Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Blaðsíða 25
DV Sviðsljós þriðjudagur 25. september 2007 25
Vorkennir Pitt
og Jolie
Billy Bob Thornton segist
vorkenna fyrrverandi eiginkonu
sinni Angelinu Jolie og unnusta
hennar Brad Pitt. Ástæðuna segir
Thornton vera stanslausa
fjölmiðlaathyglina sem þau þurfa
að þola hvert sem þau fara.
„Einu skiptin
sem þú
heyrir
eitthvað
um mig
er þegar
mynd
er
væntan-
leg frá
mér.
Þannig vil ég
líka hafa það,“
segir Thornton um málið.
Hann og Jolie eru ennþá nánir
vinir þrátt fyrir skilnaðinn.
Thornton og Pitt eru einnig góðir
vinir en Pitt mun framleiða næstu
kvikmynd kappans.
Kosin eftirsóknar-
verðust
Hin funheita Jessica Alba var
kosin eftirsóknarverðasta
einhleypa stjarnan af lesendum
stefnumótasíðu yahoo.com. Það
kemur lítið á óvart þar sem Alba
hefur ótal sinnum verið kosin
kynþokkafyllsta eða falleg-
asta kona heims
á hinum
ýmsu
vígstöðv-
um. Í
öðru
sæti var
Jennifer
Aniston.
Það sem
kom samt
skemmtilega
á óvart í
könnuninni var að söng- og
leikkonan Queen Latifah var í því
þriðja. En hún hefur seint verið
talin í hópi fallegustu kvenna
undanfarin ár. Latifah hefur þó
verið að sækja í sig veðrið og
verður kvenlegri með hverri
mínútunni sem líður en framan af
var hún þekkt fyrir heldur
karlmannlegt yfirbragð.
Hræðist ekki
mannránshótanir
Leikarinn Mel Gibson hefur
ákveðið að virða ekki öryggis-
ábendingar bandarískra
stjórnvalda og ætlar að flytja
á afskekktan
stað í
Kostaríka.
Gibson
ætlar að
flytja
með
eigin-
konu
sína og
sjö börn á
stóran
búgarð sem er
skráður á „hættusvæði“.
Bandarísk stjórnvöld hafa varað
ferðamenn á svæðinu við að þeir
geti verið hugsanleg fórnarlömb
mannræningja og glæpamanna
og eigi ekki að ferðast einir.
Í för með
Pussycat Dolls?
Sú saga gengur nú fjöllunum
hærra vestanhafs að söngkonan
og tískugyðjan Victoria
Beckham muni
slást í för með
hljómsveit-
inni
Pussycat
Dolls. Á
ýmsum
net-
miðlum
er því
haldið
fram að
Victoria sé
mikill aðdáandi sveitarinnar
og að þær séu einnig mjög
hrifnar af henni. Ekki er verið að
tala um að Victoria gerist
meðlimur sveitarinnar heldur feti
í fótspor stjarna eins og Carmen
Electra, Christina Aguilera
og Britney Spears sem hafa komið
fram með sveitinni.
Fyrrverandi lífvörður Britney Spears, Tony Barr-
etto, greindi frá því í viðtali við News Of the World
í gær hversu alvarlegar áhyggjur hann hefði af lifn-
aðarháttum söngkonunnar og í opinskáu viðtali
sagði hann sjokkerandi sögur af því sem hann hefði
upplifað við störf sín fyrir Britney. Tony Barretto,
sem gengur undir viðurnefninu Fat Tony, er gift-
ur, tveggja barna faðir og var eitt helsta vitnið gegn
Britney í forræðisdeilunni við fyrrverandi eigin-
mann hennar, Kevin Federline, yfir sonum þeirra
tveimur Sean, tveggja ára, og James, eins árs.
Í viðtali sínu við News Of the World sagði Tony:
„Ég sagði einungis mína sögu í réttarsalnum af því
að Britney er gjörsamlega stjórnlaus og þarfnast
hjálpar. Ég gerði þetta fyrir börnin hennar því hún
er ekki góð móðir og hún á við geðræn vandamál að
stríða. Sökum harðrar áfengis- og vímuefnaneyslu
tel ég heimili hennar engan stað fyrir börn að alast
upp á.“ Frásögn Tonys í réttarhöldunum er talin hafa
átt stóran þátt í því að dómari í málinu skipaði Britn-
ey að fara í fíkniefnapróf tvisvar í viku og að lögfræð-
ingur hennar og umboðsmaður hættu að starfa fyrir
hana.
Stefnumótið endaði með ósköpum
Britney réð Tony sem lífvörð sinn 26. mars síð-
astliðinn, stuttu eftir að hún skráði sig úr meðferð.
Tony, sem hafði setið tíu vikna fíkniefnanámskeið
hjá lögreglunni, segist ekki hafa verið lengi að átta
sig á því að Britney væri langt því frá að vera laus við
fíknina. „Áður en Britney hélt sína fyrstu tónleika í
Anaheim eftir meðferðina fór hún á stefnumót með
tónlistarmanninum Howie Day en þrátt fyrir að við,
sem störfuðum við það eitt að vernda öryggi söng-
konunnar, hefðum gert bakgrunnsrannsókn á Day
og varað hana við því að hann væri vandræða-
gemsi, vildi hún ekki hlusta á okkur og fór að hitta
hann.“
Nokkrum tímum síðar fékk Tony símhringingu
frá Britney sem virtist vera mikið niðri fyrir þar sem
hún tilkynnti Tony að Day neitaði að leyfa henni að
yfirgefa hótelherbergi sem þau væru stödd á. „Hún
sagði að hún vildi hætta við tónleikana og var mjög
ringluð. Við spurðum hvort það væri í lagi með
hana og minntum hana á að hún væri að fara að
halda tónleika von bráðar. Þá kom Day í símann
og byrjaði að rífast við okkur. Á þeim tíma vissum
við bara að við þyrftum að flýta okkur til Britney.“
Sjokkerandi sjón
Tony ásamt öðrum lífverði Britney
og bestu vinkonu, Alli Sims, drifu sig á Mondrian-
hótelið í L.A. Þegar þau komu á staðinn voru dyrnar
að hótelherberginu opnar og ófögur sjón blasti við
þeim : „Við sáum að Britney var rauðeygð eftir grát.
Howie lá sofandi í boxer-nærbuxum ofan á rúminu
og hótelherbergið var í rúst. Það voru matarafgang-
ar, föt og rusl úti um allt. Herbergið var undirlagt af
tómum bjórdósum, áfengisflöskum og sígarettu-
stubbum. Á kommóðunni kom ég svo auga á rör og
hvítt duft sem mig grunaði sterklega að væri kóka-
ín og meth-amfetamín,“ segir lífvörðurinn og held-
ur áfram: „Stuttu seinna rak ég svo augun í gler-
pípu sem ég vissi frá fíkniefnanámskeiðinu sem ég
sótti að væri einkum notuð fyrir fíkniefni sem kall-
ast kristal-meth og hefur svipuð áhrif og amfetamín
og E-töflur. Of stór skammtur af efninu getur leitt til
hjartabilunar og dauða.“
Tony segist ekki hafa trúað eigin augum og að
Britney hafi verið gjörsamlega út úr heiminum.
„Við héldum á tímabili að hún hefði tekið of stór-
an skammt af lyfjunum. Hún grét og grét
og húðin á henni var öll vaxkennd. Hún leit út fyrir
að vera mjög veik og þegar við reyndum að tala við
hana urðum við svo skelkuð að við gjörsamlega fór-
um yfir um því við óttuðumst að hún myndi deyja.
Á endanum ákváðum við að koma henni bara út og
á meðan við héldum á henni niður stigann var það
eina sem hún gat komið út úr sér að henni liði ekki
vel.“ Tony segir að hún hafi hegðað sér mjög skringi-
lega í bílnum og að sætin hafi orðið rennblaut því
Britney hafi svitnað svo mikið. „Einhvern veginn
tókst okkur þó að koma henni á tónleikana og upp
á svið en allan tímann sem hún var á sviðinu starði
hún í áttina til mín, gjörsamlega út úr heiminum.
Eftir tónleikana var hún harðlega gagnrýnd fyrir að
hafa einungis hreyft varirnar í takt við lög á geisla-
diski.“
Var undir áhrifum nálægt sonunum
Í bílnum á leiðinni heim eftir tónleikana segir
Tony hana hafa búið til skrítin lög sem hún söng
með undarlegri röddu. „Einnig skrúfaði hún
niður rúðuna og byrjaði að garga út um glugg-
ann að hún væri rokkstjarna. Þetta var samt ekki
í eina skiptið sem ég varð vitni að því að söng-
konan væri á eiturlyfjum. Ég horfði á hana taka
í nösina tvö kvöld af þeim skiptum sem ég fór
með henni á skemmtistaðinn Teddy‘s í Los Ang-
eles.“ Það sem Tony segir að angri sig mest sé það
að Britney hafi ekki hikað við að vera þunn eða
jafnvel undir áhrifum þegar hún var með sonum
sínum. „Hún átti viskíflösku í náttborðsskúffunni
sinni og eftir meðferðina mátti enginn sjá hana
drekka svo hún pantaði sér Jack Daniels í kók á
börunum í kaffibolla svo fólk héldi að hún væri
með kaffi. Ég var með miklar áhyggjur af strák-
unum þegar hún var undir áhrifum í kringum þá.
Hún yrti ekki á þá og var í eigin heimi. Við þurft-
um að passa upp á börnin hennar á meðan hún
sat á gólfinu, nagaði á sér neglurnar og muldraði
eitthvað út í loftið sökum eiturlyfjaneyslu.“ Tony
sagði að lokum að hann vonaðist til þess að þessi
frásögn hans veki Britney til umhugsunar og það
eina sem hann óskaði henni sé góð framtíð og að
hún nái að verða góð móðir.
krista@dv.is
Fyrrverandi lífvörður Britney Spears bar vitni gegn söngkonunni í forræðisdeilu
hennar við Kevin Federline. Í viðtali við tímaritið News Of The World lætur hann
svo allt flakka og segir hræðilegar sögur af fíkniefnaneyslu og vanlíðan söngkonunn-
ar sem eitt sinn var lítil og saklaus en virðist nú hafa misst tökin á lífinu.
LÍFVÖRÐUR BRITNEY SEGIR
SÖGUR!
Alli Simms, Tony Baretto og Britney Spears alli
og tony komu að britney útúrdópaðri í Los angeles.