eins konar lofgjörð til ímyndun-
araflsins, lýsing á lækningarmætti þess og krafti.
Þetta er eitt þeirra góðu verka sem bæði börn og
fullorðnir geta notið og það leyndi sér ekki að
leikurinn hélt athygli ungra áhorfenda til enda.
Líklega er þetta þó frekar verk fyrir börn sem eru
orðin aðeins stálpuð, eins þótt listrænir höfundar
sýningarinnar hafi gætt þess að gera ekkert sem
kynni að skapa óþarfan ótta. Áhorfandinn ungi,
sem ég minntist á hér í upphafi, var einn um að
sýna áberandi hræðsluviðbrögð, svo ég tæki eftir.
Sumir segja að vísu að börn þurfi alltaf að verða
pínulítið hrædd, eða a.m.k. óörugg, til að fá áhuga
á því sem er að gerast á sviðinu. Það hlýtur að
kalla á ákveðinn línudans og ekki bar á öðru en
hann væri stiginn hér af lipurð.
Litli drengurinn, sem Vignir Rafn Valþórs-
son leikur ljómandi vel, er sem sagt skilinn eft-
ir eina kvöldstund. Mamma er flugfreyja, hún er
að koma úr flugi og pabbi þarf að sækja hana út á
völl. Sá litli á engin systkini og barnfóstra er ekki
innan seilingar. Ég verð enga stund, segir pabbi og
hleypur út, en tímaskyn barna er ekki hið sama og
fullorðinna. Er höfundur að segja, á fínlegan hátt,
að það eigi yfirleitt ekki að skilja börn ein eftir? Að
þeir fjölskylduhættir nútímans, sem kalli á slíkt,
séu harla hæpnir? Þetta er kannski ekkert höf-
uðatriði í verkinu, en samt hugsa ég að megi lesa
slíka áminningu út úr því.
Þegar drengurinn er orðinn einn fer öryggis-
leysið auðvitað strax að gera vart við sig. Ímynd-
unarafl barna er líflegt; það getur svo margt kom-
ið upp á og óttinn er fljótur að láta á sér kræla.
En hér fer sem sagt á annan veg. Bangsi litli, sem
er eini félaginn, lifnar við og síðan koma ýmsar
furðuverur í heimsókn: hungurvofan, tímaþjóf-
urinn, hræðslupúkinn, letihaugurinn, fýlupokinn
með leiðindaskjóðuna og fleiri. Þær banka upp á
í barnaherberginu hver af annarri og fara síðan á
dansleik í stofunni – nema auðvitað fýlupokinn
sem er alltaf í fýlu! Bangsi er leikinn af Þórunni
Ernu Clausen, sem var svolítið föst í gamalkunn-
um barnaleikhústöktum, dálítið klisjukennd-
um hressleika sem hún nær kannski að losa sig
við síðar. Baldur Trausti Hreinsson fór fimlega
úr pabbagervinu, sem hann birtist fyrst í, og lék
ýmsa hinna misvelkomnu gesta af prýði. Hann
fer ágætlega með söngtextana sem eru hnyttnir
og njóta sín vel við tónlist Sigurðar Bjólu; stund-
um var brugðið á leik í anda þekktra tónlistar-
manna, jafnvel með smáskopstælingu, sem full-
orðnir áhorfendur kunna þó vísast betur að meta
en börnin. En þetta er, eins og áður segir, sýning
fyrir börn á öllum aldri.
Það sem setur þó mestan svip á sýninguna
er brúður Helgu Arnalds, búningar og leikgervi.
Helga vinnur hér talsvert með mjúk form, gjarn-
an kúlulaga, voðfelld og streymandi – rétt eins og
óttinn sem við ráðum svo misvel við! Þetta eru
yfirleitt snilldarlega gerðar leikverur, skrípalegar,
fjölskrúðugar og fyndnar. Eftir að þær hverfa af
sviðinu birtast þær í mynd skuggaleikhúss sem
varpað er á sviðsveggina. Þetta skuggaleikhús
hefði að mínum dómi getað notið sín betur ef
leikmyndin hefði verið hugsuð og hönnuð með
þarfir þess í huga. Þrátt fyrir stílíseringu eru hún
í grunninn realistísk og skuggamyndirnar, sem
annars ættu að vera eitt af höfuðatriðum leiks-
ins, fengu tæpast fullan slagkraft. Ég sé að Áslaug
hefur sjálf gert leikmyndina; þó að hún sé fjöl-
hæfur myndlistarmaður hefði líklega verið betra
að kalla til einhvern snjallan senógraf, nóg eig-
um við af þeim. Leikmyndagerð er rýmislist, ekki
myndlist í hefðbundnum skilningi.
Dramatúrgískt er handritið ekki heldur mjög
spennandi, heimsóknirnar verða snemma nokkuð
fyrirsjáanlegar. En það truflar væntanlega fremur
fullvaxna áhorfendur en þá yngri. Þessi sýning er
yfirleitt vel hugsuð og vel unnin af hálfu leikhúss-
ins og á skilið að verða fjölsótt.
þjÓðLeiKHÚSið:
gott kvöld! eftir Áslaugu
Jónsdóttur.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Leikmynd: Áslaug Jónsdóttir.
Brúður, búningar og skuggaleik-
hús: Helga Arnalds.
Tónlist og hljóðmynd: Sigurður
Bjóla.
Lýsing: Páll Ragnarsson.
HHHHH
barnaherberginu
leikdómur
jón Viðar jónsson
leiklistargagnrýnandi
Unnið á óttanum
þórunn erna Clausen og Vignir
rafn Valþórsson í hlutverkum
sínum í góðu kvöldi.
Stofnendur
Studio Granda
margrét Harðardótt-
ir og steve Christer.
Vogaskóli
Viðbygging við
skólann er önnur
bygginganna sem
studio granda var
verðlaunuð fyrir.
heitt í hamSi
Jeff Who?, Dikta og Ölvis trylltu lýðinn á NASA um helgina:
Það var feiknarlegt fjör á NASA á föstudagskvöldið þar sem hljómsveitirnar Jeff Who? og Dikta ásamt tónlistarmanninum
Ölvis tróðu upp. Fullt var út úr dyrum og stemningin engri lík, eins og myndirnar bera með sér.
Stappað það var þétt setið,
staðið og öskrað á tónleikun-
um eins og hér sést.
Úr að ofan sumum var
heitara í hamsi en öðrum.
Slegið á strengi Hinir
mishárprúðu meðlimir jeff Who?
héldu mannskapnum við efnið.
Baksviðs elli, bassaleikari jeff
Who?, í góðu gríni baksviðs.
í kvöld
Gott kvöld! er eins konar lofgjörð til ímyndunar-
aflsins, lýsing á lækningarmætti þess og krafti.